Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Niðurtalningin - Ekki meiri Forsetabikar
    KA er spáð 7. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina sem er heldur betur farið að styttast í.
    Haraldur Örn Haraldsson og Egill Sigfússon, tveir miklir KA stuðningsmenn, komu í hljóðver og fóru yfir komandi tímabil hjá sínum mönnum.
    33 min
  • Fótbolta nördinn - 433 vs RÚV
    Annar þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Helgi Fannar Sigurðsson fyrir 433 og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson fyrir RÚV. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
    0 min
  • Niðurtalningin - Er verið að vanmeta Framara?
    Fram er spáð 8. sæti Bestu deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil.
    Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson og fyrrum fjölmiðlamaðurinn Snorri Már Skúlason mættu í hljóðver og fóru yfir stöðuna í Úlfarsárdal fyrir komandi tímabil.
    34 min
  • Hugarburðarbolti GW 31 Met í rauðum spjöldum!
    Beto og Danny Welbeck voru á eldi um helgina. Liverpool, Chelsea og Newcastle töpuðu öll sínum leikjum um helgina. Blóðug fallbarátta framundan þar sem Notthingham Forest skelltu Tottenham í London 0-3. Aston Villa vöknuðu af Þyrnirósarsvefninum og Bournemouth og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli á suðurströndinni.
    0 min
  • Enski boltinn - Allir íslenskir stuðningsmenn í fýlu
    Manchester City vann deildarbikarinn um helgina með 2-0 sigri gegn Arsenal, og fyrsti bikarinn farinn á loft á þessu tímabili. Það var í raun ekkert lið sem flestir íslenskir stuðningsmenn halda með sem unnu um helgina. Aðeins átta leikir fóru fram í deildinni en þar tapaði Liverpool gegn Brighton, Chelsea tapaði fyrir Everton, Tottenham tapaði fyrir Nottingham Forest, Newcastle tapaði fyrir Sunderland. Á meðan Manchester United gerði jafntefli við Bournemouth og Leeds gerði jafntefli við Brentford.Haraldur Örn fór yfir alla þessa leiki í 31. umferð deildarinnar með Arnóri Gauti Ragnarssyni fyrrum leikmanni Aftureldingar og Loga Páli Aðalsteinssyni samfélagsmiðlastjörnu og Liverpool stuðningsmaður.
    0 min
  • Niðurtalningin - Tólf ára bið senn á enda
    Þór er komið aftur í efstu deild eftir tólf ára fjarveru og er liðinu spáð 10. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina.
    Samfélagsmiðlastjarnan Logi Páll Aðalsteinsson og íþróttafréttamaðurinn Aron Elvar Finnsson mættu í hljóðver þar sem þeir fóru yfir komandi tímabil í Þorpinu.
    35 min
  • Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast
    Elvar Geir og Benedikt Bóas sjá um þáttinn þessa vikuna
    Baldvin Már Borgarsson opinberar uppfærða ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina.
    Valur Páll Eiríksson íþróttafréttamaður kemur í hljóðver og fer yfir fótboltafréttir vikunnar og Þóroddur Hjaltalín hjá KSÍ ræðir um hvernig tækla eigi leiktafir.
    0 min
  • Niðurtalningin - Serbneskir andar svífa yfir vötnum
    Sléttar þrjár vikur eru í að Besta deildin hefjist og Eyjamenn mæta kokhraustir til leiks. ÍBV er spáð 11. sæti í spá Fótbolta.net.
    Ýmislegt hefur gengið á hjá ÍBV í vetur og komu Eyjamennirnir Óliver Magnússon og Arnar Gauti Grettisson í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net þar sem þeir fóru yfir stöðuna á liðinu fyrir komandi tímabil.
    0 min
  • Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn
    Það styttist óðfluga í að Besta deildin fari af stað en 22 dagar eru til stefnu. Nýliðum Keflavíkur er spáð neðsta sætinu í spá Fótbolta.net.
    Þeir Egill Darri Einarsson og Helgi Bergmann Hermannsson, stuðningsmenn Keflavíkur, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um komandi tímabil hjá sínum mönnum.
    32 min