Fjallað er um strengina í lífi okkar, þá sem færa okkur nær hvort öðru, þá sem stýra okkur, og þá sem slitna. Við sögu kemur ástarsaga frá miðöldum þar sem einn lítill fugl syngur innilega og línkyrtill blóðgast, skyggnst verður inn í töfraheim strengjabrúða á leiksviði, nýjir strengir lagðir og plokkaðir hér og nú.
Sif Ríkharðsdóttir ræðir um Strengleika, safn ljóðsagna frá miðöldum, Kristinn H. Árnason ræðir um gítarleik og rifjar upp sögulega tónleika sem áttu sér stað í Vínarborg árið 1808, og Sigríður Sunna Reynisdóttir talar um strengjabrúður og brúðuleikhús í víðu samhengi. Vigdís Hrefna Pálsdóttir les Laustiks ljóð úr safni Strengleika, hún les ljóð eftir Federico Garcia Lorca (Gátan um gítarinn, Sex strengir), í þýðingum Hallbergs Hallmundssonar, Sigurðar A. Magnússonar og Baldurs Óskarssonar. Hún les einnig ljóðið Hér stilltu guðir strengi eftir Þorstein frá Hamri, og brot úr smásögunni Um brúðuleikhúsið eftir þýska skáldið Heinrich von Kleist.
Umsjón: Eiríkur Guðmundsson.
Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson.
(Frá 2015)