Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • T. Rex - Electric Worrior
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Electric Warrior með hljómsveit Marc?s Bolan - T-Rex sem var á toppnum á breska listanum í þessari viku árið 1971. Platan kom út 24. September sama ár.
    Electric Worrior er sjötta plata T. Rex, en fyrsta platan kom út undir nafninu Tyrannosaurus Rex árið 1968 og það gerðu þrjár næstu plötur líka. Á plötunni á undan Electric Worrior var nafninu breytt í T.Rex.
    Tónlistarlega er Electric Worrior aðeins frábrugðin plötunum á undan, minna folk-popp og meira rokk. Rokk T.Rex var kallað Glam-rokk.
    Electric Worrior hefur að geyma eina lag Marc Bolan sem varð vinsælt í Bandaríkjunum, en það er lagið Get it on sem var kallað Bang a gong (get it on) í Ameríkunni. Það náði inn á topp 10 í Ameríku.
    Og Electric Worrior var mest selda platan í Bretlandi árið 1971 og í dag er talað um hana sem eina merkustu plötu Glam-rokksins.
    Árið 1987 þegar tímaritið Rolling Stone setti saman lista yfir 100 bestu plötur undanfarinna 20 ára lenti Electric Worrior í sæti 100. 2003 gerði Rolling Stone lista yfir 500 bestu plötur sögunnar og þá lenti hún í sæti 160 og hún var enn í sama sæti þegar Rolling Stone uppfærði listann árið 2012.
    2004 setti Pitchfork saman lista yfir bestu plötur áttunda áratugarins og þá lenti Electric Worrior í 20. sæti.
    2 hr 35 min
  • Mötley Crüe - Shout at the devil og jólarokk
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Shout at the Devil sem er önnur breiðskífa Glam-rokk sveitarinnar Mötley Crüe. Platan kom út 26. september 1983 og vakti strax heilmikla athygli hjá ungum þungarokkurunum um allan heim.
    Platan seldist nokkuð vel og lög af henni eins og Looks That Kill og Too Young to Fall in Love voru sumstaðar spiluð í útvarpi.
    En platan fékk yfirleitt ekki góða dóma gagnrýnenda þegar hún kom út og það var talað um lélega eftirlíkingu á rokki í anda Kiss eða Aerosmith. Í seinni tíð er platan þó nokkuð hátt skrifuð í þugarokksheiminum og í lista sem Rolling Stone setti saman árið 2017 er hún í 44. Sæti yfir bestu Heavy Metal plötur sögunnar.
    Mörgum kristnum bandaríkjamönnum sérstaklega leist ekkert á blikuna þegar þessi plata kom út á sínum tíma vegna þess að hún heitir Shout at the Devil og framhlið umslagsins skartar fimm arma stjörnu sem margir tengja við Satans-dýrkun, en í kristinni trú tengja margir fimm arma stjörnuna við fimm sár Jesú sem drógu hann til dauða á krossinum.
    Fimm arma stjarnan og margt sem einkenndi ímynd Mötley Crüe á þessum tíma fylgdi bassaleikaranum Nikki Sixx úr hljómsveitinni Sister sem hann var í áður en hann og félagar hans stofnuðu Mötley Crue. Með Nikki í Sister var Blackie Lawless sem stofnaði W.A.S.P. eftir að Sister lagði upp laupana og hann sagði Nikki að hann mætti hirða þetta alltsaman, nota hvað sem hann vildi - lógó, klæðnað, útlit, blóð og andlitsmálningu og hvað sem væri. Hann myndi ekki gera neitt annað en mála sig út í horn með því. Þar hafði hann ekki alveg rétt fyrir sér vegna þess að Mötley Crue varð gríðarlega vinsæl og er enn starfandi.
    Sveitin hefur gengið í gegnum súrt og sætt á löngum tíma og margt ævintýralegt, en í dag er liðsskipan sú sama og var 1983 þegar sveitin sendi frá sér Shout at the Devil:
    Mick Mars - gítar
    Nikki Sixx - bassi
    Vince Neil - söngur og gítar
    Tommy Lee - trommur
    Vintage Caravan- Reflections
    Mötley Crüe - Shout at the devil (plata þáttarins)
    The Cribs - Christmas (All year long)
    Shame - Snow day
    VINUR ÞÁTTARINS
    Crazy Horse - Gone Dead train
    Neil Young & Crazy Horse - Cinnamon girl
    SÍMATÍMI
    The HU - Sad but true
    Iron Maiden - The trooper (óskalag)
    Baggalútur - Föndurstund (óskalag)
    AC/DC - Mistress for christmas
    Queen - Thank God it?s Christmas
    Lemmy og félagar - Run run Rudolph
    Planet of Zeus - Your song (óskalag)
    Nick Cave & the Bad Seeds - Nature boy
    Mötley Crüe - Looks that
    2 hr 35 min
  • The Beatles - Beatles for sale
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Beatles for Sale sem er fjórða stóra plata Bítlanna - en hún kom út þennan dag, fjórða desember árið 1964 í Bretlandi og Evrópu.
    Hún kom ekki út í Bandaríkjunum á sínum tíma heldur kom út plata þar sem heitir Beatles ?65 og hefur að geyma 8 af lögum Beatles for Sale í bland við önnur lög.
    Það var geysilega mikið að gera hjá Bítlunum þegar þeir gerðu þessa plötu, Bítlaæðið var í algleymingi um allan heim og þeir orðnir örlítið lúnir. Yfirbragð Beatles for Sale þykir aðeins þyngra en það sem einkenndi plöturnar sem á undan komu auk þess sem Bítlarnir sömdu bara 8 af 14 lögum hennar, en hin lögin eru eftir rokkara fyrri tíma eins og Carl Perkins, Chuck Berry, Buddy Holly og Little Richard. Eitt þeirra laga, Rock?n roll music, náði í flutningi Bítlanna toppsæti ástralska vinsældalistans, en Bítlarnir voru gríðarlega vinsælir þar eins og allstaðar annarstaðar.
    Þá eru líka áhrif frá bæði kántrítónlist og Bob Dylan á plötunni, en Bítlarnir höfðu kynnst Dylan í New York í ágúst 1964.
    Bítlarnir gerðu allskyns tilraunir í stúdíóinu þegar þeir voru að taka upp, notuðu hljóðfæri sem þeir höfðu ekki notað áður eins og t.d. afrískar handtrommur og timpani
    Platan fékk góða dóma þegar hún kom út og seldist gríðarlega, Var í 46 vikur á topp 20 í Bretlandi og þar af 11 vikur í toppsætinu.
    Þegar þeir tóku plötuna upp tóku þeir líka upp lögin I feel fine og She?s a woman sem voru gefin út á lítilli plötu í lok nóvember ?64 - næstum á sama tíma og stóra platan kom út. Þannig var gert í þá daga. Það voru ekki lög af stóru plötunum sem komu út á smáskífunum, heldur önnur lög. Fólk þurfti jú að fá eitthvað fyrir peninginn - ekki sömu lögin og komu út á stóru plötunum.
    Baggalútur - Jólajólasveinn
    Sólstafir - Til moldar
    The Beatles - I?m loser (plata þáttarins)
    Ebba Grön - Nu slackas tusen Manniskoliv
    Kent - Kungen er död
    VINUR ÞATTARINS
    Lou Reed - Sweet Jane (live)
    SÍMATÍMI
    Toymachine - Toymachine 2020
    John & Yoko - Happy Xmas (war is over) (óskalag)
    The Beatles - Rock?n roll music (plata þáttarins)
    The Crickets - I fought the law
    Rage Against The Machine - Killing in the name of (óskalag)
    The Darkness - Christmastime (Don?t let the bells end)
    Metallica - The unforgiven (óskalag)
    The Pretenders - 2000 miles
    Blue Cheer - Gypsy rider (óskalag)
    Dropkick Murphy?s - The season?s upon us
    Black Sabbath - Supernaut (óskalag)
    Fontains D.C. - I was not born
    The Primitives
    2 hr 35 min
  • Queen - A day at the Races
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er fimmta hljóðversplata hljómsveitarinnar Queen; A Day at the Races sem kom út 10. Desember 1976 og er af mörgum aðdáanda Queen talin ein af bestu plötum sveitarinnar.
    Hljómsveitin stjórnaði sjálf upptökum en Mike nokkur Stone var upptökumaður en hann tók upp fyrstu sex plötur Queen og var hægri hönd upptökustjórans Roy Thomas Baker sem stjórnaði upptökum á fyrstu fjórum plötunum.
    A Day at the Races er einskonar systurplata A Night at the Opera sem kom út árið áður, en nöfnin eru bæði fengin frá kvikmyndum Marx bræðra og umslögin minna hvort á annað. A night at the Opera er hvítt en umslag A Day at the races er svart. Músíklega eru þessar tvær plötur líka systur og allskyns stílar í gangi, allt frá einskonar leikhúsmúsík upp í harðasta rokk.
    Platan náði toppsæti vinsældalistanna í Bretlandi, Japan og Hollandi t.d. og fór hæst í 5. Sæti listans í Bandaríkjunum.
    Þegar BBC setti saman lista yfir bestu plötur allra tíma árið 2006 lenti A Day at the Races í 67. sæti.
    2 hr 21 min
  • AC/DC - Power Up
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er nýja AC/DC platan; Power Up sem kom út í síðustu viku.
    það er ekkert band í heiminum sem hljómar eins og AC/DC og AC/DC er ekki að rembast við að vera eitthvað annað en AC/DC. Þeir gerðu það ekki 1980 og gera það ekki heldur í dag 40 árum síðar. það er fátt nýtt þarna sem kemur á óvart en stundum vill maður bara ekki láta koma sér á óvart. En það er langt í frá sjálfgefið að þessi plata kæmi út, það hefur margt og mikið gengið á hjá þessum köllum undanfarin ár.
    Fyrir það fyrsta er hljómsveitarstjórinn, eldri Young bróðirinn, ryþmagítarleikarinn Malcolm Young látinn. Hann fékk heilabilun og lést fyrir þremur árum aðeins 64 ára að aldri, en hann var þá búinn að vera að berjast við sjúkdóminn í nokkur ár og því var haldið leyndu í lengstu lög.
    Söngvarinn Brian Johnson sem er orðinn 73 ára gat ekki klárað síðustu tónleikaferð - Rock or Bust túrinn sem farinn var til að fylgja eftir síðustu plötu, vegna þess að læknirinn hans sagði honum að hann yrði alveg heyrnarlaus ef hann myndi halda áfram á sömu braut, og AXL Rose úr Guns?n Roses kom inn í hans stað.
    Bassaleikarinn Cliff Williams sem er búinn að vera í bandinu frá 1978 var hættur, búinn að leggja bassanum - hann er sjötugur. Og trommarinn Phil Rudd sem var búin að tromma með AC/DC meira og minna síðan 1977 var rekinn eftir að hann lenti upp á kant við lögin á Nýja sjálandi þar sem hann býr. Hann var ákærður fyrir að leggja á ráðin um morð eins fáránlega og það hljómar. Hann er 66 ára.
    Þannig að áður en þessi nýja plata var gerð var enginn eftir í AC/DC nema gítarleikarinn í skólabúningnum - Angus Young (65 ára), og frændi hans sem tók við ryþmagítarleikarastöðunni af Malcolm, Stevie Young sem er 63 ára. Hann var ekki alveg ókunnugur AC/DC vegna þess að hann leysti Malcolm af um tíma í bandinu árið 1988.
    En einhvernvegin tókst þeim að sópa bandinu saman og gera þessa nýju plötu; Power up! Og ég tek ofan fyrir þeim fyrir það. Þeir eru allir með; Angus, Cliff, Phil, Brian og Stevie Young.
    Við heyrum amk. þrjú lög af Power Up í Füzz í kvöld.
    Bootlegs - Fullur á Facebook
    AC/DC - Realize
    The War on Drugs - Red eyes
    200 - Anus reins
    Viagra Boys - Reasearch Chemicals
    King Gizzard and the Lizard Wizard - Automation
    VINUR ÞÁTTARINS
    The Guess Who - American woman
    Tom Morello & Gary Clarke jr. - Can?t stop the bleeding
    SÍMATÍMI
    Sólstafir - Drýsill
    Dimma - Ég brenn
    Babe Ruth - Black d
    1 hr 35 min
  • Uriah Heep - Demons and Wizards
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er fjórða breiðskífa bresku rokksveitarinnar Uriah Heep, Demons and Wizards sem kom út 19. maí 1972 og hún varð fyrir valinu núna vegna þess að hljómborðsleikari sveitarinnar og aðal lagasmiður á gullaldarárum hennar, Ken Hensley, lést núna í vikunni á heimili sínu á Spáni. Hann var 75 ára.
    Á Þessari plötu er „gullaldarlið“ Uriah Heep:
    David Byron - söngur
    Mick Box - gítar
    Ken Hensley - Hljómborð og söngur.
    Mark Clarke - bassi og söngur
    Lee Kerslake - trommur og slagverk.
    Og þarna á þessari plötu small allt saman. Bandið var frábært og allir meðlimir voru samtaka og til í að leggja hvað sem var á sig til að verða vinsælasta rokkband í heimi, og um tíma má segja að Uriah heep hafi verið vinsælasta rokkband heims.
    Ken Hensley var í bandinu áratuginn frá 1970 - 1980 en hætti þá og átti eftir að spila meðal annars um tíma með hljómsveitum eins og W.A.S.P., Cinderella, Blackfoot og öðrum. Í seinni tíð leiddi hann sína eigin hljómsveit, Live Fire, og þar var söngvari árum saman okkar eini sanni Eiríkur Hauksson. Og Þegar Eiki hélt 60 ára afmælistónleika í Reykjavík fyrir nokkrum árum kom Hensley Þar fram sem gestur.
    Platan náði 20. sæti vinsældalistans í Bretlandi og 23. Sæti í Bandaríkjunum. Í Finnlandi fór hún alla leið í toppsætið í maí 1972.
    Við heyrum nokkur lög af Demons and Wizards í Füzz í kvöld.
    2 hr 35 min
  • Thin Lizzy - Chinatown
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Chinatownm tólfta plata írsku rokksveitarinnar Thin Lizzy sem kom út 13. Otóber árið 1980 - fyrir 40 árum.
    Gary Moore var þarna hættur í sveitinni og í hans stað kom gítarleikarinn Snowy White sem var í sveitinni til 1982. Hann hafði árin á undan spilað með Cliff Richard, Peter Green og Pink Floyd. Á plötunni er einnig hinn 18 ára gamli Darren Wharton á hljómborð.
    Þegar Chinatown kom út þótti mörgum hún ekki eins góð og platan sem kom á undan; Black Rose: A Rock Legend, en þar voru bæði Gary Moore og upptökustjórinn Tony Visconti. Margir fundu eitt og annað að plötunni en það er líka á hreinu að fjölmargir um allan heim halda mikið upp á þessa plötu.
    Dr. Spock - Covid frændi
    Thin Lizzy - We will be strong (plata þáttarins)
    Whitesnake - The deeper the love
    Tenacious D - Time warp
    Smashing Pumpkins - Bullet with butterfly wings
    VINUR ÞÁTTARINS
    Coverdale-Page - Feeling hot
    Metallica - Whiskey in the jar
    Thin Lizzy - China town (plata þáttarins)
    SÍMATÍMI
    King Gizzard and Lizard Wizard - Automation
    Trust - Le Mitard (óskalag)
    Kiss - Heaven's on fire (óskalag)
    Led Zeppelin - The Lemon song (óskalag)
    U2 - Out of control
    Inhaler - When it breaks
    Bon Jovi - The boys are back in town (óskalag)
    Heart - Stairway to heaven (live) (óskalag)
    Rolling Stones - Little T&A
    Dio - Rainbow in the dark
    SÍMAÍMI
    Thin Lizzy - Killer on the loose
    The Who - Pinball wizard (óskalag)
    ZZ Top - Legs (óskalag)
    Auðn - Eldborg
    Megadeth - Symphony of destruction
    Fræbbblarnir - Summer (k)nights (óskalag)
    Rainbow - I surrender
    Alice in chains - Down in a hole
    Big Fat Snake - Bonsoir madame (óskalag)
    AC/DC - If you want blood (you?ve got it)
    2 hr 35 min
  • Smashing Pumpkins - Mellon Collie and the Infinite Sadness
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er þriðja breiðskífa Smashing Pumpkins; Mellon Collie and the Infinite Sadness sem kom út fyrir nákvæmlega 25 árum síðan, 23. Október 1995.
    Þetta er rosaleg plata - tvöfaldur diskur, þrefaldur vinyll og 28 lög. Þarna er allskonar músík, hart rokk og píanóballöður og allt þar á milli. Billy Corgan stjórnaði upptökum ásamt Flodd og Alan Moulder.
    Áður en platan kom út sendi sveitin frá sér smáskífu með laginu Bullet with butterfly wings sem greiddi leiðina fyrir plötuna í toppsæti bandaríska vinsældalistans, en Mellon Collie er eina breiðskífa Smashing Pumpkins sem náði alla leið á toppinn.
    Finn lög til viðbótar voru gefin út á smáskífum; 1979, Zero, Tonight, Tonight, Muzzle og Thirty-Three.
    Platan seldist fljótlega í meira en 10 milljón eintökum og platan sló algjörlega í gegn. Platan hluat sjö Grammy tilnefningar fyrir plötuna, þar á meðal í flokkunum plata ársins og upptaka ársins (fyrir Tonight, tonight) og níu tilnefningar til myndbandaverðlauna MTV. Lög af plötunni voru spiluð á rokkútvarpsstöðvum um allan heim, en líka á hefðbundnum topp 40 poppstöðvum og mörg laganna náðu inn á topp 40 vinsældalista víða um heim.
    Þarna var Smashing Pumpkins á hátindi ferils síns á allan mögulegan hátt, frábært skapandi band. Sveitin er enn starfandi og 27. Nóvember nk. Er vin á elleftu breiðskífu sveitarinnar; Cyr.
    Þeir Jimmy Chamberlein trommari og gítarleikarinn James Iha sem voru með á Mellon Collie eru í bandinu í dag, en Billy Corgan semur öll lögin auk þess að stjórna upptökum.
    Swiss - Garún
    Smashing Pumpkins - Tonight tonight (Plata þáttarins)
    AC/DC - Flick of the switch
    Queen - Flick of the wrist
    Metallica - Master of puppets
    SÍMATÍMI
    Smashing Pumpkins - Galapogos (Plata þáttarins)
    System of a Down - Soldier side (óskalag)
    Black Sabbath - Heaven and Hell (óskalag)
    Tenacious D - Pick of destiny
    Ozzy Osbourne - Shot in the dark (óskalag)
    Rainbow - Street of dreams (óskalag)
    Yes - Roundabout
    Humble Pie - Thirty days in a hole
    Smashing Pumpkins - Zero (Plata þáttarins)
    Canibales - El ombligo Del Diablo
    SÍMATÍMI
    Elvis Costello & the Attractions - What?s so funny about peace love and understanding
    Spencer Davis Group - Gimme some lovin (óskalag)
    Heart - Barracuda (óskalag)
    Uriah Heep - The wizard (óskalag)
    Smashing Pumpkins - 1979 (Plata þáttarins)
    Dr. Spock - Covid frændi
    Bonfire - Sweet home Alabama (óskalag)
    Kaiser Chiefs - Ruby (óskalag)
    Neil
    2 hr 35 min
  • Eddie Van Halen og John Lennon
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Við minnumst gítarleikarans Eddie van Halen með nokkrum íslenskum gítarhetjum sem senda okkur pistil og velja handa okkur lög með Van Halen. Gítarleikararnir eru Þráinn Árni úr Skálmöld, Óskar Logi úr Vintage Caravan, Bjössi Thor, Sigurgeir Sigmunds og Gunni Ingi úr Une Misere.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er í tilefni dagsins - platan Rock?n roll með John Lennon. Lennon hefði oorðið áttræður í dag ef hann hefði lifað, en í ár eru liðin 40 ár frá því hann var myrtur fyrir utan heimili sitt í New York og friðarsúlan í Viðey verður tendruð í kvöld.
    Rock?n roll sem kom út 1975 er sjötta og í raun síðasta eiginlega sólóplata Lennons. Þær plötur sem komu á eftir henni voru Double Fantasy (1980) og Milk and Honey (1984) en þær báðar eru skráðar á Lennon og Yoko.
    Á þessari plötu eru uppáhalds lög Lennons frá sjötta og sjöunda áratugnum, lög sem höfðu áhrif á hinn unga John fyrir Bítl.
    Upptökur plötunnar tóku langan tíma og gengu ekki mjög vel. Phil Spector tók upp með Lennon í október 1973 og hann stjórnaði svo sjálfur upptökum á nokkrum lögum í október 1974.
    Spector lét sig hverfa með upptökurnar og lenti síðan í bílslysi. Lagahöfundirinn Morris Levy fór í máol við Lennon útaf Bítlalaginu Come Together, sagði það að hluta til stolið frá lagi eftir sig. Partur af samkomulaginu sem Lennon gerði við Levy til að sleppa við málaferli var að hann myndi hafa þrjú lög eftir hann á Rockn roll plötunni.
    Vegna þess að Spector var með upptökurnar kom platan Walls and Bridges út á undan Rock?n roll, og þar er eitt lag eftir Morris Levy, Ya Ya sem er líka á Rock?n roll.
    Platan kom út í febrúar 1975 og náði 6. sæti á vinsældalistunum bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum og seldist í báðum löndum á endanum í gull.
    Umslag plötunnar er skemmtilegt, sýnir ungan John standa leðurjakkaklæddann upp við hús í Hamborg, þegar Bítlanrir voru kornungir að spila á mellubúllum fyrir skemmtanaglaða unga sjómenn allstaðar að úr heiminum, áður en Bítlaæðið skall á heiminum.
    Eftir að þessi plata kom út tók Lennon sér frí 5 ára frá músíkbransanum og einbeitti sér að uppeldi sonar síns og Yoko Ono, Sean Ono Lennon.
    Spilafífl - Talandi höfuð
    Van Halen - Dance the night away
    John Lennon - Be bop-A-lula (plata þáttarins)
    Eddie Cochran - C?mon everybody
    Sex Pistols - No feelings
    ÞRÁINN ÁRNI UM EDDIE VAN HALEN
    Van Halen - Mean streets
    Robert Plant - Hurting kind (I?ve got my eyes on you)
    VINUR ÞÁTTARINS
    Rick Derring
    2 hr 35 min
  • Oasis - What?s the story Morning glory
    Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er tímamótaplatan What?s the story Morning Glory með Oasis sem kom út þennan dag, 2. október árið 1995, fyrir réttum 25 árum síðan.
    Þetta er merkileg plata, ein stærsta og merkasta plata Brit Pop tímans í Bretlandi, kannski jafnvel Brit Pop plata númer eitt!
    Hún hefst á lagi sem heitir Hello og svo rekur hver smellurinn annan, Roll With it, Wonderwall, Don?t look back in anger, Some might Say, Morning Glory, Champagne Supernova og þannig mætti lengi telja.
    Það verður að segjast eins og er að umsjónarmaður þáttarins heldur mikið upp á þessa plötu, sá Oasis spila á stóra Pýramída-sviðinu á Glastonbury í júní sama ár og varð Oasis maður fyrir lífstíð.
    Noel Gallagher og Owen Morris eru skráðir saman upptökustjórar plötunnar og þetta er mikið Rock?n roll.
    Þarna skipti sveitin um trommara, Tony McCarroll yfirgefur sveitina, var rekinn, og í hans stað kom Alan White. McCarroll spilar reyndar í einu lagi á plötunni; Some might say.
    Þetta er stór og mikil plata, full af stórum lögum með stórum kórusum og singalong-i.
    Þessi plata gerði Oasis að risum. Hún seldist í útgáfuvikunni í 345.000 eintökum og var í 10 vikur á toppnum á breska listanum og náði 4. sæti Bandaríska listans.
    Smáskífurnar Some Might Say og Don't Look Back in Anger fóru á toppinn á breska smáskífulistanum og Roll with It og Wonderwall náðu hæst í annað sætið. Wonderwall fór svo á toppinn á vinsældalistunum í Ástralíu og á Nýja sjálandi.
    Oasis hlaut Bresku tónlistarverðlaunin 1996 fyrir plötu ársins og sveitin fylgdi henni eftir með rosalegri tónleikaferð og það fór sérstaklega mikið fyrir þeim heima í Bretlandi. Þeir spiluðu stærstu innanhúss-tónleika þess tíma í Evrópu í Earls Court í London - spiluðu tvenna heimkomutónleika á Maine Road í Manchester í apríl ?96 og í sama mánuði spiluðu þeir fyrir 80.000 manns í Balloch Country Park í Skotlandi. Viku seinna spilaði Oasis svo sína allra stærstu og fjölmennustu tónleika í Knebwort fyrir samtals 250.000 á einni helgi, tvö kvöld í röð. Það er talið að tvær og hálf milljón Breta hafi reynt að ná í miða á þá tónleika, en það samsvarar 4,4 prósentum þjóðarinnar þá. Oasis voru hrikalega vinsælir á þessum tíma.
    What?s the story Morning glory er ein stærsta plata 10unda áratugarins og hefur í dag selst í meira en 22 milljónum eintaka sem gerir hana að einni mest seldu plötu sögunnar. Hún er í fimmta sæti í Bretlandi yfir mest seldu plöturnar
    2 hr 35 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…