Flækjusagan

Flækjusagan

Download on the App Store

All Flækjusagan episodes

  • #45 Þegar Tékkóslóvakía var myrt
    Illugi Jökulsson reynir ekki einu sinni að draga fjöður yfir hvað honum finnst Úkraínumálið núna svipað haustinu 1938 þegar Adolf Hitler þóttist þurfa að „vernda“ þýska íbúa Súdetalanda.
    14 min
  • #44 Þegar Tyrkland var að hverfa
    Illugi Jökulsson rifjar upp vel þekktan atburð frá árinu 1920, en þá var framtíð Tyrklands mjög óráðin eftir fyrri heimsstyrjöldina. Það munaði furðulega litlu að þetta stóra land yrði limað alveg sundur.
    12 min
  • #41 Fórnuðu Karþagómenn virkilega börnum?
    Illugi Jökulsson "hélt alltaf" með Karþagómönnum í styrjöldum þeirra við Rómverja, þótt stuðningurinn hafi komið meira en 2.000 árum of seint. Og hann hefur alltaf fussað yfir áróðri Rómverja um grimmilegar mannfórnir fjenda þeirra.
    12 min
  • #40 Stríð í þúsund daga
    Illugi Jökulsson fór að skoða hverjir væru fyrirmyndirnar að uppáhaldspersónu hans í uppáhaldsskáldsögu hans, Hundrað ára einsemd eftir García Márquez.
    13 min
  • #38 Rússland III: Hefði Trotskí endað í Berlín?
    Ill­ugi Jök­uls­son hef­ur í und­an­förn­um flækj­u­sög­um ver­ið að kanna hvað hæft sér í þeirri þjóð­sögu, sem Rúss­ar og stuðn­ings­menn þeirra halda gjarn­an fram, að Rúss­ar hafi sí­fellt og ein­lægt mátt þola grimm­ar inn­rás­ir úr vestri og Vest­ur­lönd hafi alltaf vilj­að þeim illt.
    17 min
  • #37 Rússland II: Eiga Rússar voða bágt?
    Í síðasta þætti hóf Illugi Jökulsson að kanna styrjaldarsögu Rússlands til að vita hvað sé hæft í þeirri trú margra Rússa að land þeirra hafi sífellt sætt grimmum árásum frá erlendum ríkjum, ekki síst Vesturlöndum. Því sé eðlilegt að þeir fái að hafa Úkraínu sem „stuðpúða“ gegn hinni miskunnarlausu ásælni vestrænna stórvelda. Í síðasta þætti höfðu ekki fundist slík dæmi, því oftar en ekki voru það Rússar sem sóttu fram en vörðust ei. En í frásögninni var komið fram á 19. öld.
    15 min