Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Hugarburðarbolti GW 3 Sturlaður loka gluggi í enska !
    Draumamark Dominiks Szobozlai skildi lið Liverpool og Arsenal að um helgina. Man Utd kreisti fram sigur á elleftu stundu. Brighton skellti Man City. West Ham létti pressunni af stjóra sínum með 0-3 sigri í Notthingham. Chelsea sigraði Fulham 2-0 í Lundúna slag á Brúnni og Tottenham lá á heimavelli 0-1 gegn spræku liði Bournemouth.
    1 hr 23 min
  • Enski boltinn - Öflugir Ungverjar, taugahrúgan Amorim og gluggadagur
    Mjög svo áhugaverð umferð í ensku úrvalsdeildinni að baki.
    Ungverjarnir hjá Liverpool voru öflugir á móti Arsenal með Ungverja í stúkunni, Manchester United náði í kærkominn sigur með taugahrúguna Rúben Amorim á hliðarlínunni og Tottenham gerði eins og Tottenham gerir vanalega.
    Þá er gluggadagur í dag en þetta væri einhver áhugaverðasti gluggadagur seinni tíma.
    Guðmundur Aðalsteinn ræddi við Baldvin Már Borgarsson og Magnús Hauk Harðarson um það helsta í þessu.
    56 min
  • Innkastið - Besti leikur tímabilsins og allt í járnum á toppnum
    Innkast vikunnar og Valur Gunnarsson stýrir þættinum í fjarveru Elvars Geir. Haraldur Örn og sérstakur gestur Gunnlaugur Jónsson fóru yfir umferðina.Víkingur og Breiðablik gerðu jafntefli í frábærum leik, Stjarnan kom til baka gegn KA, ÍA féll á sínum síðasta séns, Afturelding líklegastir að falla með þeim, Valsmenn rændir og KR vinna enn ekki.
    1 hr 17 min
  • Uppbótartíminn - Ræðst allt saman á fimmtudaginn
    Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum á þessu sólríka sunnudagskvöldi.
    Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna var hin mesta skemmtun og þá voru Breiðablik og Valur að spila í Evrópu. Svo eru bara þrjár umferðir eftir fram að skiptingu í Bestu deild kvenna.
    Næstkomandi fimmtudagur verður svakalegur en nánar var rætt um það í þættinum.
    Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fara yfir allt það helsta í kvennaboltanum.
    51 min
  • Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992
    Sumarið 1992 skrifuðu Danir sig í sögubækurnar. Þeir mættu til Evrópumótsins í Svíþjóð án þess að hafa unnið sér rétt til þess að spila í mótinu og enduðu sem Evrópumeistarar. Sigurinn var einstakur og eftir mótið var reglum fótboltans breytt. En þessi ótrúlegi árangur kom ekki úr lausu lofti. Hann átti sér langan og áhugaverðan aðdraganda sem við rákum í þessum þætti þar sem við rýnum í söguna um okkar ástsælu frændur og ferðalag þeirra að óvæntu Evróputitlinum.Langbestu skemmtun!
    59 min
  • Innkastið - Stundum hata ég fótbolta
    Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.
    Valsmenn sýndu vígtennurnar eftir hlé, Víkingar með öruggan sigur gegn bikarþunnum Vestramönnum, Óskar Hrafn hatar stundum fótbolta, Árni Snær bjargaði Stjörnunni, gæðalaust í Krikanum, KA á skriði en Fram heldur áfram að færast nær vandræðum.
    56 min
  • Hugarburðarbolti - Man Utd er í veseni
    Tottenham lögðu Man City á Etihad sannfærandi. Arsenal löbbuðu yfir Leeds á heimavelli. Brentford sigraði Aston Villa 1-0. Everton með glæstan heimasigur í fyrsta leiknum á nýja stórglæsilega Hill Dickenson stadium. Chelsea kjöldrógu West Ham 1-5 á Ólympíu leikvanginum í London. Man Utd náðu í sterkt stig gegn Fulham í London. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Spursari var gestur þáttarins og við fórum yfir umferðina.
    59 min