Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Grasrótin - 11. Umferð, Fyrri umferðin gerð upp. Bestir, verstir og fleira
    Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 11. umferð í 2. og 3. deild karla, 9. umferð í 4. deild og 8. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.Fylgið okkur á Instagram, @grasrotin. Við setjum inn mörk, félagaskipti og margt fleira.2. deild, 3:05, 3. deild, 36:40, 4. deild, 1:10:20, 5.deild, 1:39:30.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.
    1 hr 53 min
  • Innkastið - Verður Valur Íslandsmeistari?
    Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Óskar Smári fara yfir allt það helsta.
    Þetta var góð umferð fyrir Val á meðan Breiðablik og Víkingur gerðu jafntefli í sínum leikjum. Vont tap hjá KR gegn KA í fallbaráttunni.
    Auk Bestu deildarinnar er rætt um Evrópuleikina, Lengjudeildina og EM kvenna.
    0 min
  • EMvarpið - Tómleikatilfinning í Thun
    Ísland er úr leik á Evrópumótinu eftir tvö töp í tveimur leikjum. Við eigum ekki lengur möguleika á því að komast áfram sem er gífurlega sárt.
    Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá leikmönnum, starfsfólki og stuðningsmönnum Íslands í gær enda voru markmiðin stærri en þetta.
    Ísland er úr leik þegar einn leikur er eftir í riðlinum og er hægt að segja að maður finni fyrir ákveðinni tómleikatilfinningu út af þessum vonbrigðum.
    Undirritaður, Guðmundur Aðalsteinn, settist niður með Eddu Sif og Einari Erni frá RÚV í Thun í dag og gerði upp vonbrigðin.
    55 min
  • Turnar segja sögur: Gullmörk, bikarævintýri og fallslagur í Noregi!
    Við Turnarnir bjóðum upp á pálínuboð í þætti dagsins. Fannar Freyr Guðmundsson, einn af bestu sonum Hafnarfjarðar, FH-ingur, Liverpoolmaður og þjálfarari Hrottanna á Litla Hrauni kom til okkar. Fáranleg saga af gullmarkinu, bikarævintýri á Íslandi og einkennileg fallbarátta í Noregi koma við sögu!Turnarnir eru í boði Lengjunnar, World Class og okkar besta Budvar!
    52 min
  • Útvarpsþátturinn - Fjör í Mosó og markaðurinn kominn í gang
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna í sérstakri sumarútgáfu.
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum.
    Afturelding og Breiðablik gerðu jafntefli í fjörugum leik, Valsmenn fara á Laugardalsvöll, áhugaverð félagaskipti í íslenska boltanum, viðtal við Jón Daða Böðvarsson, Diogo Jota lést í bílslysi og stelpurnar okkar áttu mjög slakan leik gegn Finnlandi.
    1 hr 23 min
  • EMvarpið - Grautfúlt að byrja mótið með þessum hætti
    Ísland fékk ekkert úr úr leiknum sínum gegn Finnlandi í fyrsta leik Evrópumótsins í gær. Niðurstaðan var 1-0 sigur Finnland.
    Frammistaða Íslands var ekki góð í leiknum og sérstaklega var það raunin í fyrri hálfleik. Það virtist vera mikið stress í liðinu.
    Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Aroni Guðmundssyni hjá Sýn og Helga Fannari Sigurðssyni, fréttamanni 433, í dag og var leikurinn gerður upp.
    46 min
  • Grasrótin - 10. umferð, Mosóbrósar jarðtengdir af mögnuðum Magnamönnum
    Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 10. umferð í 2. og 3. deild karla, 8. umferð í 4. deild og 7. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 6:05, 3. deild, 35:05, 4. deild, 1:02:20, 5.deild, 1:28:05, Utandeild, 1:36:20.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.
    0 min