Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Harkið - Maraþon upphitun fyrir 2. og 3. deild
    Harkið er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um 2. og 3. deild karla. Þátturinn kemur út vikulega þar sem farið verður yfir úrslit og hápunkta eftir hverja umferð.
    Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    Í þessum fyrsta þætti er hitað rækilega upp fyrir 2. og 3. deild karla. Farið var yfir hvert lið fyrir sig og spáð í spilin.
    - Byrjað var á upphitun fyrir 3. deild
    - 2. deild upphitun: 1 klst. og 7 mínútur
    - Spá fyrir fyrstu umferð: 2 klst. og 26 mínútur.
    0 min
  • Uppbótartíminn - Féllu á eigið sverð og umræðu svarað
    Besta deild kvenna er farin af stað og var mikið að ræða eftir fyrstu umferðina.
    Nýliðar í Grindavík/Njarðvík voru betri aðilinn gegn Val á Hlíðarenda en fóru tómhentar heim, leikmenn svöruðu umræðu úr upphitunarþættinum, Breiðablik með meistarasigur, nöfnurnar byrjuðu vel í ÍBV og jafntefli var niðurstaðan fyrir norðan.
    Þá mættu Magnús Haukur Harðarson og Arnar Páll Garðarsson með áhugaverða heimavinnu í lok þáttar. Guðmundur Aðalsteinn stýrir umræðunni.
    1 hr 3 min
  • Enski boltinn - Hvað er hægt að segja um Liam Rosenior?
    Liam Rosenior er búinn að kveðja Chelsea eftir stuttan en eftirminnilegan tíma hjá félaginu.
    Hvað næst hjá Lundúnafélaginu? Hvað næst hjá Rosenior?
    Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Haraldi Erni Haraldssyni og fór yfir það, ásamt öllu því helsta sem hefur gerst í enska boltanum upp á síðkastið.
    0 min
  • Innkastið - Gulir en alls ekki glaðir
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkastinu eftir 4. umferð Bestu deildarinnar.
    Valur hefur unnið þrjá leiki í röð, KR heldur áfram á skriði en frammistaða ÍA, KA og ÍBV í umferðinni var heldur betur slöpp.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Öflugri en nokkru sinni fyrr
    Lengjudeildin er öflugri en nokkru sinni fyrr og hún fær stóra sviðið í útvarpsþættinum þessa vikuna. Deildin er farin af stað; farið er yfir spá þjálfara og fyrirliða og rýnt í vonir og væntingar.
    Í þættinum er einnig hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni.
    Elvar Geir, Baldvin Borgars og Benedikt Bóas í hljóðveri.
    1 hr 26 min
  • Niðurtalningin - Þriðja árið í röð?
    Því er spáð að Breiðabliki verði Íslandsmeistari þriðja árið. Þær eru að koma inn í nýtt tímabil sem tvöfaldir meistarar en þó hafa orðið miklar breytingar á hópnum og teyminu í kringum liðið.
    Agla María Albertsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir, leikmenn liðsins, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir allt það helsta tengt Blikaliðinu.
    0 min
  • Niðurtalningin - Síðasta skrefið í tröppunum
    Það er komið að því, Besta deild kvenna fer af stað í kvöld. FH er spáð öðru sæti deildarinnar.
    Guðni Eiríksson, þjálfari liðsins, og Katla María Þórðardóttir, fyrirliði, komu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um ýmislegt tengt liðinu.
    0 min
  • Innkastið - Mega skammast sín og gera það
    Innkastið eftir 3. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.
    Víkingur vann stórleikinn, Valsmenn sannfærandi, baráttusigur Þórs, KR rúllaði yfir ÍBV, ÍA og KA er enn án sigurs og bitlausir Blikar gerðu markalaust jafntefli gegn Keflavík.
    0 min