Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • HM hringborðið - Danmörk heim með skottið á milli lappanna
    Þá er fjórum riðlum á HM í Katar lokið. Tveir riðlar kláruðust í dag og vantaði ekki dramatíkina í þá fjóra leiki sem voru spilaðir.
    Danir eru farnir heim, Frakkar töpuðu óvænt, Messi og félagar kláruðu sitt og það gerðist næstum því að lið færi áfram á háttvísisstigum.
    Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke fara yfir leiki dagsins í HM hringborðinu ásamt því að ræða við góða gesti.
    Hringt er til Danmerkur þar sem er rætt við Frey Alexandersson, þjálfara Lyngby, um ófarir danska liðsins og svo var hringt til Katar þar sem spjallað er við fjölmiðlamanninn Kristin Pál Teitsson um það hvernig er að vera á mótinu sem áhorfandi.
    1 hr 11 min
  • HM hringborðið - Glæstar vonir og súr vonbrigði: Magnús Már kryfur það helsta
    Tveimur riðlum á HM er lokið, hvað varðar leikjafjölda er mótið rúmlega hálfnað og það er margt í spilunum. Nýjar stjörnur verða til, glæstar vonir og súr vonbrigði.
    Elvar Geir og Guðmundur Aðalsteinn eru við HM hringborðið og sérstakur gestasérfræðingur er Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og fyrrum ritstjóri Fotbolti.net.
    Farið er yfir leiki síðustu tveggja daga og skoðað hvað er framundan. Englendingar mæta Senegal og Holland leikur við Bandaríkin í 16-liða úrslitum. Rætt er um Ronaldo, Luis Enrique, umfjöllunina á RÚV og horft til baka á HM 2018.
    57 min
  • HM hringborðið - Betri er full krukka en tóm
    Á morgun er lokadagurinn í 2. umferð riðlakeppninnar. Við hringborðið í dag var farið yfir leiki helgarinnar þar sem spilað var í C,D, E og F riðli. Það er mikil spenna í öllum riðlunum og einungis ein þjóð komin áfram í 16-liða úrslit.
    Sæbjörn Steinke fékk Framarana Guðmund Magnússon og Óskar Smára Haraldsson með sér í yfirferðina.
    Meðal efnis: Niclas Füllkrug, Belgar í brasi, Messi steig upp, Frakkar líklegir, Danir með örlögin í sínum höndum, kraftmiklir Króatar, massífir Marokkóar og svakaleg lokaumferð í C-riðli.
    58 min
  • Útvarpsþátturinn - Mestu vonbrigði HM og fréttir vikunnar
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í óvenjulegri útgáfu þessa vikuna. Hann er sendur út frá Mývatni.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir gang mála á HM í Katar og þá eru fótboltafréttir vikunnar á sínum stað.
    Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu að þessu sinni.
    1 hr 24 min
  • HM hringborðið - Yfirferð með Davíð Snorra: Stór lið strax undir pressu
    HM er farið á fulla ferð og við hringborðið er farið yfir allt það helsta sem hefur gerst á mótinu til þessa. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða mótið með góðum gesti.
    Sérfræðingur þáttarins er Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins. Davíð starfaði sem leikgreinandi hjá íslenska landsliðinu á HM 2018.
    Meðal efnis: Heimsmeistararnir byrja á sigri, óvæntustu úrslit HM sögunnar, Danir ekkert spes, England byrjar á markaflóði, Ronaldo rifti við Man Utd og íslenska U21 liðið vann Skota.
    1 hr 12 min
  • Útvarpsþátturinn - Ronaldo, HM og Kaggi Más
    Útvarpsþátturinn 19. nóvember 2022. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór.
    Rætt um Ronaldo málið við Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann og sérfræðing um Manchester United. Í kjölfarið er farið yfir helstu fréttir.
    Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV ræðir um HM utan og innan vallar og Sævar Sævarsson kynnir bók sína um Kjartan Másson sem er nýkomin út.
    1 hr 42 min
  • Enski boltinn - Tekur upp hanskann fyrir Ronaldo
    Cristiano Ronaldo er á allra vörum í dag eftir viðtal sem hann fór í hjá umdeilda fjölmiðlamanninum Piers Morgan.
    „99 prósent af stuðningsmönnum Man Utd munu standa með Erik Ten Hag, sem sýnir í raun hversu illa Ronaldo kom að málunum. Þetta eitt prósent mun styðja Ronaldo er Rio (Ferdinand), Roy (Keane) og Patrice (Evra)," sagði Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, í gær.
    Það má segja að Mate Dalmay, körfuboltaþjálfari Hauka, sé í þessu eina prósenti. Hann er mikill Ronaldo maður og er ekki sáttur við það hvernig Ten Hag hefur komið fram.
    Rætt er við Mate um stóra Ronaldo málið og stuttlega um leiki helgarinnar í Enski boltinn í dag.
    1 hr 5 min