Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Draumaliðið vs 433
    Fyrri undanúrslitaþáttur Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Helgi Fannar Sigurðsson fyrir 433. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni
    30 min
  • Niðurtalningin - Mun Stjarnan skína bjart í sumar?
    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Veislan fer af stað á föstudag.
    Núna er komið að liðinu sem er spáð fjórða sæti. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, og Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir, lykilkona liðsins, mættu í hljóðver og fóru yfir stöðuna.
    0 min
  • Niðurtalningin - Þróttur horfir í Meistaradeildina
    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna sem fer af stað á föstudaginn.
    Þrótturum er spáð fimmta sæti deildarinnar en markmiðin eru sett hærra en það í Laugardalnum. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, mætti ásamt Jóhann Kristinni Gunnarssyni, nýjum þjálfara liðsins, í hljóðver og fór yfir stöðu mála.
    0 min
  • Enski boltinn - Guð blessi Norður-London
    Enski boltinn á mánudegi eftir stærsta leik tímabilsins til þessa.
    Manchester City hafði betur gegn Arsenal í svakalegum fótboltaleik í gær. Ef bæði þessi lið vinna rest þá ræðst deildin á markatölu. Hvaða lið verður eiginlega meistari?
    Manchester United fór langt með að tryggja sér Meistaradeildarsæti, Chelsea er í dimmum dal en ekki dimmari dal en Tottenham.
    Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Kallaðir þú mig fokking tussu?
    Innkastið í beinni á X977. Önnur umferð Bestu deildarinnar er gerð upp. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í fiskabúrinu á Suðurlandsbraut.
    Mönnum var heitt í hamsi og dómararnir í sviðsljósinu. KR og Stjarnan eru með fullt hús en Keflavík og KA hafa ekki náð að koma sér á blað.
    Farið er yfir alla leikina og hitað upp fyrir næstu umferð sem verður spiluð á miðvikudag og fimmtudag.
    0 min
  • Niðurtalningin - Hver er pælingin hjá Val?
    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna, Valskonum er spáð sjötta sætinu.
    Það eru breyttir tímar á Hlíðarenda og verið að móta nýja stefnu. Við ræddum við Matthías Guðmundsson, þjálfara liðsins, og Málfríði Önnu Eiríksdóttur, leikmann liðsins, um stefnuna og komandi tímabil.
    33 min
  • Niðurtalningin – Húsvíkingurinn í brúnni á Akureyri
    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er það Þór/KA sem er spáð sjöunda sæti deildarinnar.
    Við hringdum til Akureyrar og ræddum við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Þórs/KA, um komandi tímabil. Alli Jói tók við liðinu í vetur og er spenntur fyrir sumrinu.
    0 min
  • Niðurtalningin - Himnasending sem kom til Eyja í fyrra
    Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð áttunda sæti, ÍBV.
    Við hringdum til Vestmannaeyja og ræddum við Jón Óla Daníelsson, þjálfara ÍBV, og Avery Mae Vanderven, fyrirliða liðsins. Viðtalið fer því fram á bæði íslensku og ensku.
    0 min