
Sign up to save your podcasts
Or


Who Moved My Cheese eftir Spencer Johnson kom út árið 1998 og er ein vinsælasta stjórnenda- og fyrirtækjabók allra tíma og hefur frá því hún kom út selst í tæplega 30 milljónum eintaka. Bókin var á tímabili mest selda bókin á Amazon.com og hefur verið þýdd á ótal tungumál.
Ein helsta ástæðan fyrir því að fyrirtæki breytast ekki hraðar en þau gera er að það er of mikið af fólki sem berst gegn breytingum. Frábær bók fyrir þá sem glíma við breytingar á vinnustaðnum eða heima fyrir. Læra að takast á við hræðslu og finna leið til að nálgast markmiðin sín.
Bókina er hægt að kaupa á:
Amazon
Audible
Anything You Want: 40 Lessons for a New Kind of Entrepreneur, eftir Derek Sivers kom út árið 2015. Kolbeinn ræðir í þessum þætti efni bókarinnar og fer yfir eitthvað af þeim 40 ráðum sem Sivers punktaði niður eftir að hafa stofnað fyrirtækið CDbaby.com árið 1998.
En Sivers seldi fyrirtækið 2008 fyrir 20 milljónir $ og setti alla peningana í góðgerðarmál.
Lykilpunktar úr bókinni:
Hægt er að kaupa bókina á Amazon UK
Og það er hægt að hlusta á hljóðbók lesna af höfundi á Audible
Beermat Entrepreneur kom út árið 2002 og er eftir Meke Southon, frumkvöðul sem komið hefur að stofnun fjölda fyrirtækja sem hafa langt. Í bókinni er fjallað um hvað einkennir frumkvöðla, hvað drífur þá áfram og hvaða fimm stöður þurfa að vera rétt mannaðar til að fyrirtækið nái flugi, Síðan eru hin þrjú stig fyrirtækisins skoðuð og rædd frá því að fyrirtækið er sproti eða fræ þangað til það er orðið eikartré.
The 4 hour work week kom út árið 2007 og er skrifuð af Tim Ferris.
Bókina má vel kalla sjálfshjálparbók en tilgangur hennar er að hjálpa lesendum að hanna líf sitt og einfalda með það að lokamarkmiði að fara vel með það dýrmætasta sem við öll eigum sem er tími okkar. Ferris sýnir með dæmum að hin hefðbundna leið til starfsframa og sóun á tíma er alls ekki sú eina rétta. Öll dreymir okkur að verða rík. En ríkidæmið í draumum okkar snýst oftast um að við eigum nóg af tíma í að gera allt það sem okkur langar til að gera. Ferriss segir að alltof oft bíðum við þangað til við hættum að vinna til að ná þeim draumum og við getum vel tekið okkur löng frí, unnið í fjarvinnu og flutt til annara landa og látið drauma okkar rætast.
Með því að hámarka afköst og einblína á styrkleika okkar getum við skapað meiri tíma fyrir okkur sjálf og um leið orðið raunverulega rík.
Bók þessi hefur verið þýdd á um 40 tungumál og selst í yfir 2 milljónum eintaka.
Tim Ferriss er í dag heimsfrægur og er hægt að lesa meira um hann hér.
Bókina er hægt að kaupa á Amazon sem harðspjaldabók eða kindle
Auk þess er hana að finna á Audible sem hljóðbók.
Raving Fans er skrifuð af Ken Blanchard og Sheldon Bowles sem hafa selt meira en 12 milljónir eintök af bókunum sínum á tuttugu og fimm tungumálum.
Í bókinni nota höfundarnir frábær dæmi og skemmtilegan söguþráð til að útskýra hvernig skapa á framtíðarsýn, skilja hvað viðskiptavinurinn er nákvæmlega að leita eftir, mikilvægi ferla og hvernig veita á þjónustuupplifun sem breytir viðskiptavinum í aðdáendur.
Bókin er auðlesin, aðeins 137 blaðsíður og kom fyrst út árið 1993.
From the publisher's feed