Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Uppbótartíminn - Bæði lið áttu núll stig skilið
    Fimmta umferð Bestu deildar kvenna fór fram í heild sinni í kvöld.
    Breiðablik er áfram með fullt hús stiga og Þór/KA er í vandræðum, FH var fyrsta liðið til að taka stig af ÍBV, Valur og Fram gerðu markalaust jafntefli í tíðindalitlum leik, Þróttur vann útisigur í Víkinni og jafntefli var niðurstaðan í Njarðvík.
    Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört fóru yfir þessa leiki og allt það helsta í kringum Bestu deild kvenna ásamt því að snerta á Mjólkurbikarnum og landsliðsvali.
    57 min
  • Harkið - Króksarar með fullt hús
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í þriðju umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir flottustu treyjurnar í 3. deild og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum.
    - Uppgjör 3. deildar og flottustu treyjur: 3 mín
    - Uppgjör 2. deildar: 34 mín
    - Leikmaður umferðarinnar og spá: 57 mín
    Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    1 hr 6 min
  • Innkastið - Vafasöm vegferð
    Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd.
    KR og Fram gerðu jafntefli, Valur vann Breiðablik, FH tapaði fyrir KA, Víkingur vann ÍBV, Þór tapaði fyrir ÍA og jafntefli varð niðurstaðan í leik Keflavíkur og Stjörnunnar.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Bikarskellir og Ágúst Orri
    Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra í hljóðveri.
    Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir bikarvikuna, næstu umferð í Bestu, fréttir vikunnar og fleira.
    Ágúst Orri Þorsteinsson, leikmaður Breiðabliks, er gestur í seinni hálfleiknum.
    0 min
  • Fótbolta nördinn: Úrslit - Fótbolti.net vs Draumaliðið
    Úrslitaþáttur Fótbolta nördans, en þátturinn var upphaflega í beinni útsendingu þann 12. maí. Í þættinum eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
    0 min
  • Harkið - Haukavélin byrjuð að malla
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í 2 umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir helstu félagaskiptin, bestu stuðningsmannalögin og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum.
    - 3. deild: 5 mín
    - 2. deild: 33 mín
    Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    1 hr 16 min
  • Enski boltinn - Augnablikið sem allir eru að tala um
    Arsenal er með pálmann í höndunum þegar liðið á tvo leiki eftir í ensku úrvalsdeildinni. Núna þarf bara eitthvað ótrúlegt að gerast svo þeir verði ekki meistarar.
    Arsenal vann 0-1 sigur á West Ham um helgina þar sem einn stærsti VAR-dómur sögunnar leit dagsins ljós.
    Mikið var rætt um þetta í Enski boltinn hlaðvarpinu sem og um aðra leiki helgarinnar en það er barátta á flestöllum vígstöðum þegar lítið er eftir af deildinni.
    Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og gestir eru ÍR-ingarnir Ágúst Unnar Kristinsson og Sölvi Haraldsson.
    0 min