Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Scorpions - Rock Believer
    Plata Þáttarins er ný plata frá þýsku strákunum í Scorpions. Hún heitir Rock Believer
    Vinur þáttarins sendir pistil og lag að vanda og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Rock Believer er nítjánda breiðskífa þjóðverjanna í Scorpions og kom út núna 22. Febrúar sl. Hún er fyrsta plata Scorpions með nýja trommaranum, Mikkey Dee, sem tók við kjuðunum af James Kottak árið 2016. Scorpions sendi síðast frá sér plötuna Return to Forever árið 2015.
    Scorpions er gríðarlega lífseig hljómsveit, búin að vera starfandi frá Bítlaárunum, var stofnuð í Hanover árið 1965 af gítarleikaranum Rudolf Schenker. Músíkin sem Scorpions hefur sent frá sér í gegnum tíðina er allskonar rokk; Glam-rokk, sorf-rokk, hard-rokk og Heavy Metal. Semsagt; Rokk.
    Vinsældir Scorpions voru hvað mestar frá 1978 ? 1992 en þá voru í hljómsveitinni þeir Klaus Meine (söngur), Rudolf Schenker (gítar), Matthias Jabs (sóló-gítar), Francis Buchholz (bassi), og Herman Rarebell (trommur). Sá eini sem hefur verið í bandinu allan tímann er Rudolf Schenker, en Klaus Meine hefur sungið á öllum plötum Scorpions.
    Platan náði í annað sæti þýska vinsældalistans þegar hún kom út.
    2 hr 35 min
  • The Damned - Damned Damned Damned
    Plata Þáttarins er fyrsta stóra pönkplatan sem kom út í Bretlandi. Fyrsta plata hljómsveitarinnar The Damned. Hún heitir Damned, damned, damned.
    Vinur þáttarins sendir pistil og lag að vanda og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Platan kom semsagt út 18. febrúar 1977 á vegum plötuútgáfunnar Stiff. Upptökustjóri var bretinn Nick Lowe sem vann líka með Elvis Costello á sínum tíma sem upptökustjóri.
    Damned sendi frá sér fyrstu litlu plötuna í október 1976 og þar var á A-hliðinni lagið New Rose sem vakti talsverða athygli meðal ungs fólks í Bretlandi og Evrópu. Þarna var komið eitthvað alveg nýtt, nýtt sánd og nýr kraftur sem byggði reyndar á frumstæðu frum-rokki 50?s og 60?s frumkvöðlanna. Og á B-hliðinni var t.d. Bítlalagið Help í kraftmiklum Damned búningi.
    Í kjölfar New Rose sem er fyrsta pönk-lagið sem gefið var út í Bretlandi, og tónleikaferðar um Bretland með Sex Pistols, Clash og The Heartbrakers, var ákveðið að gera stóra plötu og hún var tekin upp á 10 dögum og mixuð 15. Janúar 1977.
    Sveitina sem er enn starfandi skipuðu:
    Dave Vanian ? söngur
    Brian James ? gítar og söngur
    Captain Sensible ? bassi og söngur
    Rat Scabies ? trommur og söngur
    Dave Vanian og Captain Sensible eru enn í Damned og það er plata væntanleg á þessu ári, og Rat Scabies og Brian James hafa verið að spila með hljómsveitinni á tónleikum undanfarið.
    Damned hefur komið 9 lögum inn á topp 40 í Bretlandi.
    Ellefta platan þeirra, Evil spirits, kom út 2018 og fór hæst í 7. Sæti breska vinsældalistans.
    2 hr 35 min
  • Metallica - Kill Em All
    Plata Þáttarins er Kill Em All ? fyrsta plata rokkrisanna í Metallica, en Cliff Burton upphaflegi bassaleikari Metallica hefði orðið sextugur í gær (10. febrúar) ef hann hefði lifað.
    Platan kom út 25. Júlí 1983 og mörgum gömlum aðdáendum Metallica þykir vænst um þessa fyrstu plötu sveitarinnar.
    Metallica kmeur upphaflega frá Los Angeles og þar voru fyrstu tónleikanrir spilaðir en svo færðu þeir sig til San Fransisco í þeim tilgangi fyrst og fremst að fá Cliff Burton í bandið, en hann bjó þar.
    Strákarnir tóku upp demó sem þeir kölluðu No life til leather árið 1982 sem komst í hendurnar á John Zazula forsprakka Megaforce útgáfunnar. Hann vildi gefa út með þeim plötu og strákarnir fóru til new York í Music America Studios ásamt upptökustjóranum Paul Curcio og tóku plötuna upp.
    Hún átti upphaflega að heita Metal up your ass og umslagið sýndi hendi sem hélt á hnífi ofan í klósettskál, en bæði umslaginu og nafninu var breytt í Kill Em All. Það þótti aðeins penna.
    Metallica fylgdi plötunni eftir með tveggja mánaða tónleikaferð ásamt ensku þungarokksveitinni Raven um Bandaríkin.
    Ári eftir útgáfu hafði platan selst í 60.000 eintökum um allan heim en hún náði ekki innbandaríska vinsældalistann fyrr en árið 1986 og fór hæst í 166. Sæti, en þá var þriðja platan - Master of Puppets komin út, og með henni má segja að Metallica hafi slegið fyrst í gegn.
    Kill Em All þykir í dag tímamótaplata og hefur selst í milljónum eintaka.
    2 hr 35 min
  • Alice Cooper - School?s out
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er School?s Out, en Alice Cooper á afmæli í dag.
    Vinur þáttarins sendir pistil og lag að vanda og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    School's Out er fimmta hljóðversplata hljómsveitarinnar Alice Cooper og kom út 1972. Hún náði öðru sæti bandaríska vinsældalistans en fór alla leið á toppinn í kanada og var á toppnum þar í fjórar vikur.
    Smáskífan með laginu Schoo?ls out náði 7. sæti Billboard smáskífulistans en fór á toppinn í Bretlandi.
    2 hr 35 min
  • JAK og ról
    Hulda Geirsdóttir var á rokkvaktinni í þessum þætti og lék alls kyns rokk og ról úr ýmsum áttum. Stefán Jakobsson var á línunni og sagði m.a. frá nýrri sólóplötu sem er í smíðum ásamt stórtónleikum Dimmu í Eldborg í mars nk. Plata þáttarins var platan Dirt með Alice in chains sem verður einmitt 30 ára á þessu ári.
    Lagalisti:
    Sólstafir - Fjara.
    Foo Fighters - Something from nothing.
    Black Crowes - Hard to handle.
    Grýlurnar - Fljúgum hærra.
    Alice in chains - Down in a hole (af plötu þáttarins).
    AC/DC - Le me put my love into you.
    Pat Benatar - Heartbreaker.
    Queen - The march of the black queen.
    STEBBI JAK Á LÍNUNNI
    JAK - Spegilbrot (ft. Hallveig Rúnarsdóttir og Vigdís Garðarsdóttir).
    L7 - Pretend were dead.
    Brain Police - Jacuzzi Susy.
    Gildran - Mærin.
    Oasis - Supersonic.
    Toymachine - Toymachine.
    Europe - Carrie.
    Mínus - The long face.
    Alice in chains - Them bones (af plötu þáttarins).
    HAM - Partýbær.
    Scorpions - Rock you like a hurricane.
    Status Quo - In the army now.
    Volbeat - The hangmans body count.
    Alice in chains - Would (af plötu þáttarins).
    Olympia - Symphony.
    2 hr 35 min
  • Meat Loaf o.fl.
    Hulda Geirsdóttir stýrði Fuzzinu þetta kvöldið og lék fjölbreytta rokktónlist, m.a. óskalög hlustenda. Plata þáttarins var Bat out of hell, fyrsta plata Meat Loaf, en rokksöngvarinn eftirminnilegi féll frá í dag. Bat out of hell er ein mest selda plata sögunnar og selst enn í hundruðum þúsunda eintaka ár hvert.
    Lagalisti:
    Vintage Caravan - Crystalized.
    AC/DC - Who made who.
    KISS - I still love you (live).
    KALEO - Rock n roller.
    Meat Loaf - Heaven can wait.
    Heart - Crazy on you.
    Manic Street Preachers - You stole the sun from my heart.
    Whitesnake - Is this love.
    Skálmöld - Niðavellir - hér sofa dvergar.
    Dimma - Villimey.
    Thin Lizzy - Killer on the loose.
    Lenny Kravitz - American woman.
    Hole - Violet.
    R.E.M. - Disturbance at the Heron house.
    Meat Loaf - Paradise by the dashboard light.
    Mammút - Salt.
    U2 og B.B. King - When love comes to town.
    HAM - Brekka.
    Guns N Roses - Welcome to the jungle.
    Supergrass - Sun hits the sky.
    Dan van Dango ásamt Ester Bíbí - Ást við fyrstu tálsýn.
    EGÓ - Ráð til vinkonu.
    Meat Loaf - Two out of three aint bad.
    Metallica - Whiskey in the jar.
    Daníel Hjálmtýsson - Tabula rasa.
    Janis Joplin - Piece of my heart.
    The Cure - A forest.
    2 hr 35 min
  • Bavid Bowie - Ziggy Stardust
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars (oftast bara kölluð Ziggy Stardust) og er fimmta stúdíóplata David Bowie.
    Platan verður 50 ára í sumar en hún kom út 16. júní 1972 á vegum RCA Records. Bowie og Ken Scott eru skráðir saman sem upptökustjórar en á plötunni er með honum Spiders from Mars bandið; Mick Ronson (gítar), Trevor Bolder () og Mick Woodmansey.
    Flest laganna voru samin á sama tíma og lögin sem kom út á plötunni á undan, Hunky Dory sem kom út 1971. Upptökur á Ziggy Stardust hófust 1971 en héldu svo áfram og kláruðust snemma árs 1972.
    Ziggy Stardust er einskonar lausbeisluð konsept plata og rokkópera sem hverfist um kynlausu geimveruna og rokkstjörnuna Ziggy Stardust sem var send til jarðarinnar í þeim tilgangi að bjarga okkur mannfólkinu frá sjálfseyðingu.
    Ziggy gengur ágætlega ætlunarverk sitt en svo er það egóið sem verður honum að falli á endanum. Bowie sótti innblástur í karakterinn í hina ýmsu áhrifavalda sína. T.d. Iggy Pop og Vince Taylor sem var talsverð stjarna víða í Evrópu árin í kringum 1960. Bowie sagði oft að Vince Taylor væri stærsta og aðal fyrirmynd Ziggy Stardust.
    Ziggy platan er einn af bautasteinum rokksögunnar. Músíkin var fyrir löngu síðan skilgreind sem Glam-rokk og frum-pönk. Hvað sem við köllum þetta þá er þessi plata algjör snilld - þetta er frábær plata og ekki bara ein besta plata Bowie?s - heldur ein besta plata rokksögunnar.
    Platan náði ekki hærra en í 5. sæti í Bretlandi á sínum tíma og 75. sæti í Bandaríkjunum. En það er á hreinu að útvarpsstöðvar um allan heim eiga eftir að fagna hálfrar aldar afmælis plötunnar í sumar.
    1 hr
  • Black Sabbath - Paranoid
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er önnur plata þugarokksrisanna í Black Sabbath, platan Paranoid kom út í Ameríku þennan dag fyrir 51 ári.
    Vinur þáttarins sendir pistil og lag að vanda og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Þessi magnaða plata sem svo sannarlega er einn af bautasteinum rokksögunnar kom út í Bretlandi 18. September árið 1970 á vegum Vertigo útgáfunnar og klifraði alla leið í toppsæti breska vinsældalistans. Hún kom svo út í Ameríku hjá Warner Brothers fyrir nákvæmlega 51 ári, 7. Janúar 1971 og náði 12. sæti á vinsældalistanum þar.
    Platan átti upphaflega að heita War Pigs en plötufyrirtækið breytti nafninu í Paranoid. Víetnam stríðið var í fullum gangi þarna og það þótti ekki líklegt til vinsælda að gefa út plötu sem hét War Pigs.
    Paranoid er eina plata Black Sabbath sem komst á toppinn í Bretlandi ar til platan 13 kom út 2013.
    Hún hefur að geyma lög eins og War Pigs, Iron Man og svo titillagið auðvitað sem náði 4 sæti smáskífulistans í Bretlandi á sínum tíma. Eina lag Black Sabbath til að komast á topp 20.
    Þetta er eins og áður sagði einn af bautasteinum rokksögunnar og ein af plötunum sem mótaði þungarokkið í heiminum.
    Platan var tekin upp í Regent Street hljóðverinu í London og upptökur hófust aðeins fjórum mánuðum eftir að fyrsta plata sveitarinnar, platan Black Sabbath kom út. Hún nefnilega sló óvænt í gegn og þá var ákveðið að hamra járnið meðan það var heitt.
    Þeir áttu ekki nóg af lögum þegar þeir voru byrjaðir að taka upp og titillagið var t.d. samið á 25 mínútum. Tony Iommi gítarleikari byrjaði á gítar-frasanum og svo spiluðu hinir bara með. Þetta fæddist einn, tveir og þrír. Og svo var textinn líka skrifaður í einum grænum hvelli. Ozzy kom með laglíuna en bassaleikarinn Geezer Butler á megnið af textanum, en þannig unnu þeir einmitt oft á þessum tíma. Iommi kom með riff, Ozzy laglínu og Geezer samdi mikið af textum. Öll lög og textar Paranoid eru skráð á alla í hljómsveitinni. Tony Iommi, Geezer Butler, Bill Ward, Ozzy Osbourne.
    2 hr 35 min
  • Slade - Till deaf do us part
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er 40 ára gömul plata með hljómsveitinni Slade, platan Till deaf do us Part sem er 10unda hljóðversplata hljómsveitarinnar.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Blómatími Slade var búinn (í bili) á þessum tíma. Sveitin var hvað vinsælustu árin eftir 1970 og nokkrar plöturnar þeirra náðu í toppsæti breska vinsældalistans. En svo leið tíminn og pönkið kom og vinsældir Slade fóru þverrandi þrátt fyrir að sveitin spilaði yfirleitt hrátt kraftmikið rokk.
    En sveitin spilaði á reading Festival í ágúst 1980 og það var talsverð lyftistöng fyrir Slade. Þeir fengu góða dóma fyrir tónleikana, þóttu góðir og í kjölfarið fóru þeir aftur að fylla tónleikahallir í Bretlandi.
    Platan We'll Bring the House Down sem kom út snemma árs 1981 gekk líka vel, náði 25. Sæti breska vinsældalistans, en svo kom Till Death do us Part seinna sama ár, 13. Nóvember nánar tiltekið. Hún komst ekki eins hátt á breska vinsældalistanum en seldist samt þokkalega yfir lengra tímabil.
    Það eru lög á plötunni sem lifðu lengi og lifa enn í tónleikadagskrá Slade, lög eins og titillagið og Lock up your daughters. Slade er enn starfandi að nafninu til. Gítarleikarinn Dave Hill er sá eini sem er eftir af upphaflega bandinu. Sveitin kom hingað til Íslands árið 2002 og spilaði þá á Broadway sáluga. Ég var þar og það var nú ekkert sérstakt. Söngvarinn Noddy Holder var þá hættur og bandið ekkert sérstakt. En Slade kom líka hingað til Íslands árið 1974 þegar sveitin var ein heitasta hljómsveit Evrópu og og spilaði þá fyrir hálf-fulla Laugardalshöll af gríðarspenntum unglingum, eða aðallega stelpum á aldrinum 10-15 ára herma heimildir. Þá var sko gaman hef ég heyrt og lesið. Íslensku hljómsveitin Pelican með Pétur Kristjánsson hitaði upp. Það var danskur tónleikahaldari sem stóð að komu Slade til landsins og var með stór plön fyrir framtíðina. Sagði frá því í viðtali í Morgunblaðinu að ef þetta tækist vel væri jafnvel von á stjörnum eins og Abba, Paul McCartney og Wings og Rolling Stones á næstu mánuðum.
    En það seldust ekki nema 3000 miðar á Slade og ég veit ekki til þess að hinn danski Erik Thomsen hafi gert meira á Íslandi en þessa einu tónleika Slade.
    En Slade var frábær þegar hún var upp á sitt besta og fyrirmynd eins ólíkra hljómveita og Oasis og Iron Maiden.
    2 hr 35 min
  • David Bowie - Hunky Dory
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af Hunky Dory, fjórða breiðskífa David Bowie, en hún kom út 17. desember 1971, fyrir bráðum hálfri öld.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Hinn ungi Bowie tók sér frí frá tónleikahaldi og upptökum eftir að hann sendi frá sér plötuna The Man Who Sold the World sem kom út 1970. Hann seti sig í stellingar til að semja ný lög og frekar á píanó en gítar eins og hann hafði gert til þess tíma. Hann setti saman nýt band sem samanstóð af þeim Mick Ronson (gítar), Trevor Bolder (bassi) og Mick Woodmansey (trommur). Og með þessum strákum fór hann svo í hljóðver um mitt ár 1971 ásatm Rick Wakeman sem síðar átti eftir að gera garðinnn frægan með hljómsveitinni Yes.
    The man who sold the world var frekar gítar-drifin og rokkuð plata, en Hunky Dory er í raun allt öðruvísi og poppaðri, léttari plata. Hann er með allskyns vísanir í textum plötunnar í kukl og heimspeki, og svo syngur hann lög til bandarískra áhrifavalda sinna eins og Lou Reed, Bob Dylan og Andy Warhol.
    Platan fékk yfirleitt góða dóma en seldist ekki vel á sínum tíma. En Bowie sló í gegn með næstu plötu þarna á eftir; The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars og þá fóru margir ti baka og keyptu Hunky Dory og hún fór þá hæst í þriðja sæti breska vinsældalistans. Hunky Dory hefur lengi þótt með bestu plötum Bowie og margir vilja meina að Bowie hafi í raun fæðst á þssari plötu. Dæmi hver fyrir sig.
    2 hr 35 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…