Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Tveir miðaldra menn í tilvistarkreppu með fortiðarþrá röfla ofan í hvorn annan án árangurs og tilgangs. Vinsamlega ekki hlusta. Hosted on Acast. See ... more
FAQs about Fílabeinsturninn:How many episodes does Fílabeinsturninn have?The podcast currently has 178 episodes available.
August 06, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 48Þjóðhátíðarþáttur Fílabeinsturnsins er tekinn upp árla morguns í hvítu tjaldi á Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Okkar leið til að finna tilgang í endaleysu hversdagsleikans og til að halda öðrum stjórnanda þáttarins þurrum allavega einn dag af þremur. Allt þetta fyrir ekki neitt. Tene here we come. Góðar stundir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more1h 35minPlay
July 30, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 47Í þeirri staðföstu trú okkar um sérstöðu hvers og eins liggur sú hugsunarvilla að engin er sérstakur. Okkar hugsanir, tilfinningar, vonir, vonbrigði, lausnir, vandamál, sjálfshól, sjálfsgagnrýni og svo framvegis er ekkert sem einhver önnur manneskja hefur ekki upplifað. Við erum hjörð án hirðis, ráfandi um í leit af einhverju sem engin veit. Enda er það ferðalagið en ekki endastöðin sem skiptir máli. En ef ferðalagið er á forsendum einhvers annars en þess er stjórnar för? Er ferðalagið þá til einskis eða er heilalaus hugsun auðvelda leiðin út? Hjarðhugsun er leiðin að endastöð glötunar. Á hvað leið ert þú. Góðar stundir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more1h 44minPlay
July 16, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 46Þráin fyrir meira af jákvæðri upplifun felur í sér neikvæða upplifun. Og svo þversögnin að sætta sig við neikvæða upplifun er í sjálfum sér jákvæð upplifun. Til einföldunar: Að vilja jákvæða upplifun er neikvæð upplifun, að sætta sig við neikvæða upplifun er jákvæð upplifun. Góðar stundir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more2h 6minPlay
July 02, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 45Hvernig skilgreinum við okkur gagnvart öðru fólki. Er okkar helsti ótti að uppljóstra okkar ófullkomnun öðru fólki. 66% af því sem þú lest er lygi,50% af því sem þú sérð er lygi. Tilgangur samfélagsmiðla er að láta öðrum líða illa. Óöryggi okkar spyr afhverju er ég ekki í útlöndum eins og allir hinir, þegar staðreyndin er sú að fólkinu í útlöndum líður lang best þegar það keyrir í hlað heima hjá sér. Afhverju var mér ekki boðið í þetta afmæli eins og öllum öðrum, þegar raunin er sú að það eru fleiri sem afboðuðu en fjöldi þeirra sem mættu í afmælið. Þú ert ekki að missa af neinu, þú ert líklega búin að gera þetta hundrað sinnum áður, og hvað er svona gaman við hundraðastaogfyrstaskiptið...ekkert. Þakkaðu frekar öllu þessu fólki fyrir að sýna þér hvernig Ground hog day virkar. Orðatiltækið "lífið er núna" á aldrei meira við en þegar þú ert með sjálfum þér og hlustar á þögnina. Tene, afmæli eða annarskoðar viðburðir eru frávik frá þínu eðlilega lífi sem er einmitt núna. Góðar stundir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more1h 48minPlay
June 18, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 44Sumarið er tíminn söng Bubbi forðum og en í dag er fortíðarþrá okkar Íslendinga að éta okkur innanfrá. Eitt lélegasta lag Bubba er okkar sumarþjóðsöngur. Hin endalausa endurtekning mun vonandi leiða okkur til glötunar. Hvað næst? kannski goslokahátíð og svo þjóðhátíð og svo vetrarfrí og svo jólafrí og svo páskafrí og svo goslokahátíð og svo þjóðhátíð og svo og svo og svo.Við endurtökum og við endurtökum. Við endum. Góðar stundir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more1h 43minPlay
June 04, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 43Að dansa með skrílnum er ekki yfirskrift Fílabeinsturnsins. Að jánka allri þeirri vitleysu sem virðist vera að ganga í samfélaginu er ekki það sem Fílabeinsturninn stendur fyrir. Að vorkenna fólki sem grenjar yfir einu og öllu er ekki hlutverk Fílabeinsturnsins. Að vinna með meðvirkni er Fílabeinsturninum fjarri lagi. Fílabeinsturninn gerir. segir og framkvæmir nákvæmlega það sem honum sýnist. Ef þér líkar það illa þá er Fílabeinsturninum drull, Fílabeinsturninum er drull um þínar tilfinningar. Góðar stundir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more1h 33minPlay
May 21, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 42Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi. Tilgangur í tilgangsleysu hversdagsins. Hvert er stefnt og hvers vegna. Eftir höfðinu dansa limirnir. En vill höfuðið dansa og hver er tilgangur þess. Engu skal svara og engu skal svara. Góðar stundir RPC https://youtu.be/D3s2oGrkrWc Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more1h 53minPlay
May 07, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 41Þáttur 41 og allt er reynt til að fá þættinum slaufað. Er enginn PC að hlusta! Vitum ekki alveg hvort það eru svona fáir að hlusta eða að þetta sé svo gaman að enginn vilji slaufa. Hvernig sem fer þá fer þetta. Við erum stanslaust í hrópandi mótsögn við okkur sjálf. Um leið og þú kallar einhvern fávita er einhver annar að segja að þú sér fávitinn. Loftslagsvá, stríðsrekstur. kansell kúltúr og allt hitt er eingöngu til að linna þjáningar hins venjulega lífs. It is better to feel pain then nothing at all! Góðar stundir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more1h 47minPlay
April 23, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 40Í 40. þættinum fer Fílabeinsturninn á ævintýraferð um hugarheim þáttastjórnenda, þar sem þáttastjórnendur skoða skringilegt samhengi milli þáttatölu og lífsaldurs. Þeir spyrja hvort þeir þurfi að skella sér í skotgrafirnar til að ná 100. þætti áður en tíminn skellur þeim ofan í gröfina. Þátturinn skartar skærum spurningum, óþarfa hugtökum og óhefðbundnum athugasemdum, auk þess að rýna í stöðu Litla blóms í alheiminum. Eitt er víst: þú munt hlusta á spjall og sinnulegar athugasemdir sem skera sig í gegnum þoku blekkingar sem skýla lífi okkar.Tak þú þátt í þessari dásamlegu ferð, og gleymdu ekki að njóta góðra stunda. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more1h 55minPlay
April 09, 2023Fílabeinsturninn Þáttur 39Þrátt fyrir margar ábendingar um á þátturinn sé of langur var slegið í lengsta þátt í sögu Fílabeinsturnsins. Líkleg ástæða er sú að Fílabeinsbræður voru ekki búnir að hittast í heila og samfellda 48 klukkutíma. Fyrir vikið var málgleðin svo mikil að það var varla hægt að stöðva. Önnur ástæða getur líka verið að vegna þess að okkur hefur verið bent á að þátturinn sé of langur að þá sé bara bætt í. Viljum við vekja athygli á því að það er hægt að hrað þættinum á öllum þeim veitum sem hann er hýstur. Einnig viljum við vekja athygli á því að ef að einhver framkvæmd er óumdeild þá er sú sama dauðadæmd frá upphafi. Góðar stundir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more1h 56minPlay
FAQs about Fílabeinsturninn:How many episodes does Fílabeinsturninn have?The podcast currently has 178 episodes available.