Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Í návígi við Gulla Jóns og Bestu
    Besta deildin fer aftur af stað. Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977
    Gunnlaugur Jónsson, einn besti vinur þáttarins, kemur í heimsókn og skoðar komandi umferð í Bestu og ræðir meðal um hlaðvarpsþættina Návígi þar sem hann fylgir eftir sjónvarpsþáttunum A&B.
    Þá kemur landsliðið og HM félagsliða einnig til umræðu og Baldvin Borgarsson skoðar gang mála í Lengjudeildinni.
    1 hr 45 min
  • Fótbolta nördinn - Sigurvegarinn tekst á við þáttastjórnandann
    Fótbolta Nördinn snýr aftur með þessum sérstaka þætti þar sem sigurvegarinn í fyrstu seríu, Ragnar Bragi Sveinsson, tekst á við þáttastjórnandann, undirritaðann Harald Örn Haraldsson. Þá var fenginn að gesta þáttastjórnanda en það er hann Daníel Óli Ólafsson frá geysivinsæla  hlaðvarpinu Trivíaleikarnir.
    0 min
  • Turnar Segja Sögur - Eric Cantona
    Eric Cantona er einn af fyrstu erlendu leikmönnunum sem setti svip sinn á enska boltann. Eric ólst upp í helli, brenndi allar brýr að baki sér í Frakklandi en er einn af mikilvægustu leikmönnunum sem spilaði fyrir Sir Alex hjá Man Utd. Cantona er raðsigurvegari, söngvari, leikari og alger snillingur.Allt við King Cantona er áhugavert ! Góða skemmtun
    1 hr 9 min
  • Grasrótin - 7. umferð, tölum aðeins um neðrideildirnar
    Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 7. umferð í 2. og 3. deild karla, 5. umferð í 4. deild og 4. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 3:25, 3. deild, 38:50, 4. deild, 1:13:40, 5.deild, 1:38:50Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Aron Ýmir Pétursson
    Er þjálfun ofmetin? Er DNA-ið á skaganum betra en annarsstaðar? Hvernig nýta skagamenn allar þær lifandi goðsagnir sem alið hafa manninn í fótboltabæ Íslands og þótt víða væri leitað?Aron Ýmir er yfirþjálfari ÍA og við fórum yfir þetta allt og fleira til!
    54 min
  • Útvarpsþátturinn - Sigur á Hampden, Besta liðið og Gunnar Heiðar
    Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 7. júní.
    Í fyrri hluta þáttarins er 3-1 sigur Íslands gegn Skotlandi gerður upp og valið úrvalslið Bestu deildarinnar hingað til á skemmtilegan hátt.
    Í seinni hlutanum kemur Gunnar Heiðar Þorvaldsson í heimsókn en hann er að gera mjög áhugaverða hluti sem þjálfari Njarðvíkur.
    1 hr 46 min
  • Turnar Segja Sögur - Írland frá Jackie Charlton til Heimis Hallgríms
    Turnar segja sögur er nýr liður þar sem við Krissi setjumst niður og ræðum algjörlega tilgangslausar staðreyndir úr knattspyrnusögunni – sem eru samt óskiljanlega fastar í hausnum á okkur.Í þessum þætti förum við yfir sögu írska landsliðsins, allt frá tímum Jack Charlton til Heimis Hallgríms. Charlton masteraði „the granny rule“ og fékk blessun frá Jóni Páli Páfa í Vatíkaninu. Við kíkjum líka á skrautlegan tíma Mick McCarthy og Roy Keane og rifjum upp nokkrar gullmolarasögur af stórkostlegum karakterum úr írskri fótboltasögu.Og að sjálfsögðu, hver önnur en Hólmfríður Karlsdóttir, ungfrú heimur 1985, sparkar veislunni í gang með Írunum.Góða skemmtun!
    1 hr
  • Uppbótartíminn - Þurfum að vinna leikina á EM
    Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni og fer í umspil þar.
    Næsta verkefni er EM í Sviss og þar þurfum við að fara að vinna einhverja leiki, en stelpurnar hafa núna farið í gegnum tíu leiki í röð án sigurs.
    Guðmundur Aðalsteinn fór yfir síðasta landsliðsglugga og framhaldið með þeim Orra Rafni Sigurðarsyni og Gylfa Tryggvasyni.
    Icelandair, TM, Lýsi, Landsbankinn og Hertz styðja umfjöllun Fótbolta.net um kvennaboltann.
    1 hr