
Sign up to save your podcasts
Or


Umræðuefni vikunnar eru ekki af verri endanum: Ofurkonur og venjulegir karlar og venjulega líkama, #dadbod mun ekki trenda ef að Dröfn og Hanna fá eitthvað um málið að segja.
Einnig, Robert Durst umfjöllun og real talk: Sex and the City er drasl. Já, við sögðum það.
P.s. þátturinn var tekin upp í Japan og Kópavogi. Svona rúllum við bara.
Bruce Jenner kom út sem kona fyrir alþjóð eins og frægt er orðið. Englarykskonur ræddu þetta fræga viðtal og veltu fyrir sér hvað tekur við.
Einnig ræddu vinkonurnar fráfall McDreamy og kynntu sér fornar Hollywood ástir en að fer ekkert á milli mála að Hollwood stjörnurnar eru alveg eins og krakkarnir á Kaffibarnum. Það hafa allir hafa verið með öllum.
Johnny Depp er týndur, Julian Assange hristir upp í Hollywood og Bobby Kristina er EKKI vöknuð.
Tími Hillary Clinton er loks komin. Fréttastofa Englaryks spáir Clinton sigri í forsetakosningum 2016. Justin Timberlake og „what‘s her face“ eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum. Drake sleik eða stóra sleikmálið er krufið til mergjar. Mjög þörf og brýn umræða.
Af einhverri ástæðu eru stelpurnar í Englaryk alltaf að tala um vísindakirkjuna og Tom Cruise Nýjustu fréttir herma að stórleikarinn hafi ekki sé Suri í heilt ár!
Vinkonurnar Hanna og Dröfn fara yfir stærstu lygasögurnar í Hollywood í tilefni af deginum og ræða meðal annars af hverju er hin ótímabæra frétt af andláti Beyoncé er svona þrálát? Hver er sannleikurinn bak við Richard Gere og hamsturinn? Og í þokkabók fá hlustendur exklúsíva sögu af Tom Cruise sem hefur hvergi annarsstaðar heyrst. Only for you my friend!
Hlustaðu ef þú trúir okkur ekki.
Englarykskonur eru hálfvængbrotnar í vikunni eftir að hafa þurft að fara í sitthvora áttina eftir dásamlega samveru í NYC.
Þær detta í lauflétta umfjöllun um Britney vinkonu sína, fjalla um meðferðarvesen stjarnanna í ljósi þess að legendið Liza Minelli skutlaði sér í meðferð í síðustu viku og margt, margt fleira. Smyrjið þessu í eyrun á ykkur.
Árshátíð Englarykskvenna fer fram í borginni sem sefur aldrei. Þátturinn var tekinn upp á hinum ýmsu stöðum í New York og er nokkurskonar óður til borgarinnar.
Í tilefni af eins árs afmæli Alvarpsins bjóða Englarykskonur upp á gómsætan þátt stútfullan af besta Hollywood-slúðrinu af tásusleikjurum, leigðum eiginkonum og klobbaskrímslum.
Stærsta tískusýning í heimi fór fram í borg englanna síðastliðinn sunnudag.
Stúlkurnar voru sammála að sumar leikkonurnar hefðu mátt ráða til sín kjólahvíslara áður en þær héldu á hátíðina. Farið yfir bestu og verstu kjólana, samfélagsmiðlaverkefnið #askhermore og drottninguna sjálfa Meryl Streep.
From the publisher's feed