Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Skúrkur, vondur veggur og vonbrigði
    Innkastið eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.
    Valsmenn eru einir á toppnum og vilja einn besta leikmann Víkings, varnarveggur Víkings gegn Fram var sjokkerandi dapur, jafntefli í fyrsta leik á gervigraslögðum Meistaravöllum og Ágúst Hlyns byrjar vel fyrir vestan.
    Í þættinum eru valdir þeir leikmenn sem hafa komið mest á óvart og þeir sem hafa verið mestu vonbrigðin.
    1 hr 18 min
  • Uppbótartíminn - Lygilegt hjá Ljónynjum, Blikar í toppmálum og fallbaráttan harðnar
    Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum í dag þar sem Besta deild kvenna sneri aftur eftir langa EM pásu.
    Í þættinum í dag ræddu þeir Magnús Haukur og Guðmundur Aðalsteinn um sigur Englands á Evrópumótinu og árangur Íslands í Sviss, sigur Breiðabliks á Þrótti í toppslag, framtíðarlandsliðskonur á Sauðárkróki og margt fleira.
    Einnig var snert á Lengjudeildinni og 2. deild kvenna í lok þáttar.
    1 hr 6 min
  • Enski boltinn - Chelsea eina liðið með allt galleríið
    Chelsea varð á dögunum heimsmeistari félagsliða og fyrir komandi tímabil eru væntingarnar þær að liðið verði í titilbaráttu.
    Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson eru fárveikir Chelsea menn og þeir komu í heimsókn í Pepsi Max stúdíóið í dag til að fara yfir stöðuna hjá Lundúnafélaginu.
    Ræddu þeir meðal annars um HM félagsliða, nýja leikmenn, sambandið við Arsenal og margt fleira.
    44 min
  • Tveggja Turna Tal - Jónas Grani Garðarsson
    Jónas Grani á ótrúlega áhugaverða sögu að baki! Hann er sá elsti til að þreyta frumraun sína í efstu deild og er líka sá elsti til að vinna sér inn gullskó. Ferillinn hófst á Húsavík en við fórum líka yfir árin í Kaplakrika, hvernig var að vera þjálfaður af Ásgeiri El áður en við brugðum okkur til Katar, Belgíu og AC Milan! Sögur Jónasar Grana frá þessum stöðum eru stórmerkilegar. Allegri stakk hann í bakið en hvar ætli hann endi næst! Ég er allavega búinn að bóka mig í heimsókn... Njótið!
    2 hr 17 min
  • Útvarpsþátturinn - Niko, glugginn opinn og umdeilt VAR
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 26. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og með þeim er Valur Gunnarsson.
    Gestur þáttarins er Nikolaj Hansen, sóknarmaður Víkings, en Víkingar eru nýkomnir frá Albaníu þar sem þeir töpuðu 2-1 í fyrri leik sínum gegn Vllaznia í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
    Farið er yfir Evrópuleiki vikunnar, fréttir og slúður úr íslenska boltanum, Bestu deildina og Lengjudeildina. Sæbjörn Steinke er á línunni. Einnig er rætt um VAR en Þóroddur Hjaltalín og Gunnar Jarl mæta.
    1 hr 46 min
  • Enski boltinn - Staðan tekin þegar stutt er í veisluna
    Það styttist í að nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni fari af stað. Það eru aðeins tæpar þrjár vikur í að Liverpool mæti Bournemouth í upphafsleik deildarinnar.
    Guðmundur Aðalsteinn settist í Pepsi Max stúdíóið í dag með Sölva Haraldssyni og Kára Snorrasyni og tóku þeir stöðuna þegar stutt er í mót.
    Rætt var um félagaskipti sumarsins, hvaða lið séu líklegust til að taka titilinn og hvaða lið séu líklegust til að falla. Og margt fleira.
    58 min
  • Grasrótin - 13. Umferð, "Þrotur" Vogum sofna í gasmengun
    Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 13. umferð í 2. og 3. deild karla, 11. umferð í 4. deild og 9. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.Fylgið okkur á Instagram, @grasrotin. Við setjum inn mörk, félagaskipti og margt fleira.2. deild, 11:25, 3. deild, 35:20, 4. deild, 1:06:15, 5.deild, 1:28:25.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.
    1 hr 34 min