Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Þjálfarar að gera dýrkeypt mistök
    Innkastið eftir 17. umferð Bestu deildarinnar. Þar sem allir leikirnir nema einn enduðu með jafntefli. Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd.
    ÍBV vann Þjóðhátíðarleikinn og KR er líklegt til að falla, markametið var slegið en Valsmenn fóru illa að ráði sínu, umdeilt atvik á ögurstundu í Kópavogi og margt fleira.
    1 hr 29 min
  • Enski boltinn - Núna ætlar Arsenal að elda
    Arsenal hefur endað í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar þrjú ár í röð en núna eru öll hráefnin til staðar til þess að Mikel Arteta, stjóri liðsins, fari að elda.
    Sóknarmaðurinn Viktor Gyökeres er mættur og breiddin er orðin meiri en áður.
    Gunnar Birgisson og Jón Kári Eldon, stuðningsmenn Arsenal, eru gestir í Pepsi Max stúdíóinu í dag og taka stöðuna fyrir tímabilið hjá Lundúnafélaginu.
    50 min
  • Tveggja Turna Tal - Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
    Andrea Rán Snæfeld hefur átt ótrúlega áhugaverðan fótboltaferil!Hún lék sinn fyrsta leik í efstu deild aðeins 15 ára og hefur síðan spilað í tveimur efstu deildum Bandaríkjanna, í Frakklandi og í Mexíkó ásamt því hafa spilaði í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Í dag stjórnar Andrea umferðinni á miðjunni hjá FH sem nýlega komst í bikarúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins. Við ræddum um ferilinn, hvað þarf til að byggja sterka liðsheild og hvað skiptir máli í fari góðra þjálfara og vinnuna við að hjálpa ungu íþróttafólki að finna sér skóla við hæfi!Góða skemmtun!
    1 hr 26 min
  • Turnar segja sögur: El Fenomeno
    Ronaldo Nasário var með ljótustu hágreiðslu knattspyrnusögunnar á HM 2002 í undanúrslitum gegn Tyrkjum og í úrslitum gegn Þjóðverjum. Afhverju skartaði hann þessari sjónmengun. Við fórum yfir sögu þessar hágreiðslu í þætti dagsins. Ronaldo - El Fenomeno
    57 min
  • Útvarpsþátturinn - Verslunarmannahelgin með Túfa
    Útvarpsþátturinn er frumfluttur á föstudegi í tilefni Verslunarmannahelgarinnar. Tómas Þór, Elvar Geir og Benedikt Bóas.
    Farið er yfir fréttir vikunnar, Evrópuleikina, félagaskipti, komandi leiki í Bestu, Lengjudeildina, breytingar hjá kvennalandsliðinu og fleira.
    Í seinni hlutanum kemur Túfa, Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals í viðtal.
    1 hr 42 min
  • Enski boltinn - Vægast sagt athyglisvert sumar hjá Newcastle
    Síðustu ár höfum við á Fótbolti.net tekið upp hlaðvörp með stuðningsmönnum 'stóru sex' félaganna á Englandi fyrir hvert tímabil, en núna bætum við Newcastle inn í flóruna.
    Newcastle er svo sannarlega stórt félag á Englandi og mun á komandi tímabili taka þátt í Meistaradeildinni í annað sinn á þremur árum.
    Newcastle á nokkuð stóran hóp stuðningsmanna hér á Íslandi og komu tveir þeirra, Magnús Tindri og Hjálmar Aron, í heimsókn í Pepsi Max stúdíóið til að fara yfir stöðu mála en sumarið hefur verið vægast sagt áhugavert fyrir þeirra menn.
    52 min
  • Enski boltinn - Liverpool að smíða ofurlið
    Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina en það styttist í það að hún fari að rúlla.
    Í dag er komið að því að ræða sjálfa Englandsmeistarana í Liverpool.
    Magnús Haukur Harðarson og Arnar Laufdal komu í heimsókn í Pepsi Max stúdíóið og fóru yfir stöðu mála. Það hefur mikið verið að frétta í kringum Liverpool í sumar.
    56 min
  • Enski boltinn - Tottenham verður besta liðið í Evrópu
    Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina en það styttist í það að hún fari að rúlla.
    Í dag er komið að því að ræða Tottenham og það eru fáir betri í því en félagarnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson.
    Þeir ræddu Evróputitilinn, Thomas Frank og misheppnuð skipti Morgan Gibbs-White svo fátt eitt sé nefnt. Tottenham ætlar að verða besta lið Evrópu með því að vinna PSG í Ofurbikar Evrópu.
    53 min