Fólkið í garðinum

Fólkið í garðinum

By RÚVArts
Download on the App Store

Fólkið í garðinum episodes

  • Tíundi þáttur
    Í þessum þætti er staldrað við leiði Hannesar Hafstein (1861-1922) og systur hans Þórunnar Jónassen Hafstein (1850-1922).
    41 min
  • Níundi þáttur
    Í þessum þætti er staldrað við leiði Valgerðar Jónsdóttur (1771-1856) biskupsfrú og sonarsonar hennar, þjóðskáldsins Steingríms Thorsteinssonar (1831-1913).
    Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir
    41 min
  • Áttundi þáttur
    Í þessum þætti er staldrað við leiði skáldanna Þorsteins Erlingssonar (1858-1914) og Ólafar Sigurðardóttur frá Hlöðum (1857-1933).
    Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
    42 min
  • Sjöundi þáttur
    Í þessum þætti er staldrað við leiði Jóns Borgfirðings (1826-1912) og dóttur hans Guðrúnar Borgfjörð (1856-1930).
    Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir
    44 min
  • Sjötti þáttur
    Í þessum þætti er staldrað við leiði tveggja merkiskvenna sem báðar störfuðu við Kvennaskólann í Reykjavík á hans upphafsárum, um ræðir Þóru Melsteð (1823-1919) sem stofnaði skólann ásamt eiginmanni sínum og Ingibjörgu H. Bjarnason (1867-1941) sem starfaði náið með Þóru og tók við stjórnartaumunum við andlát hennar, áður en hún tók sæti á alþingi fyrst íslenskra kvenna.
    Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
    41 min
  • Fimmti þáttur
    Í þessum þætti er staldrað við legsteina tveggja skálda sem standa hlið við hlið við aðalinngang kirkjugarðisins Suðurgötumeginn. Rímnaskáldið Sigurð Breiðfjörð (1798-1846) kannast flestir við og er saga hans mjög skrautleg en við hlið hans er legsteinn annars skálds sem var uppi töluvert seinna en hann en var að eigin ósk grafinn við hlið Sigurðar. Jóhann Gunnar Sigurðsson (1882-1906) lést aðeins 24 ára gamall en náði á skammri ævi að yrkja mörg úrvalsljóð sem hafa haldið nafni hans á lofti.
    Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir
    41 min
  • Fjórði þáttur
    Í þessum þætti er staldrað við leiði systkinanna Benedikts Sveinssonar (1826-1899) alþingismanns og Þorbjargar Sveinsdóttur (1827-1903) ljósmóður. Bæði voru þau afar virk í stjórnmálaumræðunni á sínum tíma, Benedikt var af mörgum álitinn arftaki Jóns Sigurðssonar í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga en Þorbjörg stóð honum þétt að baki og þótti ekki síður áhrifamikil en bróðir hennar. Þorbjörg stofnaði einnig Hið íslenzka kvenfélag ásamt Ólafíu fósturdóttur sinni árið árið 1894.
    Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
    42 min
  • Þriðji þáttur
    Í þessum þætti er staldrað við leiði tvíburasystra sem hvíla í sitthvorum enda garðsins. Skáldkonurnar Herdís Andrésdóttir (1858-1939) og Ólína Andrésdóttir (1858-1935) voru fæddar í Flatey á Breiðafirði en aðskildar 4 ára gamlar. Leiðir þeirra lágu ekki aftur saman fyrr en mörgum áratugum síðar, þegar þær voru að nálgast sextugt og fluttar til Reykjavíkur. Höfðu þær þá báðar fengist við kveðskap og gáfu saman út ljóðabók nokkrum árum seinna sem hlaut afbragðs góðar viðtökur.
    Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
    41 min
  • Annar þáttur
    Í þessum þætti er staldrað við tvö leiði sem skammt er á milli og sjást nokkuð vel þegar gengið er framhjá kirkjugarðinum eftir Suðurgötunni. Þau tilheyra feðgunum Sveinbirni Egilssyni (1791-1852) og Benedikt Gröndal (1826-1907) en báðir voru þeir skáld. Sveinbjörn er fyrst og fremst þekktur fyrir þýðingar sínar úr grísku og latínu, sem og barnavísurnar sínar, til dæmis ?Fljúga hvítu fiðrildin? og auðvitað sem fyrsti rektor Menntaskólans í Reykjavík. Benedikt lagði, auk ritstarfa, stund á náttúrurannsóknir og myndlist en sjálfsævisaga hans, Dægradvöl, er líklega hans þekktasta verk og þar er að finna óborganlegar lýsingar skáldsins á umhverfi sínu, sjálfum sér og samferðafólki.
    Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
    41 min
  • Fyrsti þáttur
    Í þessum þætti segir frá Guðrúnu Oddsdóttur (1779-1838), vökukonu garðsins og Sveinbirni Sveinbjörnssyni (1847-1927) tónskáldi. Sagt er meðal annars frá því hvernig þau tvö tengdust og valin atriði dregin fram sem veita ákveðna innsýn í líf þeirra.
    Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
    40 min

About Fólkið í garðinum

From the publisher's feed

Sagt er frá einstaka fólki sem jarðsett er Hólavallagarði, gamla kirkugarðinum við Suðurgötu. Í hverjum þætti er staldrað við tvö leiði og rakin ævi þeirra sem þar hvíla.

More shows like Fólkið í garðinum

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners