Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Uppbótartíminn - Núna fer hausinn á EM
    Það eru níu dagar í fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu í Sviss.
    Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson hita vel upp fyrir Evrópumótið í þætti dagsins af Uppbótartímanum.
    Hvernig eru andstæðingar Íslands og hverjar eiga vonir okkar og væntingar að vera?
    Einnig er aðeins talað um Bestu deildina fyrir langa EM-pásu sem er framundan.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Ásmundur Guðni Haraldsson
    Ásmundur Guðni Haraldsson er maður margra hatta. Hann er aðstoðarskólameistari í Brekkubæjarskóla á Akranesi, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu og landsliðsþjálfari Reitaboltalandsliðsins.Við Ási settumst niður og spjölluðum um væntanlegt Evrópumót, hvers vegna honum finnst svo gefandi að starfa með kvennalandsliðinu, liði sem hann hefur unnið með í yfir 100 landsleikjum og fórum yfir ferilinn frá því Guðjón Þórðar og Luka Luka Kostic gáfu honum sénsinn í KR.Ási sagði mér hvernig hann starfaði sem yfirþjálfari yngri flokka Gróttu og Stjörnunnar og við ræddum að sjálfsögðu það afrek sem hann náði er hann fór með Gróttu úr neðstu deild í þá næst efstu. Auðvitað fórum við svo yfir tímann hjá FH!Síðast, en alls ekki síst, fórum við djúpt ofan í reitaboltafræðin. Hvað gerist til dæmis ef þú klobbar tvo leikmenn í einni snertingu? Það er e.t.v. kominn tími til að gefa út nýtt myndband frá reitaboltasambandinu.Njótið
    1 hr 42 min
  • Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskiptin á Skaganum
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Lárus Orri Sigurðsson er tekinn við ÍA en Jón Þór Hauksson, sem var látinn taka pokann sinn eftir síðustu umferð, er á línunni í þættinum.
    Fjallað er um Mjólkurbikarinn, Bestu deildina, Lengjudeildina og ýmislegt fleira.
    1 hr 28 min
  • Turnar Segja Sögur - Kamerún 1990
    Grænu ljónin frá Kamerún breyttu knattspyrnuheiminum varanlega á HM á Ítalíu árið 1990. Roger Milla og félagar mættu, sáu og sigruðu en saga liðsins er um margt ótrúleg. Paul Biya, sem hefur verið við völd í Kamerún síðan 1982, fyrirskipaði að Roger Milla skyldi taka þátt í mótinu og þar með var það mál útrættMilla hafði þá þegar lagt skóna á hilluna, en ákvörðun forsetans reyndist snilldarleg. Við fórum yfir þessa mögnuðu sögu og rýndum í hvernig framganga ljónanna breytti fótboltaheiminum – bæði í Afríku og fyrir ungan miðjumann Parma á Ítalíu!Njótið!
    52 min
  • Uppbótartíminn - EM hópurinn og þrjú lið jöfn á toppnum
    Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann á Íslandi, í dag.
    EM hópurinn var valinn síðasta föstudag og ljóst er hvaða 23 leikmenn verða fulltrúar Íslands á EM í Sviss. Hvaða leikmenn eru svekktastir með valið?
    Þá hefur Besta deildin ekki verið eins skemmtileg í mörg ár. Þrjú lið eru jöfn á toppnum og risi er í veseni.
    Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir sviðið en einnig var aðeins snert á Lengjudeildinni og 2. deild í þættinum.
    1 hr 19 min
  • Innkastið - Fyrsti hausinn fokinn
    Innkastið eftir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Sæbjörn Steinke.
    Jón Þór Hauksson var látinn fara eftir tap ÍA gegn Aftureldingu, Karl Friðleifur átti að fá rautt spjald í sigri Víkings gegn KR, Blikar stukku yfir einnota grill og aðrar hindranir í Eyjum, Vestri vann KA, Vuk heldur áfram á flugi og Valsmenn bregðast enn og aftur þegar þeir fá tækifærið.
    1 hr 10 min
  • Tveggja Turna Tal - Úlfur Ágúst Björnsson
    Úlfur Ágúst er einn af helstu sóknarmönnum FH auk þess að vera einn af fjölmörgum fyrirliðum Duke háskólans í norður Karólínu í Bandaríkjunum.Við ræddum saman um líf fótboltamannsins í Bandaríkjunum, möguleikann á að spila í MLS, Coach K og marg fleira. Eðaldrengur.Njótið vel!
    1 hr 4 min