Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Skjótt skipast veður í lofti
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 4. október. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum.
    - Aron Guðmundsson íþróttafréttamaður um þjálfaraskiptin á Ísafirði.
    - Farið yfir næstu umferð í Bestu deildinni, helstu fréttir og þjálfaraslúður.
    - Hver hefur verið bestur í hverju liði í Bestu deildinni? Hverjir hafa verið mestu vonbrigðin?
    - Tómas Meyer ræðir um þjálfaraskiptin í Kaplakrika.
    - Landsliðsval Arnars fyrir leikina gegn Úkraínu og Frakklandi.
    0 min
  • Turnar Segja Sögur: Graeme Souness
    Graeme Souness var leikmaður, þjálfari og sjónvarpsmaður og var sigursæll en einnig afar umdeildur.Saga Liverpool FC, söguleg endurkoma Glasgow Rangers, Rod Stewart að drekka bjór með Sigga Jóns í Reykjavík, borgarastyrjöld í Istanbul, sögur af ofbeldi og frændi George Weah koma við sögu í þætti dagsins.Turnar segja sögur ætla að ræða Graeme Souness í þætti dagsins.
    1 hr 3 min
  • Hugarburðarbolti GW 6 Verður Amorim stjóri Man Utd næstu helgi?
    Crystal Palace eina ósigraða liðið í deildinni gerðu sér lítið fyrir og skelltu meisturum Liverpool 2-1 á Selhurst Park. Arsenal með svakalegan endurkomusigur gegn sterku Newcastle liði á St.James's Park. Brentford vann Man Utd 3-1. Aston Villa vann loks sigur 3-1 gegn Fulham. Sunderland ævintýrið heldur bara áfram. Úlfarnir komust loksins á blað og Brighton skelltu Chelsea á Brúnni 1-3.
    1 hr 18 min
  • Innkastið - Þjálfarakapall og Víkingar meistarar
    Innkastið eftir 24. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Magnús Haukur.
    Davíð Smári hætti með Vestra eftir skell gegn ÍBV. Víkingar syngja um að þeir séu Íslandsmeistarar en KR-ingar syngja um fall. Hvaða þjálfarahræringar verða á næsta tímabili?
    Lengjudeildarhorn og ýmislegt fleira!
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Milan Stefán Jankovic
    Milan Stefán Jankovic er lifandi goðsögn í fótboltanum á Íslandi. Janko, líkt og hann er kallaður, kom til Íslands árið 1992 og hefur hann svo sannarlega skilað sýnu til fótboltasamfélagsins á Íslandi. Við fórum yfir ferilinn hans, bæði hérlendis og erlendis. Samstarfsaðilar okkar Turnanna eru Visitor, Lengjan, Hafið, World Class og Budvar félagi okkar!
    1 hr 19 min
  • Enski boltinn - Menn að tala um meistarasigur
    Það voru mörg áhugaverð úrslit í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Hvenær ætlar Manchester United eiginlega að reka Rúben Amorim?
    Arsenal vann dramatískan sigur á Newcastle en á meðan tapaði Liverpool sínum fyrstu stigum gegn sterku Crystal Palace liði. Manchester United spilaði hörmulega og Chelsea tapaði gegn Brighton.
    Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Orri Fannar Þórisson fóru yfir stöðuna í Enski boltinn hlaðvarpinu.
    1 hr 4 min