Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - KR niðurlægt og Blikar í svaka brasi
    Innkastið eftir 22. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Almarr Ormarsson. Ljóst er hvernig deildin skiptist upp.
    Víkingar eru á toppnum eftir 7-0 sigur gegn KR og í fallbaráttunni er ÍA skyndilega með lífsmarki! Stjarnan hefur unnið fimm í röð en spilamennska Blika er áhyggjuefni í Kópavogi.
    Lengjudeildarhornið á sínum stað.
    58 min
  • Enski boltinn - Með annan fótinn inn á vinnumálastofnun
    Manchester United átti ekki mikinn möguleika í nágrannaslagnum gegn Manchester City í dag. Rúben Amorim er með að meðaltali eitt stig í leik sem stjóri United og spurning hvort hann fari að leita til vinnumálastofnunnar fljótlega.
    Það var dramatík á Turf Moor þar sem Liverpool skoraði í blálokin og það var líka drama hjá Brentford og Chelsea. Tottenham svaraði slæmu tapi vel og Arsenal var sannfærandi gegn lærisveinum Ange Postecoglou í Tottenham.
    Þetta og meira í þessum þætti en Magnús Haukur Harðarson og Vignir Már Eiðsson voru ásamt Guðmundu Aðalsteini í þættinum.
    1 hr 8 min
  • Leiðin úr Lengjunni: Til hamingju Þórsarar
    Þórsarar unnu úrslitaleikinn gegn Þrótturum og vinna því Lengjudeildina. Keflavík vann Selfoss og felldi þá niður í 2. deildina og um leið fóru bakdyraleiðina upp í umspilið. ÍR missti af umspilinu í loka leik þar sem þeir töpuðu fyrir Fylki.Stefán Marteinn Ólafsson mætti aftur að stýra þættinum og með honum voru Sverrir Örn og Haraldur Örn.
    0 min
  • Leiðin úr Lengjunni: Upphitun fyrir lokaumferðina með Jóni Ólafssyni
    Loka umferð Lengjudeildarinnar fer fram á Laugardaginn klukkan 14:00 þar sem þrjú lið geta unnið deildina. Þrjú lið eru í hættu á að missa af umspili, og fjögur lið geta endað í fallsæti. Haraldur Örn og Sverrir Örn fóru yfir þetta ásamt Þróttaranum Jóni Ólafssyni sem var sérstakur gestur í þættinum. Einnig var hringt í Sæbjörn Steinke og Stefán Martein.
    1 hr 5 min
  • Hugarburðarbolti EXTRA!
    Villi Neto kíkti til okkar í Hugarburðarbolta Extra og við fórum yfir það helsta. Völdum topp 5 bestu fantasy pikkin það sem af er tímabili. Kaup og sölur liðanna voru rædd og við rýndum í framhaldið eftir þetta landsleikjahlé. Fórum yfir liðin okkar og hverjar fyrirætlanir okkar eru í næstu umferðum.
    0 min
  • Innkastið - Rafmögnuð lokaumferð í Lengjunni
    Hér er sérstakur aukaþáttur af Innkastinu, þar sem Lengjudeildin er í aðalhlutverki. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars fara yfir málin.
    Taugarnar voru þandar í 21. umferðinni og í lokaumferðinni verður hreinn úrslitaleikur þegar Þróttur mætir Þór og bæði lið þurfa að sækja til sigurs því Njarðvíkingar eru tilbúnir að stela toppsætinu.
    Fjölnismenn eru fallnir en lífsbaráttulaugardagur framundan í fallbaráttunni.
    1 hr
  • Útvarpsþátturinn - Skemmdarverk á íþrótt
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. september.
    Í upphafi þáttar heyrir Elvar Geir í Frey Alexanderssyni, þjálfara Brann í Noregi en liðið er á leiðinni í Evrópudeildina.
    Svo fær landsliðið sviðið eftir flottan 5-0 sigur gegn Aserbaídsjan. Ungir leikmenn létu til sín taka en hversu lélegir eru Aserar? Elvar, Tómas Þór og Valur Gunnars gera upp leikinn.
    Vont tap U21 landsliðsins og komandi leikir í Lengjudeildinni fá einnig pláss.
    1 hr 23 min