Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • HM hringborðið - Allt í efsta stigi á mótinu hans Messi
    Síðasta HM hringborðið! Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Laufdal gera upp stórkostlegan úrslitaleik HM.
    Lionel Messi lyfti heimsmeistarabikarnum eftir sigur Argentínu í hreint rosalegum úrslitaleik, skemmtilegasta úrslitaleik sögunnar.
    Rætt er um leikinn, þetta svakalega argentínska lið, Guðmundur velur sitt úrvalslið mótsins og Arnar fimm bestu ungstirni mótsins.
    1 hr 4 min
  • Útvarpsþátturinn - Úrvalslið HM og Birkir Már um Messi og Mbappe
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 17. desember.
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðveri X977 á Suðurlandsbraut og Tómas Þór beintengdur frá hljóðveri DR í Kóngsins Kaupmannahöfn.
    Hitað er upp fyrir úrslitaleik HM, úrvalslið mótsins valið, HM leikmenn sendir í ensku úrvalsdeildina og Birkir Már Sævarsson er á línunni. Birkir Már þekkir það að mæta bæði Argentínu og Frakklandi. Hvort er erfiðara að mæta Messi eða Mbappe?
    Síðasti þáttur fyrir jól. Gleðilega hátíð!
    1 hr 19 min
  • Arnar útskýrir landsliðsvalið - Einn í viðbót valinn
    Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tilkynnti í dag 22 leikmenn sem verða í landsliðshópnum í janúar þegar spilað verður við Svíþjóð og Eistlandi á Algarve í Portúgal.
    Tveir nýliðar eru í hópnum, það eru þeir Aron Bjarnason og Nökkvi Þeyr Þórisson. Aron Sigurðarson er þá í hópnum í fyrsta sinn síðan í janúar 2018. Fótbolti.net ræddi við landsliðsþjálfarann í dag og spurði hann sérstaklega út í þessa þrjá leikmenn auk þess sem spurt var út í yngsta leikmann hópsins, Danijel Dejan Djuric.
    23. leikmaðurinn verður svo tilkynntur síðar. „Við erum að bíða eftir svari frá nokkrum klúbbum," sagði Arnar um 23. manninn í viðtalinu.
    Arnar kom inn á að sum félög á Norðurlöndunum hefðu ekki hleypt leikmönnum sínum í verkefnið. Hann fór yfir janúarverkefnið, valið á hópnum, ræddi um landsliðsárið 2022 og ýmislegt annað í viðtalinu sem má nálgast í spilaranum hér að ofan, á Spotify og öllum hlaðvarpsveitum.
    23 min
  • HM hringborðið - Þeir bestu leika til úrslita
    Undanúrslitin á HM í Katar eru gerð upp við HM hringborðið. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðverinu með tvo góða gesti:
    Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðs Íslands er HM sérfræðingur okkar og Óðinn Svan Óðinsson, frétta- og íþróttafréttamaður RÚV, er einnig við hringborðið.
    Heimsmeistararnir lögðu Marokkómenn sem geta þó borið höfuðið afskaplega hátt. Messi hefur verið besti maður mótsins og mun berjast við Mbappe í úrslitaleiknum á sunnudag.
    52 min
  • HM hringborðið - Englendingar komnir heim og Ronaldo grét
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fara yfir allt það helsta frá HM í Katar.
    Lukkan var með Frökkum sem sendu Englendinga heim, Southgate íhugar að hætta, Ronaldo grét þegar draumurinn varð að engu, spænski dómarinn er líka farinn heim, Marokkó heillar heimsbyggðina, hverjir skipta um lið eftir HM?, þjálfarahræringarnar, spáð í undanúrslitin og fleira.
    48 min
  • Útvarpsþátturinn - HM með smassbræðrum, Arnór og ÓMK
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 10. desember.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Gunni Birgis og Tommi Steindórs við HM hringborðið. Rætt er um sturlunina í fyrstu tveimur leikjum 8-liða úrslitanna og hitað upp fyrir framhaldið.
    Í seinni hluta þáttarins er rætt við Arnór Sigurðsson og Óttar Magnús Karlsson kemur í heimsókn.
    1 hr 39 min
  • HM hringborðið - Karnival í Katar og Spánn fær ekki að vera með
    Það er ekki töluð vitleysan við HM hringborðið. Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar og Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins eru sérfræðingar Elvars Geirs.
    Portúgal fór á kostum með Ronaldo í kælinum, Marokkómenn sendu hugmyndasnauða Spánverja heim, Brasilía blæs í danssýningu og Króatar elska langa leiki.
    Rætt um alla leiki 16-liða úrslita HM og komandi leikir í 8-liða úrslitum skoðaðir.
    1 hr 2 min
  • HM hringborðið - Hey Jude og töframáttur Messi og Mbappe
    Fjögur lið eru komin í 8-liða úrslitin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn gera upp fyrstu fjóra leiki 16-liða úrslitanna.
    Vængbakverðir Hollands fóru illa með Bandaríkin, Messi leiddi Argentínu áfram en Ástralía getur borið höfuðið hátt, Mbappe var magnaður fyrir Frakka og Jude Bellingham heillaði í sigri Englands gegn Senegal.
    49 min
  • Útvarpsþátturinn - Þeir bestu, verstu og skemmtilegustu á HM
    Elvar Geir og Tómas Þór gera upp riðlakeppni HM í útvarpsþætti vikunnar, velja úrvalsliðið til þessa, mestu vonbrigðin og skemmtilegustu karakterana.
    Sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli Ragnarsson, spáir í viðureignir 16-liða úrslitanna.
    Fjallað er um vonbrigði Þýskalands. Sæbjörn Steinke ræðir við Guðmund Hreiðarsson, markvarðaþjálfara Jamaíku og sérfræðing um þýska fótboltann.
    Í lok þáttarins er svo farið yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum.
    1 hr 50 min
  • Svava kom djúpt úr frystinum og stóð uppi sem tvöfaldur meistari
    Svava Rós Guðmundsdóttir hefur átt viðburðaríkt ár, hún skipti um félag í upphafi árs, vann tvo titla með Brann í Noregi og fór með landsliðinu á EM í sumar.
    Seinni hluta síðasta árs var Svava ekki á góðum stað, föst í liði þar sem þjálfarinn ætlaði sér ekki að spila henni.
    Svava ræðir tímann hjá Bordeaux; síðustu mánuðina, viðskilnaðinn og skiptin í Brann, tímann sinn í Noregi til þessa, fagnið sitt á móti Rosengård, titlana tvo, úrslitakeppnina í Noregi, Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur, Natöshu Anasi, EM í sumar, leikina gegn Hollandi og Portúgal og ýmislegt annað.
    43 min