
Sign up to save your podcasts
Or


She done already done had herses! Unnur og Lilja ræða 13. seríu af Rupauls Drag Race - uppáhalds drottningar, óvenjulega byrjunin og hver þær haldi að vinni. Eruði að horfa? Sendið okkur skoðanir og pælingar á @fantasiusvitan við viljum heyra allt!
Hvernig deit myndu stelpurnar skipuleggja ef þær væru framleiðendur í Bachelor? Plús nokkur round af r*ða, dr*epa, g*ftast. Sendið okkur ykkar svör!! @fantasiusvitan
Tónlistamaðurinn Huginn mætti í svítuna til Lilju og Unnar þessa vikuna. Spjallið fór um víðan völl en fyrir utan bachelor ræddu þau instagram kvíða, raunveruleika sjónvarp, raunveruleikann og rødgrød med fløde.
Jæja þá er serían (loksins?!) búin. Blöndum hér saman Finale og AFR þáttunum í örlítið lengri þætti en venjulega! Ástarsorg, átök og ákaflega mikilvæg umræða.
Kristín Pétursdóttir er gestur vikunnar. Stelpurnar ræddu Bachelor og það sem brennur á vörum allra þessa dagana, Harry og Meghan. Fóbíur, fordómar og fantasíur.
Michelle, Bri og Rachael áttu æðislega viku enda ekkert skemmtilegra en að deila fallega. Heimsókn, hafragrautur og helluð tár.
Drottningin af Ernulandi mætti í svítuna til þess að ræða það sem hún kann best, jákvæða líkamsímynd. Við skoðuðum að sjálfsögðu líka Bachelor og reyndum að átta okkur á hver væri ástæða þess að fitufordómar þrífist svona vel í samfélaginu okkar.
Stelpurnar eru mættar til að biðjast afsökunar og læra af hegðun sinni, naaaaat. Tullur, tár og týnda stelpan. Skál fyrir skegginu hans Matta og fyrir okkur öll sem komumst í gegnum þennan þátt.
Þá er komið að því að fá drottningu raunveruleikasjónvarps í svítuna! EVA RUZA gott fólk. Hver er líklegust til þess að sigra hjarta Matta? Hvaða pör eru uppáhalds? Hvar endar WTA þátturinn? Þetta og svo margt fleira í þessum frábæra gestaþætti!
From the publisher's feed