Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Afhroð í Kóngsins og spáin fyrir enska
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 16. ágúst. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir allt það helsta í boltanum.
    Evrópuskellur Víkings, tap Blika, glugganum var lokað, heil umferð í Bestu er framundan, áhugaverðir leikir í Lengjudeildinni og enski boltinn er byrjaður að rúlla.
    Farið er yfir spá okkar fyrir ensku úrvalsdeildina.
    1 hr 56 min
  • Turnar Segja Sögur: Pizzagate
    Sir Alex Ferguson og Arsène Wenger eru tveir goðsagnakenndir knattspyrnustjórar sem gerðu Manchester United og Arsenal að risum í ensku úrvalsdeildinni. Þeir börðust á banaspjótum í meira en áratug, skiptust á að vinna titla og kveiktu í áhorfendum með ógleymanlegum leikjum. En úr eldi hatursins kviknaði virðing og úr virðingunni óvænt vinátta.“Seems a little quiet over hereBe the first to comment on this trackRelated tracksView allTveggja Turna Tal#1 Sigurður Ragnar Eyjólfsson415 plays415View all likes4Go mobileDownload on the App StoreGet it on Google PlayLegal · Privacy · Cookie Policy · Cookie Manager · Imprint · Artist Resources · Blog · Charts · Transparency ReportsLanguage: English (US)Play currentCurrent time: 0 seconds0:00
    0 min
  • Uppbótartíminn - Landsliðsspekúleringar, markaflóð og stærsti leikur ársins
    Það var nóg að fara yfir í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann að venju.
    Það verður breytt þjálfarateymi hjá A-landsliði kvenna og voru spekúleringar um það, markaflóð í síðustu leikjum í Bestu deild kvenna, FHL er komið á blað í deildinni og stærsti leikur ársins, bikarúrslitaleikurinn, er framundan.
    Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson settust niður í Pepsi Max stúdíóinu með Mist Rúnarsdóttur og fóru yfir stöðu mála.
    1 hr 9 min
  • Enski boltinn - Oasis sneri aftur en mun City gera það líka?
    Fótbolti.net hefur síðustu daga hitað upp fyrir ensku úrvalsdeildina með hlaðvörpum við stuðningsmenn stærstu félaganna. Núna er komið að síðasta liðinu sem er Manchester City.
    City vann ekki neinn stóran titil á síðasta tímabili og það voru vonbrigði eftir árangurinn síðasta áratug.
    Pep Guardiola hefur farið í að endurbyggja liðið og spurningin er hvort City komist aftur á toppinn. Oasis, sem eru miklir stuðningsmenn City, komu til baka í sumar en mun City gera það líka?
    Magnús Ingvason og Davíð Eldur, stuðningsmenn City, mættu í Pepsi Max stúdíóið og fóru yfir stöðu mála hjá sínu félagi.
    0 min
  • Enski boltinn - Án ofdekraðra aumingja aftur í Meistaradeildina
    Manchester United átti mjög slæmt tímabil í fyrra og endaði í 15. sæti. Það eru teikn á lofti að mun bjartari tímar séu framundan, öflugur gluggi í sumar og tiltekt í gangi. Benjamin Sesko, Bryan Mbeumo og Matheus Cunha eru mættir og vonir um að Gigi Donnarumma og Carlos Baleba komi einnig.
    Enski boltinn fór alla leið til Akureyrar í dag og var því ekki tekinn upp í Pepsi Max stúdíóinu.
    Þeir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn eru harðir United menn og eru mjög spenntir fyrir komandi tímabili. Þeir fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke.
    0 min
  • Innkastið - Setti enni í enni og kveikti í sínu liði
    Innkastið eftir gríðarlega fjöruga 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Benni Bóas.
    Þjálfurunum er heitt í hamsi, KR-ingar fengu urmul færa og náðu sigri, Valur vann stórleikinn gegn Breiðabliki og Víkingar töpuðu gegn tíu Stjörnumönnum.
    1 hr 5 min
  • Útvarpsþátturinn - Boltabullur, markamet og enski boltinn
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 9. ágúst 2025. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir.
    Rætt er um Evrópuleiki vikunnar og Sverrir Geirdal framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Víkings ræðir um boltabullulæti stuðningsmanna Bröndby.
    Sigurbjörn Hreiðarsson er á línunni og ræðir um markamet Patrick Pedersen.
    Magnús Þór Jónsson mætir í settið og ræðir um Lengjudeildina, Liverpool og enska boltann.
    1 hr 58 min
  • Turnar Segja Sögur: Gullit&Rijkaard
    Félagarnir Hermann Rijkaard og George Gullit fóru með skipi frá Surinam til Hollands árið 1957. Í septembermánuði fimm árum seinna áttu þessir félagar báðir eftir að eignast syni, Frank Rijkaard og Ruud Gullit, sem áttu eftir að breyta fótboltanum í Hollandi og víðar.Við fórum yfir ótrúlega áhugaverðan ferill þessara æskuvina, sem leikmenn undir Sacchi og Berlusconi og sem þjálfarar sem vinna meistaradeildina og fá Shearer og Big Duncan brjálaða inn á skrifstofu til sín!Njótið vel!
    51 min