Í fyrsta þætti Loftslagsþerapíunnar er horfir þáttastjórnandi í tilvistarkreppu til fortíðar og framtíðar.
Í fyrri hluta þáttarins er saga loftslagsumræðunnar rakin í stórum dráttum og sett í samhengi við líf okkar sem lifum í dag.
Í síðari hluta hans er rætt við vísindamenn um stöðuna, hversu alvarleg hún er í raun og hvers vegna vísindamenn vilja ekki hugsa um áhrif fjögurra eða fimm gráðu hlýnunnar.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.