Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Siggi Höskulds - Besta deildin kallar
    Þórsarar unnu Lengjudeildina í ár og verða í Bestu deildinni á næsta tímabili í fyrsta sinn í tólf ár.
    Sigurður Heiðar Höskuldsson er þjálfari Þórsara og fór Sæbjörn Steinke ítarlega yfir tímabilið með þjálfaranum.
    Af hverju var spilað í Boganum? Hvað þurfti að gera á milli tímabila? Snert á nokkrum vendipunktum og farið yfir það helsta sem gerðist síðasta árið hjá Þór. Hér má nálgast samskonar viðtal sem tekið var eftir tímabilið 2024.
    2 hr
  • Útvarpsþátturinn - Lokabardagar Bestu deildarinnar
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke í Pepsi Max stúdíóinu.
    Besta deildin er burðarefni þáttarins en tvær umferðir eru eftir og KR gæti fallið á sunnudaginn. Valið er lið ársins úr liðunum í neðri hluta deildarinnar.
    Í lokin gerum við upp landsleikjagluggann en það stefnir í úrslitaleik gegn Úkraínu í Póllandi í nóvember.
    1 hr 17 min
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðið og Besta með Baldri og Sölva
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. október. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.
    Baldur Sigurðsson er með þeim félögum í umræðu um landsliðið og tapið fyrir Úkraínu og einnig er rætt um Bestu deildina.
    Svo er Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Íslandsmeistara Víkings, sérstakur gestur í seinni hluta þáttarins og fer yfir leiðina að titlinum.
    1 hr 44 min
  • Hugarburðarbolti GW 7 Arsenal komnir á toppinn!
    Arsenal komnir á toppinn í deildinni eftir helgina. Semenyo áfram á eldi. Chelsea vann Liverpool á Brúnni. Manchester liðin unnu bæði sína leiki um helgina. Everton með rosalegan endurkomusigur gegn Crystal Palace. Nottingham Forest í brasi eftir enn eitt tapið og núna gegn Newcastle í norðrinu.
    1 hr 21 min
  • Uppbótartíminn - Til hamingju Blikar!
    Breiðablik er Íslandsmeistari annað árið í röð, þær voru einfaldlega langbesta liðið í Bestu deild kvenna í sumar.
    Það tók smá tíma fyrir Blika að innsigla titilinn en það tókst gegn Víkingi síðasta föstudagskvöld.
    Ásta Eir Árnadóttir, fyrrum fyrirliði Breiðabliks, er með Guðmundi Aðalsteini og Magnúsi Hauki í þættinum að þessu sinni en einnig er rætt um ráðningu á nýjum aðstoðarlandsliðsþjálfara og margt fleira í þættinum sem var tekinn upp í Pepsi Max stúdíóinu.
    58 min
  • Enski boltinn - Er Liverpool í krísu?
    Liverpool tapaði sínum þriðja leik í röð er þeir fóru í heimsókn á Stamford Bridge í gær. Englandsmeistararnir hafa ekki verið sannfærandi í upphafi tímabils en eru þó í öðru sæti.
    Arsenal skellti sér á toppinn og United tókst að vinna með nýjan markvörð á milli stanganna.
    Antoine Semenyo er magnaður leikmaður og Ange Postecoglou... hvað er hægt að segja?
    Guðmundur Aðalsteinn fór yfir allt það helsta í enska boltanum með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Hrafni Kristjánssyni í Pepsi Max stúdíóinu.
    53 min
  • Innkastið - Stóru málin með Bjössa Hreiðars
    Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Sigurbjörn Hreiðarsson.
    Víkingar eru verðskuldaðir meistarar og í neðri hlutanum var allt pakkfullt af dramatík í leik KR og Aftureldingar. Þetta og svo mikið meira.
    1 hr 9 min