Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Bíómyndahandrit
    Það var stórkostlegur leikur í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Newcastle og Liverpool áttust við.
    Þessi leikur kórónaði skemmtilega aðra umferð deildarinnar þar sem Tottenham lagði Manchester City, Arsenal sýndi flotta takta, Manchester United fór í sama gamla farið og Graham Potter virtist sigraður.
    Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson ræddu um umferðina að þessu sinni og tóku helstu sögulínur fyrir.
    53 min
  • Útvarpsþátturinn - Himnaríki Vestra og helvíti Vals
    Vestri er bikarmeistari 2025! Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í styttra lagi þennan laugardaginn en sigur Vestra á Val fær þó gott pláss.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum.
    - Bikarúrslitaleikurinn
    - Evrópuleikur Breiðabliks
    - Komandi leikir í Bestu deildinni og Lengjudeildinni
    - Og aðeins um enska boltann
    55 min
  • Ítalski boltinn - Upphitun fyrir tímabilið
    Hverjir verða Ítalíumeistarar? Hér er sérstakur upphitunarþáttur fyrir tímabilið í ítölsku A-deildinni sem fer af stað á laugardaginn.
    Elvar Geir og sérfræðingarnir Björn Már Ólafsson og Árni Þórður Randversson skoða hvað er framundan.
    Ítalski boltinn er sýndur hjá Livey á Íslandi og ef þú tekur þátt í skemmtilegum leik getur þú unnið AC Milan treyju og kassa af Peroni.
    38 min
  • Turnar Segja Sögur: Fc Risar vs Fc Dvergar
    Ómar Freyr Rafnsson, Bangsinn, kom í heimsókn til okkar og við skiptum í tvö lið. Risarvaxnir leikmenn gegn stórum egóum með færri sentimetra í vegabréfinu.Getur De La Pena dekkað Duncan Ferguson í föstum leikatriðum?Góða skemmtun!
    0 min
  • Hugarburðarbolti GW 1 Ballið er byrjað!
    Fyrsta umferðin fór af stað með látum á föstudagskvöld með Liverpool sigri á Bournemouth. Við Hreimur Örn Heimisson sem var gestur þáttarins fórum yfir þann leik ásamt öllu öðru sem gerðist í þessari fyrstu leikviku tímabilsins 2025/26. Top 3 á sínum stað ásamt rauða spjaldinu og svo er það nýr liður sem er fantasy pick umferðarinnar.
    Write to Vignir Már Eiðsson
    0 min
  • Innkastið - Gamlir draugar hjá Val, ÍA fallið og deilt um dóm
    Besta deildin verður bara áhugaverðari og áhugaverðari. Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór.
    Skipin hafa verið sett í slipp, Framarar stimpla sig í fallbaráttuna, ÍA er fallið, frábær umferð fyrir Víkinga, hörmulegur varnarleikur í Kópavogi, gamlir draugar gera vart við sig hjá Val og umdeildur dómur í Garðabæ.
    Einnig rætt um bikarúrslitaleikinn framundan og Lengjudeildarhornið er á sínum stað.
    0 min
  • Enski boltinn - Arsenal með mark úr horni
    Enska úrvalsdeildin er hafin að nýju!Arsenal vann torsóttan sigur gegn Manchester United með mark úr horni, Liverpool byrjaði titilvörnina á sigri, Manchester City virka mjög sannfærandi, og Chelsea eru heimsmeistarar en geta ekki skorað.Haraldur Örn Haraldsson stýrir þættinum í fjarveru Guðmundar Aðalsteins. Jökull Andrésson markvörður Aftureldingar og Manchester United stuðningsmaður mætti í heimsókn, auk Vilhjálms Kaldal Sigurðssonar framherji Þróttar, en hann er Arsenal stuðningsmaður.
    1 hr 8 min