Share Fortuna Invest
Share to email
Share to Facebook
Share to X
By Fortuna Invest
The podcast currently has 20 episodes available.
Í þessum þætti fáum við Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur til okkar í spjall. Hún er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, hún tók við því starfi árið 2021 en hún starfaði áður hjá Landsbankanum frá árinu 2010 þar sem hún gegndi stöðu framkvæmdastjóra eignastýringar og miðlunar.
Hún er einn stofnaðila IcelandSIF og situr hefur setið í fjölda stjórna innanlands og erlendis og situr nú í stjórn Stefnis svo dæmi séu tekin.
Þátturinn er í boði:
Joe & the Juice - Tilboð alla miðvikudaga af djús og samloku!
Nettó - Með Nettó appinu færð þú 2% af öllum kaupum í formi inneignar sem síðan er hægt að nota til þess að versla.
World Class - Allir korthafar fá afslátt í spa og dekurmeðferðir.
Duck and Rose - Hægt að fá dýrindis brunch alla daga, ekki bara um helgar!
Í þessum þætti fáum við Jón Guðna Ómarsson sem tók nýlega við sem bankastjóri Íslandsbanka og fékk ekki langan umhugsunartíma þegar honum var boðið að taka við starfinu. Jón Guðni, eða Nonni eins og hann er stundum kallaður, er menntaður fjármálaverkfræðingur frá Georgia Institute of Technology. Hann hefur starfað hjá Íslandsbanka og forverum hans frá árinu 2000. Við ræðum við hann um starfið, fyrri tíð og veturinn framundan.
Þátturinn er í boði:
Joe & the Juice - Tilboð alla miðvikudaga af djús og samloku!
Nettó - Með Nettó appinu færð þú 2% af öllum kaupum í formi inneignar sem síðan er hægt að nota til þess að versla.
World Class - Allir korthafar fá afslátt í spa og dekurmeðferðir.
Keldan - Öflugasta tólið til að fylgjast með markaðinum, hlutabréfaverði, ávöxtun verðbréfa og lífeyrissjóða og svo mörgu öðru.
Í þessum þætti fáum við Guðbjörgu Heiðu til okkar, en hún tók nýlega við sem forstjóri tryggingafélagsins Varðar. Guðbjörg starfaði áður hjá Marel í rúman áratug, síðast sem framkvæmdastjóri fiskiðnaðar og framkvæmdastjóri Marel á Íslandi en áður leiddi hún vöruþróunarteymi Marel á Íslandi og í Bretland.
Við ræðum meðal annars ferilinn, gildi í lífinu, fjármálalæsi og fáum góð ráð frá þessari mögnuðu konu.
Þátturinn er í boði:
Duck and Rose - Fiskur dagsins í hádeginu alla virka daga á 2.990 kr. og spennandi nýr matseðill fór í gang 10.10.23.
FLM - Greiðir 0,05% af launum þínum mánaðarlega og færð aðgang að sjúkrasjóði.
Sigríður Margrét, eða Sigga Magga eins og hún er yfirleitt kölluð, hefur starfað sem framkvæmdastjóri og forstjóri íslenskra fyrirtækja í tæp tuttugu ár, meðal annars hjá upplýsingafyrirtækinu Já og nú síðast starfaði hún sem forstjóri Lyfju. Hún hefur einnig setið í mörgum stjórnum meðal annars stjórn Samtaka Atvinnulífsins, Viðskiptaráðs Íslands, Já og Bláa lónsins svo fátt eitt sé nefnt.
Sigga Magga tók við sem framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins í byrjun september, en ráðning hennar er söguleg þar sem hún verður fyrsta konan sem mun gegna þeirri stöðu. Hún hefur sýnt það vel í verki að hún skorast ekki undan áskorunum en framundan bíður hennar krefjandi verkefni að semja um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.
Við áttum virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall við Sigríði þar sem við ræðum meðal annars komandi kjaraviðræður, efnahagsumhverfið, húsnæðismarkaðinn, lyfjabransann og starfsferilinn.
Þátturinn er í boði:
Duck and Rose - Fiskur dagsins í hádeginu alla virka daga á 2.990 kr. og spennandi nýr matseðill fór í gang 10.10.23.
FLM - Greiðir 0,05% af launum þínum mánaðarlega og færð aðgang að sjúkrasjóði.
Swapp Agency - Einfaldar utanumhald starfsfólks í fjarvinnu í öðrum löndum.
Í þessum þætti fáum við Helgu Valfells til okkar en hún er ein stofnenda Crowberry Capital, sem er vísisjóður sem fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum.
Við ræðum feril Helgu sem hefur komið víða við en hún hefur verið viðloðandi nýsköpunarsenuna og fjárfestingar í henni í rúm 20 ár.
Þátturinn er í boði:
Duck and Rose - Fiskur dagsins í hádeginu alla virka daga á 2.990 kr. og spennandi nýr matseðill fór í gang 10.10.23.
FLM - Greiðir 0,05% af launum þínum mánaðarlega og færð aðgang að sjúkrasjóði.
Swapp Agency - Einfaldar utanumhald starfsfólks í fjarvinnu í öðrum löndum.
Í þessum þætti fáum við Ármann Þorvaldsson til okkar en hann er nýtekinn við sem forstjóri Kviku banka á nýjan leik en hann sinnti einnig forstjórastarfinu á árunum 2017-19.
Ármann er menntaður sagnfræðingur með MBA gráðu frá Boston University. Hann starfaði hjá Kaupþingi á Íslandi og London í rúman áratug og starfaði svo sem framkvæmdastjóri Ortus Secured Finance í London þar til hann flutti heim og tók við sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Virðingar sem síðar varð hluti af Kviku banka árið 2017 þegar Ármann tók við sem forstjóri Kviku. Hann gaf einnig út bókina Ævintýraeyjuna árið 2009 sem við mælum mikið með að lesa.
Þátturinn er í boði:
Félag lykilmanna - Greiðir 0,05% af launum þínum mánaðarlega og færð aðgang að sjúkrasjóði.
Keldan - Öflugasta tólið til að fylgjast með markaðinum, hlutabréfaverði, ávöxtun verðbréfa og lífeyrissjóða og svo mörgu öðru.
Í þessum þætti fáum við Tönyu Zharov til okkar í spjall, en hún er aðstoðarforstjóri Alvotech, sem er verðmætasta fyrirtækið í Kauphöll í dag.
Hún var áður aðstoðarforstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og er stofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Auðar Capital. Tanya hefur setið í stjórnum fyrirtækja Sýnar, Íslandssjóða, Orf Líftækni (framleiðir meðal annars Bio Effect vörurnar) og Carbon Recyling, svo eitthvað sé nefnt.
Þátturinn er í boði:
Félag lykilmanna - Greiðir 0,05% af launum þínum mánaðarlega og færð aðgang að sjúkrasjóði.
Í þessum fyrsta þætti af annarri seríu fáum við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka, til okkar í viðtal.
The podcast currently has 20 episodes available.
224 Listeners
131 Listeners
22 Listeners
6 Listeners