Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs Stjarnan
    Fyrsti þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Alex Þór Hauksson fyrir Stjörnuna. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
    33 min
  • Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur?
    Þetta var góð helgi fyrir stuðningsmenn Arsenal og Manchester United.
    Arsenal er komið langleiðina með að vinna ensku úrvalsdeildina og United er í frábærum málum hvað varðar Meistaradeildarsæti.
    Þetta var hins vegar ekki góð helgi fyrir Liverpool sem gerði jafntefli við Tottenham og Manchester City sem missteig sig gegn West Ham.
    Er Bruno Fernandes besti leikmaður deildarinnar?
    Guðmundur Aðalsteinn fór yfir þetta allt ásamt fleiru með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Jóhanni Fjalari.
    57 min
  • Hugarburðarbolti GW 30 Mad Max frumsýning í London.
    Styrktaraðilar okkar eru TA Sport Travel , Bílaréttingar Sævars , Bílakompaní , Potturinn og Pannan og Dúos. Arsenal eru komnir með 9 stiga forystu eftir leiki helgarinnar. Förum yfir umferðina og allt það helsta. Top 3 og rauða spjaldið á sínum stað.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska
    Farið er yfir fréttir vikunnar úr íslenska boltanum og Valur Gunnarsson er á línunni beint úr Garðabænum þar sem Stjarnan og KR mætast í undanúrslitum Lengjubikarsins.
    Það voru stór tíðindi frá Akureyri þar sem KA kynnti tvo nýja leikmenn. Rætt er við Hallgrím Jónasson, þjálfara liðsins.
    Þá er spáð í spilin fyrir seinni leikina í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fer yfir hvaða leikmenn eru þeir heitustu í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir.
    Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn þáttarins.
    1 hr 30 min
  • Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík
    Áttundi og loka þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Gunnar Oddur Hafliðason fyrir Dómarastéttina og Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
    0 min
  • Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?
    Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, heilsar á mánudegi.
    Íslenska landsliðið byrjaði undankeppnina fyrir HM á því að mæta tveimur sterkustu þjóðum Evrópu og það gekk heldur brösulega.
    Það er einn og hálfur mánuður í Bestu deildina og nóg til að ræða um í tengslum við hana. Svo er spurning hvort Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, sé á heimleið.
    Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir allt það helsta.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
    Í útvarpsþættinum Fótbolti.net er síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina 2026 á dagskrá.
    Rætt er um öll liðin, farið yfir helstu fréttir og frammistöðuna á undirbúningstímabilinu.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í fiskabúrinu og sérstakur gestur er fótboltaþjálfarinn Haraldur Árni Hróðmarsson sem hefur verið að lýsa leikjum undirbúningstímabilsins á Livey.
    0 min
  • Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan.
    Arsenal eru komnir með 7 stiga forskot í deildinni eftir sigur á Brighton á Amex 0-1. Man City missteig sig í 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest á Etihad. Man Utd og Liverpool lutu bæði í gras gegn andstæðingum sínum og Tottenham er einungis 1 stigi fyrir ofan fallsæti eftir tap í Lundúnaslag gegn Crystal Palace á heimavelli.
    0 min