
Sign up to save your podcasts
Or


Já það kom að því að þátturinn mætti á veiturnar! Home towns og svítur stappað saman í einn klukkutíma þátt, enda getum við öll verið sammála um að home towns eru eiginlega tímaeyðsla!
Já hann losnar ekki við okkur hann Hugi og mætti að þessu sinni færandi hendi með rósavín handa skvísunum svo bæði röflið, hlátursköstin og athyglisbresturinn eru á nýju áður óséðu stigi í þessum þætti! Fórum yfir Love Island seríuna, notkun á augnkremi, Adele, frægt fólk á instagram, crossfit og fótbolta svo eitthvað sé nefnt!
Já það er vika 5 og einhvernvegin er home towns strax í næstu viku? Hvað er að eiga sér stað? Allavega 4 deit og nóg að gerast!
Lilja fékk til sín Fjólu og Þorbjörgu í spjall um Casa week! Þátturinn er að koma inn óþarflega seint, enda ykkar kona svo gleymin að hún man almennt ekki hvað hún heitir. Betra seint en aldrei sagði einhver!
Vika fjögur og alltí einu nánast engir menn eftir!? Hvað er að eiga sér stað þarna í US and A? En allavega þá er allt í blússandi gangi hjá okkar konu Charity og vinkonurnar spenntar fyrir seríunni, það gerist nú ekki á hverjum degi.
Það er komið að þriðju viku í þessari seríu og hamingjan góða, serían lofar góðu! Barbie the Movie placement eins og þær gerast bestar og einn vel óþolandi gaslýsari sem mætti senda heim okkar vegna.
Það er þáttur af Bachelorett. Vika 2 og hingað eru komnir óþarflega miklir bjánar ef þið spyrjið okkur. Við vinkonurnar höfum óþarflega miklar skoðanir eins og oft áður. En við höfum fulla trú á að serían lifni við í næsta þætti.
Þær eru mættar, ykkar allra uppáhalds Jóna og Lilja með fyrsta þátt af nýrri Bachelorette seríu! WHOOP!
Úff púff það er svo mikið að gerast á ástareyjunni að við getum ekki haldið okkur frá stúdíóinu! Það þarf bara að ræða þetta. Í þessum þætti er farið yfir þætti til og með 25.
Lilja fékk Huga aftur í svítuna til þess að halda aðeins áfram að ræða Love Island.
Farið yfir þætti 17-21, alltof langur þáttur fyrir svona lítið efni, en hvað getum við sagt þau gátu talað nóg. Hversu þreytandi er Medih? Er Sammie síðasta sort? Afhverju er Mitch svona despó? Þetta og svo ótrúlega margt fleira í þessum auka Love Island rant þætti.
From the publisher's feed