Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Davíð Smári, kapallinn og ensk verðlaun
    Davíð Smári Lamude er sérstakur gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór.
    Davíð, sem gerði Vestra að bikarmeisturum í ár, var á dögunum kynntur sem nýr þjálfari Njarðvíkur. Farið er yfir allt það helsta í íslenska boltanum.
    Benedikt Bóas er í beinni frá Glasgow og Daníel Geir Moritz velur úrvalslið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni hingað til.
    0 min
  • Hugarburðarbolti GW 10 Hver er hinn fullkomni fantasy leikmaður?
    Arsenal með 6 stiga forskot á Man City á toppnum eftir 0-2 sigur gegn nýliðum Burnley. Loksins vann Liverpool sigur þegar Aston Villa kom í heimsókn. Chelsea lagði Tottenham á útivelli þar sem að Joaõ Pedro skoraði sigurmarkið. West Ham með langþráðan sigur á Newcastle. Man Utd tókst ekki að halda sigurgöngu sinni áfram í Skírisskógi. Brighton og Crystal Palace með góða sigra og Erling Haaland heldur áfram að vera heitur þegar City lögðu Bournemouth.
    0 min
  • Enski boltinn - Klippingin bíður betri tíma
    Stuðningsmaður Manchester United kemst ekki alveg strax í klippingu, Liverpool vann leik og Arsenal er að hóta því sterklega að stinga af.
    Þá var stjóri rekinn, Tottenham skeit upp á bak gegn Chelsea og West Ham tókst að vinna óvæntan sigur.
    Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en með honum eru ÍR-ingarnir Ágúst Unnar Kristinsson og Sölvi Haraldsson.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - KR, Liverpool og Kjærnested
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 1. nóvember. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas.
    Farið er yfir helstu fréttir og slúður úr íslenska boltanum og val á bestu leikmönnum. Svo mætir Kristinn Kjærnested í heimsókn og ræðir um KR, stöðu mála hjá Liverpool og fleira.
    0 min
  • Hugarburðarbolti GW 9 Er orðið heitt undir Arne Slot ?
    Englandsmeistararnir töpuðu sínum fjórða leik í röð í deildinni. Arsenal með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Man City og Chelsea töpuðu bæði sínum leikjum um helgina. Man Utd spiluðu sinn besta leik á tímabilinu. Nýliðarnir unnu sína leiki og Bournemouth eru í 2.sæti deildarinnar eftir 9.umferðir.
    1 hr 17 min
  • Uppbótartíminn - Nik kveður og félög skera niður
    Það er alvöru þáttur af Uppbótartímanum í dag þegar tímabilið er gert upp.
    Nik Chamberlain, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks, mætir í þáttinn og ræðir stórkostlegan árangur og næsta skref sem er í Svíþjóð. Hann er að kveðja íslenskan fótbolta eftir mörg ár hér á landi.
    Þá mætir Adda Baldursdóttir í seinni hlutann og gerir upp tímabilið með Guðmundi Aðalsteini og Magnúsi Hauki. Einnig er snert á landsliðinu.
    2 hr 2 min
  • Enski boltinn - Man Utd stakk sér fram úr Liverpool
    Hlutirnir eru fljótir að breytast í fótboltanum en Manchester United er komið fram úr Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
    United vann sinn þriðja sigur í röð um helgina á meðan Liverpool tapaði sínum fjórða deildarleik í röð.
    Arsenal er með fjögurra stiga forskot á toppnum en Einar Guðnason mætti í Pepsi Max stúdíóið í dag og fór yfir gott gengi sinna manna. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnús Haukur Harðarson eru einnig í þættinum, misglaðir eftir helgina.
    45 min