Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta
    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð níunda sæti, Grindavík/Njarðvík.
    Natasha Anasi, leikmaður liðsins, og Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, komu í hljóðver og fóru yfir allt það helsta hjá þessu áhugaverða liði.
    33 min
  • Fótbolta nördinn - Njarðvík vs Grindavík
    Fjórði þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík og Damir Muminovic fyrir Grindavík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni
    34 min
  • Hugarburðarbolti GW 32 Rosaleg spenna!
    Við Össi Árnason fórum vel og vandlega yfir 32. umferð í enska. Arsenal tapaði á heimavelli og Man City er á hælum þeirra með 0-3 sigri á Chelsea. Þetta og allt hitt í þætti dagsins.
    0 min
  • Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta
    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð níunda sæti, Grindavík/Njarðvík.
    Natasha Anasi, leikmaður liðsins, og Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, komu í hljóðver og fóru yfir allt það helsta hjá þessu áhugaverða liði.
    0 min
  • Niðurtalningin - Nýir vindar blása um í dal draumanna
    Það styttist núna heldur betur í Bestu deild kvenna en hún fer af stað eftir tæpar tvær vikur. Við á Fótbolta.net spáum í spilin fyrir mótið en Fram er spáð tíunda sæti.
    Við hringdum til Tenerife þar sem Framarar voru í æfingaferð og ræddum við Anton Inga Rúnarsson, þjálfara liðsins, og Hildi Maríu Jónasdóttur, fyrirliða liðsins, um komandi tímabil. Það hafa orðið talsverðar breytingar frá síðustu leiktíð.
    31 min
  • Enski boltinn - Stressið tekur öll völd
    Það er svakaleg helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni en hún kláraðist í kvöld með óvæntum sigri Leeds á Manchester United á Old Trafford. Fjölmargir íslenskir stuðningsmenn Leeds gerðu sér ferð á leikinn í Manchester og skemmtu sér væntanlega konunglega.
    Stuðningsmenn Arsenal og Tottenham skemmtu sér ekki eins vel um helgina, en það fór allt úrskeiðis hjá þessum liðum.
    Guðmundur Aðalsteinn, Guðmundur Magnússon og Magnús Haukur Harðarson gerðu upp þetta helsta á mánudagskvöldi.
    49 min
  • Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke gera upp sunnudagsleikina í Bestu deildinni. Fyrstu umferð er lokið.
    Þórsarar byrja á sigri á Hlíðarenda, KR náði að landa dramatískum sigri gegn nýliðum Keflavíkur og Stjarnan gerði góða ferð til Akureyrar. Jafntefli í Eyjum og í Úlfarsárdal.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall
    Veislan er byrjuð! Besta deildin er farin af stað. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke eru í hljóðveri.
    Fjallað er um stórmeistarajafntefli Víkings og Breiðabliks, hitað upp fyrir leiki sunnudagsins og farið yfir helstu fréttir og tíðindi.
    1 hr 45 min
  • Enski boltinn - Sjokkerandi lélegt hjá Liverpool
    Lokaspretturinn er framundan í ensku úrvalsdeildinni. Hvaða lið verður meistari? Hvaða lið komast í Meistaradeildina? Hvaða lið fellur með Burnley og Wolves?
    Guðmundur Aðalsteinn fór yfir það helsta sem hefur gerst að undanförnu og helstu sögulínur með þeim Magnúsi Hauki Harðarsyni og Kára Snorrasyni.
    Farið var yfir úrslit í enska bikarnum og Meistaradeildinni ásamt því sem er framundan í ensku úrvalsdeildinni.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu
    Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, er sérstakur álitsgjafi en hitað er rækilega upp fyrir Bestu deildina. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og fara yfir spá Bestu deildarinnar með Halldór sem sérfræðing.
    Í seinni hluta þáttarins er svo Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gestur.
    0 min