Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - KR eignaði sér Ísafjörð og sláin lék Blika grátt
    Lokaþáttur Innkastsins þetta tímabilið! Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke.
    KR hélt sér í deildinni eftir að hafa farið hamförum á Ísafirði, Vestri og Afturelding voru í efri hlutanum eftir tólf umferðir en féllu. Víkingar fögnuðu við litla hrifningu lögreglunnar og það var nóg af áhugaverðum viðtölum.
    Steinke var svo með annál tímabilsins að lokum. Takk fyrir hlustunina!
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Dómsdagur rennur upp í Bestu
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Haldið er sérstakt lokahóf í Pepsi Max hljóðverinu og opinberað val á liði ársins, leikmanni ársins, þjálfara ársins, besta unga leikmanninum og dómara ársins.
    Hitað er upp fyrir lokaumferðina í Bestu deildinni. Hvaða lið munu falla? Mun Breiðablik stela Evrópusætinu af Stjörnunni?
    Einnig er rætt um þjálfarakapalinn, Íslendinga í Evrópukeppnum og skoðað hvaða leikir eru um helgina í enska boltanum.
    1 hr 32 min
  • Enski boltinn - Loksins vinnur United á Anfield og Postecoglu rekinn
    Manchester United vann Liverpool á Anfield í fyrsta skipti síðan 2016. Þetta var fjórði tapleikur Liverpool í röð eftir sterka byrjun þeirra á mótinu.Chelsea vann Nottingham Forest 3-0 þar sem þeim tókst að næla sér í rautt spjald fjórða leikinn í röð. Aðal fréttin eftir þann leik var hins vegar að Ange Postecoglu var rekinn frá félaginu og Sean Dyche mun taka við.Haraldur Örn Haraldsson fór yfir allt það helsta í fjarveru Guðmundar Aðalsteins, með Arnóri Gauta Ragnarssyni og Loga Pál Aðalsteinssyni.
    1 hr 6 min
  • Kjaftæðið - Hvaða kjaftæði er í gangi í Bestu deildinni?
    Baldvin Borgarsson fékk til sín Víkinginn Tómas Guðmundsson og Blikann Hilmar Jökul til þess að tækla stóru málefnin í boltanum í dag, Tómas er einmitt vinur Sigurðar Egils sem stendur í stappi við Val þar sem yfirlýsingar fljúga á milli innan stuðningsmannasíðu Vals á Facebook og gaf Tómas okkur ákveðna innsýn í það, þá fór Hilmar Jökull yfir tíðindi dagsins úr Smáranum þar sem Halldór Árnason var óvænt sagt upp störfum og Ólafur Ingi Skúlason ráðinn, nóg um að vera í Bestu deildinni en einnig fórum við vel yfir Enska boltann.
    1 hr 13 min
  • Innkastið - Brottrekstur Blika og yfirlýsingar á Hlíðarenda
    Innkastið úr Pepsi Max hljóðverinu. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er sagnfræðingurinn og Framarinn Stefán Pálsson.
    Umferðinni lauk með leik Fram og Stjörnunnar, þjálfaraskipti urðu í Kópavoginum, Valsmenn sáu sig knúna til að senda yfirlýsingu og það er lífsbaráttu-laugardagur framundan!
    1 hr 10 min