Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Hugarburðarbolti GW 38 Sturlaður lokasprettur í enska!
    Newcastle, Aston Villa og Nottingham Forest töpuðu öll sínum leikjum í baráttunni um meistaradeildarsætin. Evrópudeildarmeistarar Tottenham steinlágu á heimavelli gegn Brighton 1-4
    Man Utd kvöddu stuðningsmenn sína með sigri og á Anfield fór Englandsbikarinn á loft.
    1 hr 1 min
  • Leiðin úr Lengjunni - Hamingja á Húsavík og fúlir Fylkismenn
    Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.
    1 hr 13 min
  • Uppbótartíminn - Nýtt lið á toppnum og mikilvægir landsleikir
    Það voru vendingar í síðustu umferð Bestu deildar kvenna eins og rætt er um í nýjum þætti af Uppbótartímanum, sérstökum hlaðvarpsþætti um kvennaboltann.
    Þróttur Reykjavík er á toppnum eftir að FH tókst að leggja Breiðablik að velli í Kaplakrika.
    Rætt er um síðustu umferð sem er að baki og einnig um mikilvæga leiki sem eru framundan hjá kvennalandsliðinu gegn Noregi og Frakklandi.
    Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur sjá um þáttinn en Hertz er stoltur stuðningsaðili kvennaboltans á Fótbolta.net.
    49 min
  • Enski boltinn - Rándýr dómaramistök og bikar á loft á Anfield
    Liverpool er Englandsmeistari. Það er löngu vitað. En bikarinn fór á loft á Anfield í gær.
    Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar var annars mjög áhugaverð þar sem dómaramistök á Old Trafford höfðu mikið að segja í Meistaradeildarbaráttunni.
    Hrafn Kristjánsson, stuðningsmaður Liverpool, og Haraldur Örn Haraldsson, gerðu lokaumferðina og tímabilið upp ásamt Guðmundi Aðalsteini.
    1 hr 10 min
  • Tveggja Turna Tal - Óskar Smári Haraldsson
    Óskar Smári Haraldsson er bóndasonur úr Varmahlíð. Hann var tvisvar sinnum valinn í lið umferðarinnar í Lengjudeildinni fyrir rúmum áratug síðan og það var hápunktur ferilsins sem var sjálfmiðaður, að hans mati!Kristján Guðmundsson tók í burtur úr honum hrokann og kenndi honum auðmýkt, leikgreiningu og ýmislegt annað og undanfarin fjögur ár hefur Óskar Smári unnið þrekvirki með kvennalið Fram. Við fórum yfir þetta allt og miklu fleira í þessum þætti!Góða skemmtun.
    1 hr 25 min
  • Innkastið - Blikar lúta í gras og Davíð Smári finnur lausnir
    Innkastið eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Óskar Smári, þjálfari kvennaliðs Fram.
    Víkingur tók toppsætið, Blikar töpuðu verðskuldað fyrir FH og Vestri kom til baka með stæl gegn Stjörnunni. Skagamenn eru á botninum en KA náði í mikilvægan sigur.
    1 hr 15 min
  • Útvarpsþátturinn - Vond vörn og uppgjör við enska hringborðið
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. maí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir.
    Íslenski boltinn í fyrri hálfleik þáttarins. Baldvin Borgarsson ræðir um 8. umferð Bestu deildarinnar, leikur KR og Fram er gerður upp og einnig rætt um Lengjudeildina.
    Enska hringborðið í seinni hálfleik þáttarins. Kristján Atli gerir upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni, skoðar liðin sem eru að koma upp og um úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
    1 hr 48 min
  • Grasrótin - 3. umferð, neðri deildirnar í stuði
    Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 3. umferð í 2. og 3. deild karla, 2. umferð í 4. deild og 1. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2. deild, 2:10, 3. deild, 37:20, 4. deild, 1:10:00, 5.deild, 1:29:20
    1 hr 53 min
  • Enski boltinn - Fyrsti bikar Tottenham í 17 ár
    Það var stór stund fyrir Tottenham í gær þegar liðið fór með sigur af hólmi í Evrópudeildinni. Spurs lagði Manchester United að velli í Bilbao.
    Þessu var vel fagnað hjá stuðningsmönnum Tottenham enda fyrsti bikar félagsins í 17 ár.
    Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, gerðu stóru stundina upp í skemmtilegum hlaðvarpsþætti.
    59 min