Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Uppbótartíminn - Grátlegt fyrir Val og slakir sóknarmenn
    Fjórðu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma til að fara yfir allt það helsta.
    Grátleg niðurstaða fyrir Val á Kópavogsvelli þar sem tvö mörk voru skoruð í uppbótartíma, frábærir nýliðar, slakir sóknarmenn og margt fleira til umræðu.
    Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og með honum eru Magnús Haukur Harðarson og Snæbjört Pálsdóttir.
    Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur um starfið
    Sjötta umferðin í Bestu deildinni er aðalmálið í þessum þætti. Elvar Geir, Tómas Þór, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke gera upp leikina fimm í Bestu deildinni sem fóru fram á föstudagskvöld.
    Lengjudeildin fær einnig sitt pláss, Mjólkurbikarinn er framundan og í lok þáttar kíkjum við út fyrir landsteinana.
    1 hr 43 min
  • Uppbótartíminn - Geta Vestmannaeyingar leyft sér að dreyma?
    Þriðja umferðin í Bestu deild kvenna kláraðist í kvöld og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma.
    Nýliðar ÍBV fóru á Hlíðarenda fóru á Hlíðarenda og tóku þar sigur, eru með fullt hús stiga og spurning hvort Vestmannaeyingar geti leyft sér að dreyma um toppbaráttu í sumar. Breiðablik er einnig með fullt hús stiga eftir sigur í Víkinni. Stjarnan missti sigurinn úr höndum sér á Akureyri, FH tók sinn fyrsta sigur og Þróttur átti góða ferð í Úlfarsárdalinn.
    Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Snæbjört Pálsdóttir voru yfir allt það helsta.
    Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
    54 min
  • Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Njarðvík vs Fótbolti.net
    Seinni undanúrslitaþáttur Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni
    0 min
  • Enski boltinn - Kobbie, Chelsea lúserar og Coventry fær sviðsljós
    Kobbie Mainoo var hetja Manchester United gegn Liverpool, Chelsea lét varalið Nottingham Forest flengja sig og Arsenal gerði afar vel í titilbaráttunni.
    Þá var Coventry sérstaklega mikið sviðsljós þennan þáttinn þar sem liðið er komið upp í ensku úrvalsdeildina eftir meira en 20 ár í burtu. Arnar Sæberg, Hemúllinn, er gestur í þættinum en hann er mikill Coventry stuðningsmaður.
    Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en Sölvi Haraldsson er einnig gestur.
    Þess má geta að þátturinn var tekinn upp á meðan leikur Everton og Man City var í gangi en hann endaði 3-3.
    0 min
  • Harkið - Draugamark á Dalvík
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í fyrstu umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir helstu félagaskiptin og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum.
    - Yfirferð yfir 3. deild 3:30
    - Yfirferð yfir 2. deild 31:30
    - Spá fyrir næstu umferð 01:22
    Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    1 hr 31 min
  • Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap
    Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Almarr Ormarsson.
    Tveir rosalegir grannaslagir á laugardegi, Blikar fóru með þrjú stig heim með þyrlunni, ótrúlegur leikur í Kaplakrika, ÍA vann Stjörnuna og Víkingur vann Keflavík.
    Hermann Hreiðarsson tjáir sig um lætin í göngunum og Tryggvi Guðmundsson er í beinni frá Eyjum.
    1 hr 16 min
  • Útvarpsþátturinn - Maður mánaðarins og gluggadómar
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Umferðin framundan í Bestu deildinni er skoðuð og sérstaklega hitað upp fyrir toppslag Vals og KR. Rætt er við Aron Sigurðarson, leikmann KR, sem hefur verið valinn leikmaður mánaðarins fyrir aprílmánuð.
    Glugganum hefur verið lokað og stærstu kaupin eru skoðuð og dæmd. Lengjudeildin og Meistaradeildin koma einnig við sögu.
    0 min
  • Uppbótartíminn - Sögulegur sigur og viðvörunarbjöllur hringja í Hafnarfirði
    Önnur umferð Bestu deildar kvenna er að baki og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma.
    Það eru tvö lið með fullt hús stiga, Grindavík/Njarðvík vann heldur betur sögulegan sigur en í Hafnarfirðinum eru viðvörunarbjöllur farnar að hringja.
    Magnús Haukur Harðarson og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir allt það helsta.
    Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
    0 min