Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Jakob Smári - Utangarðsmenn og Deep Purple
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Jakob Smári Magnússon bassaleikari með meiru. Hann mætir með uppáhalds Rokkplötuna klukkan 21.00. Vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er tímamótaplata Deep Purple, In Rock sem kom út 5. júní 1970.
    Þessi plata er svo sanarlega ein af stóru vörðum rokksögunnar, ein af stærstu plötum þungarokksins. Hún er fjórða plata Deep Purple en markaði nýtt upphaf með nýjum mannskap og breytti gangi rokksögunnar þegar hún kom út. Á In Rock kemur saman í fyrsta sinn það sem hefur verið kallað Mark II skipan hljómsveitarinnar; Ritchie Blackmore (gítar), Ian Gillan (söngur), Roger Glover (bassi), Jon Lord (orgel) og Ian Paice (trommur).
    Vinna við plötuna hófst skömmu eftir að þeir félagrnir Ian Gillan og Roger Glover gengu til liðs við hljómsveitina í júní 1969, í Hanwell Community Centre.
    Það var ákveðið fyrirfram að tónlistin yrði hávær og heví, eins og tónleikar sveitarinnar þóttu. Platan var tekin upp í ýmsum hljóðverum í London á milli tónleikaferða og hljómsveitin notaði hljóðprufur fyrir tónleika til að slípa lögin til.
    Deep Purple sló í gegn í Evrópu með In Rock og platan fór hæst í 4. Sæti breska vinsældalistans þegar hún kom út og var á listanum í meira en ár. Fyrri plötur Deep Purple með upphaflegu liðsskipaninni hafði verið betur tekið í Ameríku.
    2 hr 35 min
  • Grímur Atla - Sonic Youth og CCR
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Hann mætir með uppáhalds Rokkplötuna klukkan 21.00. Vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er fyrsta plata Creedence Clearwater Revival sem er samnefnd hljómsveitinni. Hún kom út þennan dag fyrir 53 árum eða árið 1968 auk þess sem John Fogerty leiðtogi sveitarinnar á afmæli í dag, hann er 76 ára. Hann var 22 ára þegar þessi fyrsta plata Creedence kom út.
    Creedence Clearwater Revival hét upphaflega The Golliwogs og Golliwogs var búin að gefa út slatta af lögum á sjöunda áratugnum áður en nafninu var breytt í Creedence Clearwater Revival og fyrsta stóra platan kom út.
    Árið 1967 keypti Saul nokkur Zaentz plötufyrirtækið Fantasy Records sem hafði gefið út allar litlu plöturnar með Golliwogs. Hann hafði trú á hljómsveitinni og bauð strákunum að taka upp og gefa út stóra plötu ef þeir myndu breyta nafni hljómsveitarinnar. Það var þá sem þeir tóku upp nafnið Creedence Clearwater Revival.
    Við þessa breytingu tók John Fogerty eiginlega við stjórn hljómsveitarinnar. Hann samdi öll lögin, hann söng og hann stjórnaði upptökunum, en í Golliwogs hafði Tom bróðir hans verið söngvarinn.
    Platan náði 52. sæti bandaríska vinsældalistans á sínum tíma, seldist þokkalega en gagnrýnendur voru þeim ekki mjög hliðhollir. Í dómi í Rolling Stone segir gagnrýnandi að eini ljósi punkturinn í hljómsveitinni sé John Fogerty. Hann sé yfir meðallagi söngvari og þokkalegur gítarleikari en þar með sé það upptalið. Trommarinn er mónótónískur, bassalínurnar lítið spennandi og ryþmagítarinn heyrist varla. Í seinni tíð hafa dómar verið aðeins jákvæðari þó svo flestir séu sammála um að lagasmíðar Fogerty?s áttu eftir að vrða mun betri á plötunum sem fylgdu í kjölfarið, en John Fogerty samdi næstum öll lögin á öllum sjö plötum Creedence Clearwater Revival.
    2 hr 35 min
  • Ólöf Erla - Deftones og Muse
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Ólöf Erla Einarsdóttir myndlistarkona og grafískur hönnuður. Hún mætir með uppáhalds Rokkplötuna klukkan 21.00. Vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Origin of Symmetry, önnur plata hljómsveitarinnar Muse, en hún kom út 17. Júlí 2001 fyrir bráðum 20 árum.
    Titill og concept plötunnar kemur frá eðlisfræðingnum Michiko Kaku, úr bók hans Hyperspace.
    Platan náði þriðja sæti breska vinsældalistans þegar hún kom út og fjögur lög af henni voru gefin út á smáskífum; Plug In Baby, New Born, Bliss, og Hyper Music / Feeling Good.
    Lög voru að mestu samin í tónleikaferðinni sem sveitin fór til að fylgja eftir fyrstu plötunni; Showbiz. Lagið Feeling Good er gamalt lag sem samið var fyrir Broadway söngleik árið 1964 og Nina Simone var fyrst til að taka þáð upp fyrir plötuna I Put a Spell on You árið 1965.
    Upptökur fóru fram í Ridge Farm Studios í vestur Sussex og Real World Studio í Wiltshire, en líka í hljóðveri Davids Gilmour úr Pink Floyd sem er í raun húsbátur og heitir Astoria. Og það var líka tekið upp í Richmond Studios og Abbey Road í London og Sawmills Studio í Cornwall og platan var mixuð í Sawmills. Það voru tveir upptöustjórar með Muse á plötunni, David Bottrill sem hefur unnið með mörgum á löngum ferli og svo John Leckie sem líka hefur stjórnað upptökum á mörgum plötum og gerði fyrstu plötuna með Muse.
    Platan náði 3. Sæti breska vinsældalistans og 161. sæti í Bandaríkjunum.
    2 hr 35 min
  • Ragnar Þór - Pink Floyd og Neil Young
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR. Hann mætir með uppáhalds Rokkplötuna klukkan 21.00. Vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Everybody Knows This is Nowhere, önnur sólóplata Neil Young, en hún kom út þennan dag árið 1969.
    Everybody Knows This Is Nowhere er tímamótaplata, fyrsta platan sem hann gerir með hljómsveitinni Crazy Horse sem hefur fylgt honum síðan og gert með honum 12 hljóðversplötur og nokkrar tónleikaplötur.
    Það eru fjögur lög á plötunni sem hafa verið tiðir gestir á tónleikaprógrami Neil allar götur síðan platan kom út, lögin Cinnamon Girl, Down by the River, titillagið og Cowgirl in the Sand. Og það sem meira er, Neil samdi þau öll sama daginn þegar hann var veikur með næstum 40 stiga hita.
    Platan fór hæst í 34. sæti bandaríska vinsældalistans þegar hún kom út en hefur selst jafnt og þétt síðan hún kom út.
    Árið 2003 lenti í hún sæti 208 á lista Rolling Stone yfir 500 bestu plötur sögunnar og þegar listinn var uppfærður 2020 var hún komin í sæti 407. Og í bók Colin Larkin sem kom út árið 2000 og heitir All Time Top 1000 Albums lenti platan í 124. sæti.
    2 hr 35 min
  • Eva Ásrún og Nirvana
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Eva Ásrún Albertsdóttir ljósmóðir, söngkona og fyrrum útvarpskona hér á Rás 2. Hún mætir með uppáhalds Rokkplötuna klukkan 21.00. Vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Nirvana Unplugged sem kom út 1. Nóvember 1994, en núna 8. Apríl sl. voru liðin 27 ár frá því Kurt Cobain söngvari og gítarleikari Nirvana stytti sér aldur á heimili sínu í Seattle í Bandaríkjunum. Hann var 27 ára gamall.
    Á þeim tíma sem þessir Unplugged tónleikar Nirvana voru teknir upp fyrir MTV var ?Unplugged? eða órafmagnað allsráðandi, það voru allir að taka upp og spila órafmagnað og MTV var fremst í flokki þessarar Unplugged bylgju sem gekk út á að spila án rafmagnsgítara og háværra rokkhljóðfæra. Þetta kallaði á að listamennirnir þurftu að bera sig öðruvísi að en þeir voru vanir og oft að útsetja lögin sín upp á nýtt.
    Tónleikarnir voru sýndir á MTV 16. desember 1993 og seinna gefnir út á DVD og geisladisk og vinyl.
    Nirvana ákvað að spila ekki eingöngu frumsamin lög fyrir MTV heldur kryddaði dagskrána með lögum eftir aðra listamenn sem Kurt Cobain hélt uppá; Vaselines, David Bowie, Lead Belly, og Meat Puppets auk þess sem meðlimir Meat Puppets, bræðurnir Cris og Curt Kirkwood stigu á svið með hljómsveitinni og spiluðu með í þremur lögum, en Nirvana og Meat Puppets voru að túra saman um þessar mundir.
    Kurt var stressaður fyrir þessa tónleika og þegar upptökum var lokið var hann ekki ánægður, honum fannst þeim hafa mistekist það sem þeir voru að reyna að gera, en aðdáendur í salnum aðrir sem heyrðu og sáu þetta síðar voru í skýjunum. Þessir tónleikar þykja ein af vörðum rokksögunnar.
    Nirvana æfði í tvo daga fyrir upptökurnar og þær gengu freka illa segir sagan. Sá sem stjórnaði upptökum fyrir MTV var óánægður með lagavalið, fannst vanta fleiri af þekkstustu lögum Nirvana og hann var ekki sáttur við gestina úr Meat Puppets, hann hefði viljað fá aðra og þekktari gesti.
    Daginn fyrir upptökur sagðist Kurt svo ekki vilja gera þetta, vildi hætta við alltsaman. Hann mætti reyndar daginn eftir en var ekki í góðu formi og stemningin í stúdíóinu var frekar stíf. Það flugu engir brandarar, það var enginn sem brosti og sviðsmyndin var eins og í vel skreyttri jarðarför. Það voru allir á nálum.
    Kurt Cobain var látinn þegar tónleikarnir komu út á CD og platan fór beinustu leið í toppsæti bandaríska vinsældalistans og seldist gríðarlega vel. Platan skilaði Nirvana líka einu Grammy verðlaunum sínum, en þeir fengu Grammy fyrir han
    2 hr 35 min
  • Jón Óskar - Bowie og The Who
    Gestur þáttarins að þessu sinni er myndlistarmaðurinn Jón Óskar. Hann mætir með uppáhalds Rokkplötuna klukkan 21.00. Vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Who are you, áttunda breiðskífa ensku rokksveitarinnar The Who. Hún kom út 18. ágúst 1978 og er síðasta plata The Who sem trommarinn Keith Moon spilar á.
    Þegar þessi plata kom út var pönkið búið að vera í algleymingi í Bretlandi. The Who var ein af fyrirmyndum pönkaranna en Who átti erfitt með að fóta sig í þessari nýju veröld og platan er full af allskonar krúsídúllum og daðrar við progg-rokk. Það er mikið af syntheseizerum á plötunni og minna rokk en oft áður hjá The Who ? sem er jú ein merkasta rokksveit sögunnar og enn starfandi.
    Trommarinn Keith Moon var ekki í góðu stand þegar platan var tekin upp, var búinn að fara illa með sig lengi með áfengi og eiturlyfjum og hann lést aðeins þremur vikum eftir að platan kom út, úr ofneyslu lyfs sem heitir Heminevrin og hann notaði til að losna undan bakkusi. Hann var 32 ára gamall þessi fyrrum frábæri trommuleikari sem hafði undir það síðasta tapað niður miklu af því sem hann gat þegar hann var upp á sitt besta.
    Platan náði 2. sæti á bandaríska vinsældalistanum þegar hún kom út og 6. sæti í Bretlandi.
    Lang þekktasta lag plötunnar er titillagið sem er jafnframt lokalag plötunnar; Who are you. Margir tengja það við sjónvarpsþættina CSI en lagið er notað sem einkennislag þáttanna. Það hefur líka verið notað í fjölda annara sjónvarpsþátta gegnum árin.
    2 hr 35 min
  • Rolling Stones - Black and Blue
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Black and Blue, þrettánda breiðskífa Rolling Stones. Hún kom út fyrir nákvæmlega 45 árum, 23. apríl 1976.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Já plata þáttarins fagnar 45 ára afmælin í dag, Black and Blue með Rolling Stones.
    Það er skemmtilegt nýtt hlaðvarp í loftinu sem fjallar um AC/DC og heitir Alltaf sama platan, en það er frasi sem hefur verið notaður um plötur AC/DC; Alltaf sama platan ? og þetta hefur líka verið sagt um Rolling Stones en í báðum tilfellum er þetta tóm tjara. Plötur AC/DC eins og Rolling Stones eru mjög fjölbreyttar og í raun má segja að Rolling Stones séu margar hljómsveitir, svo fjölbreyttar eru plöturnar og tónlistin á þeim þó svo þeir hafi fyrir löngu fundið sitt einkennis sánd.
    Black and Blue er fyrsta plata Rolling Stones sem kom út eftir að gítarleikarinn hæfileikaríki, Mick Taylor, hætti í hljómsveitinni í desember 1974. Sumir segja að hann hafi hætt í þeim tilgangi að bjarga lífi sínu en hann var djúpt sokkinn um tíma í fen harðar eiturlyfja eins og fleiri í hljómsveitinni.
    Keith Richards hefur sagt að Black and Blue hafi í raun verið eins og prufumúsík fyrir framtíðargítarleikara hljómsveitarinnar en það voru ýmsi kallaðir í prufu eftir að Taylor hætti, t.d. Wayne Perkins, Harvey Mandel, og svo Ronnie Wood úr Faces sem var svo ráðinn og er ennþá nýji strákurinn í Rolling Stones. Wood spilar reyndar í titillagi plötunnar It?s only rock?n roll sem kom út í október ?74 ? áður en Mick Taylor hætti en var svo formlega tekinn inn í bandið 1976.
    Ryþmaparið Charlie Watts og Bill Wyamn eru ekki í alveg öllum lögunum og svo koma þeir við sögu líka Nicky Hopkins og Billy Preston á píanó og hljómborð.
    Black and Blue er önnur plata Rolling Stones þar sem þeir Mick Jagger og Keith Richards eru skráðir upptökustjórar undir nafninu; The Glimmer twins ? glit tvíburarnir.
    Það er minna rokk á Black and Blue en flestum plötum Rolling Stones, en meira um áhrif frá blús, reggí og fönki.
    Platan fékk misjafna dóma þegar hún kom út og aðeins eitt lag af henni; Fool to cry náði árangri á vinsældalistum heimsins. Í seinni tíð þykir hún ekki svo slæm og það er margt gott á henni. Hún sýnir nokkrar af svo mörgum hliðum þessarar mögnuðu og lífseigu hljómsveitar.
    2 hr 35 min
  • AC/DC - Highway to Hell
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Highway to Hell, sjötta breiðskífa AC/DC og ein af þeirra bestu.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Highway to Hell er sjötta breiðskífa AC/DC, kom út 27. Júlí 1979 og er síðasta plata hljómsveitarinnar sem söngvarinn Bon Scott syngur á, en hann lést 19. febrúar 1980 aðeins 33 ára gamall. Hann lést úr afengiseitrun í bíl vinar síns í London.
    Árið 1978 var AC/DC búin að gefa út 5 stórar plötur og hljómsveitin búin að túra um Ástralíu og Evrópu aftur og aftur. 1977 fór sveitin í fyrsta sinn til Ameríku og gekk ágætlega þrátt fyrir að hafa ekki fengið neina spilun í útvarpi og platan sem kom 1976; Dirty Deeds Done Dirt Cheap kom ekki einu sinni út í Ameríku. Plötufyrtækið Atlantic hafnaði henni, vildi ekki gefa hana út í Ameríku.
    Og þegar kom að því að taka upp næstu plötu krafðist plötufyrirtækið þess að hljómsveitin myndi vinna með nýjum upptökustjóra sem gæti hjalpað sveitinni að gera útvarpsvænni músík. Plötufyrirtækið Atlantic vildi koma tónlist AC/DC í útvarpið. Hljómsveitin var langt í frá hrifin af þessari hugmynd vegna þess að allar plötur AC/DC til þessa höfðu þeir strákarnir gert með George Young, eldri bróður þeirra gítraleikaranna í bandinu, Angusar og Malcolms Young, og félaga hans Harry Vanda. Þeir tveir áttu stóran þátt í sándi hljómsveitarinnar og þeim bræðrum sérstaklega fannst þeir vera að svíkja stóra bróður sinn og Harry Vanda með því að leita annað eftir upptökustjóra auk þess sem þeir voru meira en sáttir við sándið á plötunum sínum og þeir litu eiginlega á George eins og sjötta meðlim sveitarinnar.
    Atlantic vildi að Eddie Kramer stjórnaði upptökum á plötunni en hann hafði verið upptökumaður með Jimi Hendrix á sínum tíma og líka tekið upp með Led Zeppelin og Kiss. Kramer hitti bandið í hljóðveri í Miami í Florida en það kom fljótt í ljós að það samstarf myndi ekki ganga ? þeim í hljómsveitinni leist ekkert á hann og fannst hann tala niður til þeirra, en þeir voru samt eitthvað að reyna að taka upp með honum í nokkrar vikur áður en þeir létu hann fjúka.
    Og þá kom til sögunnar ungur maður sem var fæddur og alinn upp í Zambíu, Robert John "Mutt" Lange. Hann hafði svosem ekki gert margt merkilegt á þeim tíma en þó unnið með Boomtown Rats og hljómsveitunum Clover, City Boy, og Graham Parker.
    Mutt kom og tók upp með hljómsveitinni Highway to Hell og hafði mikið um að það að segja hvernig hún hljómar. Hljómsveitin fann fljótt að hún gat treyst þessum
    2 hr 35 min
  • Judas Priest - British Steel
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er British Steel, sjötta hljóðversplata Judas Priest sem kom út 14. Apríl 1980.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Judas Priest er þungarokkshljómsveit sem varð til í Birmingham á Englandi árið 1969 og er enn starfandi. Sveitin hefur selt meira en 50 milljónir platna á ferlinum og er ein af risasveitum breska þungarokksins. Fyrstu árin voru hljómsveitinni erfið en svo sló Judas Priest í gegn með British Steel 1980.
    Platan þótti aðgengilegri en það sem hafði komið út með sveitinni árin á undan og Rob Halford söngvari sagði í viðtali fyrir nokkrum árum að hugsanlega hafi þeir verið undir áhrifum frá AC/DC þegar þeir gerðu plötuna, en þeir fóru með AC/DC í tónleikaferð um Evrópu sem uppthitunarnúmer skömmu áður en platan var tekin upp í desember ?79, í Tittenhurst park, heimahljóðveri bítilsins Ringo Starr.
    Sveitin gerði allskyns tilraunir með óhefðbundin hljóð á plötunni. Það heyrist td. í glamri í hnífapörum, billiard kjuðum og mjólkurflöskum að brotna.
    Lögin Breaking the Law, United, og Living After Midnight voru öll gefin út á smáskífum.
    Platan fékk yfirleitt góða dóma. Allmusic gaf henni fullt hús, fimm stjörnur af fimm mögulegum og Rolling Stones og BBC Music gáfu líka góða dóma. Og árið 2017 setti Rolling Stone saman lista yfir bestu metal-plötur sögunnar og hún lenti þá í þriðja sæti.
    British Steel náði 4. Sæti breska vinsældalistans á sínum tíma og 34. sæti í Bandaríkjunum.
    Molda - Ymur jörð
    Judas Priest - Breaking the law (plata þáttarins)
    Blue Stones - Spirit
    Rush - Finding my way
    Greta Van Fleet - Broken bells
    VINUR ÞÁTTTARINS
    Spooky Tooth - That was only yesterday
    SÍMATÍMI
    Judas Priest - Rapid fire (plata þáttarins)
    OMAM - Destroyer
    King Crimson - One more red nightmare (óskalag)
    Green Day - Basket case (óskalag)
    The Gaslight Anthem - The 59 sound
    Bruce Springsteen - My love will not let you down
    Dropkick Murphys - Queen of Suffolk county
    Jimi Hendrix - All along the watchtower (óskalag)
    Queen - Keep yourself alive (A)
    Queen - Son and daughter (B)
    Iggy & Stooges - Raw power
    Rush - Stick it out (óskalag)
    Gary Numan - Saints and liars
    Big Thief - Off you
    Lost - Þjóðlegt en ekki fróðlegt (óskalag)
    Swizz - Garún (óskalag)
    Judas Priest - United (plata þáttarins)
    Iron Maiden - No more lies
    Deep Purple - Nothing at all
    David Bowie - Cat people
    The Strokes - Last night (Broadway 2003)
    Judas Priest - Living after midnight (plata þáttarins)
    2 hr 35 min
  • Deep Purple - Machine Head
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Machine Head með Deep Purple sem kom út 25. Mars 1972.
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Machine Head sem er sjötta hljóðversplata ensku rokksveitarinnar Deep Purple kom út 25. Mars 1972 og átti þess vegna afmæli í gær.
    Platan var tekin upp í Montreux í Sviss í desember 1971 en þangað fór hljómsveitin til að fá vinnufrið í rólegheitum, en allar fyrri plöturnar höfðu verið teknar upp í miklum flýti á milli tónleikaferða. Þegar þarna var komið ákvað hljómsveitin að fara eitthvað þar sem hægt væri að einbeita sér að því að taka upp og taka þann tíma sem þyrfti til að gera góða plötu.
    Sveitin leigði upptökubíl Rolling Stones og fór með hann til Montreux þar sem búið var að bóka Montreux spilavítið til að taka upp í. Spilavítið var stórt og salir margir. Hljómsveitin hafði spilað þar í maí ?71 og kynnst þá Claude Nobs stofnanda og stjórnanda Montreux Jazz hátíðarinnar sem fór fram á þessum tíma á þessum stað, í Montreux Casino. Þetta var flottur staður og þarna höfðu líka spilað t.d. hljómsveitir eins og Led Zeppelin, Pink Floyd og Black Sabbath. Spilavítið var lokað yfir vetrartímann og það var auðsótt mál að fá það leigt til að taka upp plötu. Hljómsveitin ætlaði að koma sér fyrir á sviðinu í stærsta salnum þar sem þeir höfðu spilað áður til að reyna að ná sem bestum tökum, en þeim fannst á plötunum á undan, In Rock (1979) og Fireball (1971) að þeir næðu ekki á plötunum að sýna hvað í þeim bjó. Fyrir afnotin af húsinu ætluðu þeir að spila eina tónleika í spilavítinu og svo var planið að gefa jafnvel út tvöfalda plötu þar sem önur platan yrði stúdíóplata og hin tónleikaplata. Þeir voru komnir til Montreux og voru að gera sig klára þegar Frank Zappa og hljómsveitin hans Mothers of invention hélt tónleika í húsinu, þá síðustu áður en Deep Purple átti að fá það afhent, en það vildi ekki betur til en svo að það kviknaði í á miðjum tónleikum og spilavítið brann til kaldra kola. Það var þess vegna ekkert hægt að taka þar upp en bruninn varð kveikjan að einu laga plötunnar, hinu sígilda Smoke on the Water ? þar er þessu líst í nokkuð miklum smáatriðum.
    Deep Purple fór að leita að öðru heppilegu húsi til að taka upp í og þeir fundu það, Grand Hotel borgarinnar sem var líka lokað yfir veturinn. Þar komu þeir sér fyrir og tóku plötuna upp.
    Machine Head er sú plata Deep Purple sem selst hefur best en hún settist í toppsæti vinsældalista víða um heim á sínumt tíma, þar á meðal heima
    2 hr 35 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…