
Sign up to save your podcasts
Or


Oft var þörf en nú er nauðsyn, Frú Barnaby rís eins og fönix úr öskunni til að svara ákalli samfélagsins um vitræna umfjöllun um hið stóra Kötumál. Ekki stóð á Lóu og Móu og með hjálp ónefnds freyðandi drykks, gengu þær í málið - Vesgú! KKVLOGM
Jahá, það eru aldeilis fréttir úr hlaðvarpsgerðarturninum. Þær stöllur, Lóa og Móa opna dyr inn í framtíðina en skilja eftir rifu inn í fortíðina. Völva frú Barnabys spáir fyrir þeim í tarot sem og framtíð allra hlustenda: Keisarinn, sól, tungl og dularfullar dökkhærðar konur koma við sögu. Upptökustjórinn mundar svipuna og setur sterkan svip á þennan þátt sem er sá síðasti í bili.
Lóa og Móa eru mættar upp í stúdíó Barnaby, sitja í hægindastólum umvafðar köflóttum teppum, orna sér við arineld og Lóa með Coco (upptökustjórann) í kjöltu. Þær stöllur veigra sér ekki við að fara yfir flest aðkallandi samfélagslegu málefni líðandi stundar, eins og jólagjafir, kapítalisma, heimilisleysi og jólaanda. En einnig beina þær Barnaby-gleraugunum á áhrifavalda, stöðu þeirra í samfélaginu og jú auðvitað áhrif. Díönuhornið er á sínum stað og einkar kræsilegt að þessu sinni enda af nógu að taka á þeim vígstöðvum. Við óskum hlustendum gleðilegra jóla nær og fjær og farsældar á nýju ári, ykkar Lóa og Móa
Já, þið heyrðuð rétt, þær eru komnar aftur: Drottningar hlaðvarpsgerðar á Íslandi. Eftir margra mánaða langa þögn koma þær Lóa og Móa með nýja seríu. Og af nógu er að taka, jarðarför aldarinnar, krúnan, samsæriskenningar aðdáenda Frú Barnaby eru meðal umræðuefna. Við þökkum jafnframt áhugasömum aðdáendum fyrir orðsendingar, hvísl og hnipp. Örvæntið eigi, við erum komnar úr fríinu!
Lóa og Móa eru mættar í Kanínuholuna til að taka upp síðasta þátt seríunnar. Þær eru í sumarskapi með sumarmjöð í glasi og ræða það sem er efst á baugi þessa daganna svo sem félagskap sinn í aðdáendahópi Barnaby, sveppir, mýs og morgunfrúr. Leynigestur laumast inn með rúv-passa um hálsinn og leggur orð í bauk. Þetta hefur verið lærdómsrík sería og þær stöllur eru spenntar að halda inn í sumarið með gott veganesti frá garðgúrúinum Monty Don. Gleðilegt sumar og heyrumst síðar. Móa og Lóa
Frú Barnaby fékk til sín góðan gest frá fyrirheitna landinu, en það er hann Aron Már Ingham Grímsson. Aron leiðir okkur í sannleika um menningarheim Midsomer, en við spjöllum saman um blásíldina og gamla breta. Nú Aron segir okkur einnig frá lystisemdum breskrar matargerðar sem hefur oft á tíðum verið vanmetin í gegnum tíðina. Lóa og Móa hlusta á átekta og bíða spenntar eftir heimsfrægðinni sem mun fylgja því að frúin gerist alþjóðleg, en þátturinn er á ensku að þessu sinni!
Þá er komið að því! Stöllurnar sívinsælu láta loks í sér heyra eftir annasamar vikur. Afmælishátíðarhöld, vídeókvöld og hámhorf hafa verið í forgangi. En nú er danskortið autt og þær Móa og Lóa gefa sér tíma til að skeggræða þetta alltsaman fyrir ykkur til að njóta. Díönuhornið er í forgrunni í þessum þætti en einnig taka þær fyrir Borgartúnsþættina geysivinsælu og svo fá garðyrkjugullfræin og galdrabaunirnar að fljúga inn á milli.
Marglyttan og ansjósan brjótast út úr heilaþokunni hressari enn nokkru sinni fyrr, enda er afmælismánuður Frú Barnaby genginn í garð. Hátíðarhöld eru margvísleg, en þau hefjast á einkaþotuflugi. Fyrsti áfangastaður er húðflúrstofa, annar er heimili Kardashian fjölskyldunnar en ferðinni lýkur með lúxuslúr meðan vinir og vandamenn reiða fram veitingar.
Fimmtugasti og fyrsti þátturinn af þessu bulli - gjörið svo vel!
Móa og Lóa eru mættar í júbíleum hátíðarhöld drottningarinnar Jónu - sem slær upp konunglegri veislu. Veitingarnar eru ekki af verri endanum en við nýtum tækifærið til þess að smakka nýja Royal búðinginn og kveða upp dóm. Margt ber á góma, bókaútgáfa, söfnunarárátta, starfsumhverfi myndlistarmanna - og engar áhyggjur, það er slúðrað! Nú Jóna hvetur hlustendur til vera þau sjálf, gera það sem þau vilja, gefa út bók, tala íslensku og heilsast með sleik.
From the publisher's feed