
Sign up to save your podcasts
Or


Þið höfðuð margar spurningar eftir síðasta þátt og við erum komin hingað til að svara þeim í sérstökum aukaþætti! Ég spurði Kareni algengustu spurninganna og svo hringdum við í hennar nánustu til að svara hinum. Binni Glee, Patrekur Jaime, Begga og Linda mamma Karenar svara ykkar spurningum og segja okkur frá þeirra upplifun á þessu öllu saman.
Endilega subscribeið/followið og deilið!
IG: @katavignis @karenhrund @binniglee @patrekurjamie @bergdishanna
Karen Hrund vakti mikla athygli árið 2017 þegar að hún varð ólétt 14 ára og eignaðist barn 15 ára. Nokkrum mánuðum eftir að hún átti strákinn sinn varð Karen aftur ólétt og ákvað þá að fara í þungunarrof. Við töluðum um fordómana sem að fylgdu því, slæma líkamsímynd, djammið, double standards og margt fleira. Síðan sagði Karen mér einnig frá því lingóinu sem að vinahópurinn notar og ég verð að segja að það er lowkey slay. Hlustið, njótið og deilið.
Endilega subscribeið!
IG: @katavignis og @karenhrund
Júlía Grønvaldt listrænn stjórnandi, stílisti og tískugúrú kom í spjall og í eitt augnablik leið mér eins og ég væri orðin Meryl Streep í The Devil Wears Prada. Síðan tók blákaldur raunveruleikinn við þegar að Júlía sagði mér afhverju við ættum ekki að versla í H&M á meðan að ég sat á móti henni með galopinn munn klædd eins og ég hefði verið klippt úr vor bæklingi H&M.
IG: @katavignis & @juliagronvaldt
Rakel Hinriks dagskrágerðarkona, grafískur hönnuður, verkefnastjóri og almennur snillingur kíkti í kaffi þar sem ég er loksins búin að læra á kaffivélina. Nú er ekkert sem að stoppar mig! Rakel sagði mér frá námsárunum hennar í Bandaríkjunum, hvernig hún landaði vinnu í Danmörku og því hvernig hún flutti síðan aftur til Akureyrar og byrjaði að vinna á sjónvarpsstöðinni N4. Hún sagði mér svo auðvitað söguna af því hvernig mamma hennar endaði einn góðan veður dag á því að líta út eins og reytt hæna, þið viljið ekki missa af þeirri sögu - trúið mér. Rakel er með aðdáunarvert viðhorf til lífsins, tekur einn dag í einu sem hefur svo sannarlega komið henni langt!
Takk kærlega fyrir að hlusta, munið að subscribea!
IG: @katavignis & @rakelhinriks
Hjalti Rúnar leikari, ljúflingur og stórsnillingur mætti í spjall og fékk vatn að drekka þar sem að ég er ennþá að læra á kaffivélina, fimm þáttum síðar. Hjalti opnaði sig um samband sitt og fjölskyldu sinnar við áfengi, hvernig meðferð hafði áhrif á líf hans og hvernig hann náði stjórn á neyslu sinni. Við tókum einnig hreinskilið spjall um vangaveltur okkar varðandi það að karlar séu almennt ekki jafn virkir í því og konur að berjast gegn kynferðislegri áreitni. Af hverju eru konur mestmegnis að berjast fyrir réttlæti einar og hvað þarf að gera til að fleiri karlmenn láti í sér heyra?
p.s af hverju hafa allir sem búa úti á landi æft frjálsar á einum tímapunkti eða öðrum?
IG: @katavignis & @hjalti31
Munið að subscribea og endilega deila þættinum áfram!
Ari Ólafs Eurovisionfari og drauma tengdasonur okkar íslendinga mætti eldhress í spjall. Hann sagði mér frá versta gigginu sínu sem að var í Ísrael á túr fyrir Eurovision og öllu brjálæðinu sem að fylgdi því. Einnig opnaði Ari sig um kvíða og hvernig honum finnst best að díla við hann. Drengurinn er frábær, njótið vel!
IG: @katavignis & @ari_olafsson
Alda Karen fyrirlesari, framkvæmdastjóri, rithöfundur, fyrirtækjaeigandi og ofurkona kom í stórskemmtilegt spjall. Við töluðum um hvað við erum í raun öll bara lítil peð sem skipta engu máli, hlutverkaskiptingar í samkynhneigðum vs. gagnkynhneigðum samböndum, hvað það er mikilvægt að vera með fake aðstoðarmenn og margt fleira. Njótið vel!
IG: @katavignis & @aldakarenh
Ingi Torfi atvinnu peppari og macros kóngur kom í stúdíóið til að leggja okkur hinum línurnar. Nei reyndar ekki en Ingi er hins vegar með fáránlega peppandi og góða nærveru sem að smitar út frá sér. Hann er frumkvöðulinn sem var 16 ár í sömu vinnu eins og hann orðaði svo skemmtilega sjálfur og sagði mér frá því hvernig hann sagði upp vinnunni sinni og stofnaði drauma fyrirtækið í miðjum heimsfaraldri. Við spjölluðum einnig um tímann þegar að hann bjó í Afríku sem unglingur, hvernig macros lífstílinn hefur áhrif á líkamann okkar en ekki síður áhrif á sálina og hvað það er ótrúlega mikilvægt að kunna að meta litlu hlutina í lífinu. Ingi er pepparinn sem að þú vissir ekki að þú þyrftir í líf þitt, njótið vel!
IG: @katavignis & @ingitorfi
Þórdís Björk leik og söngkona kíkti í stúdíóið til mín en hún er búsett á Akureyri þessa dagana. Við spjölluðum um hvernig það er að fá mikið hate á netinu og hvernig það getur haft áhrif á andleg líðan, stóra Raufarhafnar málið, Reykjavíkurdætur, hvernig það er að vera leikin í skaupinu, leiklistarferilinn, Eurovision og margt fleira!
IG: @katavignis & @thordisbjork
Stef: Jóhannes Ágúst
Mynd: Unnur Anna Árnadóttir
Króli er búsettur á Akureyri á meðan að hann leikur Tóta tannálf í söngleiknum um Benedikt Búálf. Við töluðum m.a. um hvernig það væri að vera bæði lögfræðingur og bakari, andleg líðan og hvernig það er að vera 20 og eitthvað í tilvistarkreppu!
IG: @katavignis & @kiddioli
From the publisher's feed

92 Listeners

29 Listeners

6 Listeners

2 Listeners