Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Jólarokk
    Hulda Geirsdóttir stýrði Fuzzinu í kvöld og var í jólaskapi enda þátturinn undirlagður jólarokki af ýmsum gerðum. Plata þáttarins var Jól í Rokklandi og boðið var upp á Leppalúða fjarka, auk þess sem hún sló á þráðinn til Þráins Árna Baldvinssonar gítarleikara í Skálmöld, en sveitin kom saman til æfinga fyrir stuttu, eftir langt hlé, og stefnt er á 10 ára afmælistónleika Barna Loka næsta haust. Þá tók Hulda við óskalögum hlustenda úr ýmsum áttum.
    Bjartmar Guðlaugsson - Jólalag.
    Queen - Thank God its Christmas.
    Baggalútur - Leppalúði.
    Brunaliðið - Leppalúði.
    Ylja - Leppalúði.
    Ópal - Leppalúði.
    Bubbi Morthens - Grýla er hætt að borða börn.
    Slade - Merry Xmas everybody.
    Blóðmör - Fyrirgefðu að ég rotaði þig um jólin.
    Tom Petty and the heartbreakers - Christmas all over again.
    Lemmy Kilmester - Run Rudolph run.
    Bruce Springsteen - Santa Claus is coming to town.
    Mosi frændi - Hvað segir Feitibjörn?
    Jon Bon Jovi - Please come home for Christmas.
    Eiríkur Hauksson - Jólaþankar.
    Jethro Tull - God rest ye merry gentlemen.
    Glámur og Skrámur - Jólasyrpa, jóla hvað.
    Ringo Starr - Christmast time is here again.
    ÞRÁINN ÁRNI Í SKÁLMÖLD Á LÍNUNNI.
    Skálmöld og Sinfó - Gleipnir.
    Sniglabandið - Jólahjól.
    Orri Harðarson - Jólalag.
    George Thorogood and the Destroyers - Rock and roll Christmas.
    Baggalútur - Gleðileg jól.
    Dúkkulísur - Jól sko.
    Ísold og Már - Jólaósk.
    2 hr 35 min
  • Suede - Dog Man Star
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er platan Dog man Star, önnur breiðskífa ensku hljómsveitarinnar Suede sem kom út 10. október 1994.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Þessi plata þótti mikil tímamótaplata þegar hún kom út og vakti athygli um allan heim. Tónlistarunnendur úti um allt tóku þessari hljómsveit og þessari plötu opnum örmum.
    Platan var tekin upp í Master Rock Studios í London snemma árs 1994 og er síðasta plata Suede sem gítarséníið Bernard Butler spilar á. En Brett Anderson söngvari og Bernard Butler voru einskonar Jagger og Richards í Suede. En það var spenna á milli þeirra meira og minna allan tíman sem þeir störfuðu saman og það endaði þannig að Butler yfirgaf sveitina skömmu áður en upptökur Dog Man Star kláruðust. Það þýddi að það þurfti að kalla til session hljóðfæraleikara til að klára plötuna.
    Fyrsta plata Suede sem kom út árið áður, 1993, ber sterk áhrif frá David Bowie og The Smiths. Suede heitir eftir lagi Morrissey; Suedehead. En á Dog Man Star eru áhrifin fjölbreyttari. Dog Man Star seldist ekki alveg jafn vel og fyrsta platan en hún náði samt 3. sæti breska vinsældalistans og í nóvember ?94 hafði hún selst í gull. Þetta er ein af þessum plötum sem fékk "misjafna dóma". Rolling Stone í Ameríku sagði t.d. um Dog man Star að hún væri ein tilgerðarlegasta plata sögunnar. Það breytir því ekki að Suede var og er einstök hljómsveit og Dog Man Star er ein elskaðasta plata níu-tugarins í Bretlandi og ein stærsta plata Brit Poppsins, þó hún hafi komið út áðeins áður en það skall á með fullum þunga. Og Suede vildi reyndar alls ekki láta bendla sig við Brit pop frekar en Oasis og Blur t.d. En það er önnur saga.
    Mér fannst þessi plata frábær um leið og ég heyrði hana á sínum tíma og vegur hennar hefur vaxið í seinni tíð ef eitthvað er. Og árið 2013 þegar NME setti saman lista yfir 500 bestu plötur sögunnar lenti Dog Man Star í 31. sæti.
    Suede kom og spilaði á annari Airwaves -hátíðinni, í Laugardalshöll haustið 2000. Spilaði sama kvöld og Flaming Lips og svo átti Suede að koma aftur og spila í Laugardalshöll 2016, en það var hætt við þá tónleika.
    2 hr 35 min
  • Miðnæturmeðal
    Hulda G. Geirsdóttir stýrði þættinum að þessu sinni, en plata þáttarins var Medicine at midnight, tíunda hljóðversplata hljómsveitarinnar Foo Fighters, sem út kom fyrr á árinu. Einnig tók Hulda við óskalögum og brá á leik með endurgerð af lagi Skálmaldar þar sem hlustendur gátu hringt inn og giskað á upprunalega flytjandann. Svo var það bara rokk og ról sem réð ríkjum og lagalisti kvöldsins var eftirfarandi:
    Dimma - Þögn.
    Pat Benatar - Hit me with your best shot.
    Foo Fighters - No son of mine (Af plötu þáttarins).
    U2 - Bullet the blue sky.
    Green Day - Know your enemy.
    Whitesnake - Crying in the rain.
    Nykur - Yfir urð og grjót.
    Lynyrd Skynyrd - Sweet home Alabama.
    Supergrass - Id like to know.
    Kaleo - Way down we go.
    The Rolling Stones - Saint of me.
    Van Halen - Jump.
    Þeyr - Úlfur.
    Foo Fighters - Love dies young ásamt kynningu Dave Grohl (af plötu þáttarins).
    PJ Harvey - Down by the water.
    Dexys Midnight Runners - Come on Eileen.
    Hot Eskimos - Narfi.
    Skálmöld - Narfi.
    Vintage Caravan - Crystallized.
    KISS - Modern Day Delilah.
    Metallica - Sabbra Cadabra.
    Kolrassa krókríðandi - Gammagarg.
    Rainbow - Cant let you go.
    Rainbow - Since youve been gone.
    Foo Fighters - Shame shame (af plötu þáttarins).
    R.E.M. - Finest worksong.
    ZZ Top - La Grange.
    Soundgarden - The day I tried to live.
    2 hr 35 min
  • Teenage Fanclub - Bandwagonesque
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Bandwagonesque, þriðja breiðskífa Skosku hljómsveitarinnar Teenage Fanclub sem kom út þennan dag árið 1991, fyrir 30 árum sléttum.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Teenage Fanclub sem er enn starfandi var stofnuð í smábænum Bellshill nálægt Glasgow í Skotlandi árið 1989. Stofnendur voru þeir Norman Blake (söngur og gítar), Raymond McGinley (söngur og gítar) og Gerard Love (söngur og bassi). Allir sömdu þeir og sungu þar til Gerard Love yfirgaf sveitina árið 2018. Í dag eru í hljómsveitinni þeir Blake og McGinley, Francis Macdonald (trommur og söngur), Dave McGowan (bassi og söngur) og Euros Childs (hljómborð og söngur). Það er mikiðm lagt upp úr rödduðum söng hjá Teenage Fanclub.
    Platan Bandwagonesque á 30 ára afmæli í dag. Það var Creation útgáfan sem gaf plötuna út á sínum tíma og eitt lag af henni vakti dálitla athygli í Ameríku, lagið Star Sign sem náði 4. Sæti á Modern track lista Billboard. Og þessi plata var valin plata ársins 1991 af bandaríska tónlistartímaritinu Spin og hafði ss. betur en meistaraverk Nirvana, platan Nevermind.
    2 hr 35 min
  • Boston - Boston
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er platan Boston með hljómsveitinni Boston frá Boston. Platan kom út 25 ágúst 1976 fyrir 45 árum rétt rúmum.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Boston er fyrsta plata hljómsveitarinnar Boston og er frábær rokkplata. Forsprakki hljómsveitarinnar, gítarleikarinn Tom Scholz og upptökustjórinn John bOylan stjórnuðu upptökujm plötunnar saman og Það verður að segjast eins og er það er listilega vel gert.
    Scholz hafð lagt stund á píanóleik frá barnsaldri og fór svo að reyna fyrir sér í músíksenunni í Boston þegar leið á sjöunda áratuginn. Hann fór að semja lög og taka upp demó í kjallaranum heima hjá sér ásamt söngvaranum Brad Delp. Þeir sendu demóin sín hingað og þangað en var allstaðar hafnað þangað til Epic Records bitu á agnið 1975 og þeir þurftu ekki að sjá eftir því.
    Platan kom út í ágúst 1976 eins og áður sagði og sló strax sölumet. Hún varð best og mest selda fyrsta plata hljómsveitar í sögu bandarískrar útgáfusögu. Lagið More than a feeling er þekktasta lagið á plötunni og var gríðarmikið spilað í útvarpi um allan heim og heyrist enn reglulega á rokkstöðvum víðsvegar um heiminn, eins og reyndar fleiri lög af plötunni.
    Platan þykir hafa elst vel og hefur selst í meira en 20 milljónum eintaka.
    2 hr 35 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…