Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Helga Vala - PJ. Harvey og Jimi Hendrix
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Helga Vala Helgadóttir þingman Samfylkingarinnar. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00.
    Vinur þáttarins sendir lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Cry of Love - fyrsta plata Jimi Hendrix sem kom út eftir að hann lést, en hann lést þennan dag, 18. September 1970 - fyrir hálfri öld.
    Þessi plata sem heitir Cry of Love kom út 5. Mars 1971 - rúmu hálfu ári eftir að hann lést. Upptökustjórinn Eddie Kramer kláraði að setja plötuna saman úr þeim lögum sem hann var að vinna með Hendrix þegar hann lést, og honum til aðstoðar voru trommuleikarinn Mitch Mitchell og umboðsmaðurinn Michael Jeffery. Hendrix, Kramer og Mitchell eru skráðir upptökustjórar plötunnar og umboðsmaðurinn einskonar framkvæmdastjóri verksins.
    Það var Reprise útgáfan sem gaf plötuna út og hún seldist vel bæði t.d. í Bandaríkjunum og Bretlandi.
    Lög af plötunni komu seinna út á öðrum plötum þar sem reynt var að skapa plötuna sem Hendrix var í raun að gera 1970. Ein heitir Voodo Soup og kom út 1995 og önnur sem kom 1997 heitir First Rays of the new Rising Sun.
    Þessi plata sem Hendrix var aðgera var fyrsta platan hans eftir að hljómsveitin Jimi Hendrix Experience leystist upp og hann gerði með nýju hljómsveitinni, Band of Gypsys, tromaranum Micth Mitchell og bassaleikaranum Billy Cox.
    Platan var tekin upp í nýja hljóðverinu hans Hendirx í New York, Electric Lady studios sem er enn starfandi og margir stærstu listamenn heims hafa unnið þar.
    Mammút - Blóðbergð
    Ace Frehley - I?m down
    Hellsongs - Paranoid
    Black Sabbath - War pigs
    Smashing Pumpkins - The Colour of love
    VINUR ÞÁTTARINS
    Jo Jo Gunne - Rock around the symbol/Broken down man
    Helhorse - Overboard
    SÍMATÍMI
    Jimi Hendrix - Freedom (plata þáttarins)
    John Lennon - Cold Turkey (óskalag)
    Golden Earring - Radar Love (óskalag)
    Green Day - American idiot
    Ramones - I wanna be sedated
    Pearl Jam - Even flow (óskalag)
    Black Sabbath - Iron man (óskalag)
    Jimi Hendrix - Ezy rider (plata þáttarins)
    GESTUR FUZZ - HELGA VALA HELGADÓTTIR MEÐ UPPÁHALDS ROKKLÖTUNA
    Nick Cave & PJ Harvey - Henry Lee
    HELGA VALA II
    PJ. Harvey - A perfect day Elise
    HELGA VALA III
    PJ. Harvey - The sky lit up
    Churchhouse Creepers - Party (óskalag)
    Foo Fighters - Walk (óskalag)
    Ozzy Osbourne - Dreamer (óskalag)
    2 hr 35 min
  • Maggi Stef - Deep Purple og The Byrds
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Magnús Stefánsson sem er meðal annars fyrrum trommuleikari Utangarðsmanna, EGÓS og Sálarinnar hans Jóns míns. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00.
    Vinur þáttarins sendir lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Younger than Yesterday með Byrds sem kom út 6. febrúar árið 1967.
    Younger Than Yesterday er fjórða plata Amerísku rokksveitarinnar Byrds, sem á plötunni tekur inn áhrif frá sækadelíu og jazzi.
    Bassaleikarinn Chris Hillman er þarna í stærrsa hlutverki en á plötunum á undan og sýnir að hann er lunkinn lagasmiður sem hann hafði ekki sýnt svo mikið til þessarar plötu. Hann er einn skrifaður fyrir fjórum laga plötunnar og er meðhöfundur í laginu "So You Want to Be a Rock 'n' Roll Star". ?I tveimur af þessum fjórum lögum Hillmans á plötunni byrjar sveitin að feta sig inn á kántrí-rokk slóðina sem átti síðar eftir að einkenna The Byrds á næstu plötum,
    Platan náði 24. Sæti Bandaríska listans þegar hún kom út og því 37unda í Bretlandi.
    Lagið So you want to be a rock?n roll star kom út á lítilli plötu áður en stór platan kom út, og eftir að hún kom út voru tvö lög önnnur gefin út á smáskífum, Have you seen her face eftir Chris Hillman og My back Pages eftir Bob Dylan. Ekkert laga plötunnar gerði miklar rósir á vinsældalistanum í Bretlandi.
    Í dag þykir Younger than Yesterday ein alla besta plata Byrds og ein besta plata ársins 1967, þrátt fyrir að það hafi lítið farið fyrir henni á sínum tíma.
    Egó - Mescalin
    Volcanova - Welcome
    Volcanova - Where?s the time
    R.E.M. - The one i live (Live Paleo festival 2008)
    The Verve - History
    My Chemical Romance - Welcome to the black parade
    Rory Gallagher - Bad penny
    VINUR ÞÁTTARINS
    Foghat - Sarah Lee
    Hellacopters - Murder on my mind
    SÍMATÍMI
    Bob Jovi - You give love a bad name (óskalag)
    AC/DC - Let me put my love into you (óskalag)
    Nothing but Thieves - Amsterdam (óskalag)
    Brain Police - Jacuzzi Suzy (óskalag)
    Queen - Bohemian Rhapsody (óskalag)
    Bruce Springsteen - Lettter to you
    Lemmy & Probot - Shake your blood (óskalag)
    The Byrds - So you want to be a rock?n roll star
    Wilco - True love will find you in the end
    MAGNÚS STEFÁNSSON GESTUR FUZZ
    Utangarðsmenn - 13-16
    MAGNÚS II
    Deep Purple - Might just take your life
    MAGNÚS III
    Deep Purple - Lay down, stay down
    The Byrds - My back pages
    Deep Purple - Burn
    2 hr 35 min
  • Ómar Guðjónsson - The Beatles og The Cure
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Ómar Guðjónsson gítarleikari og tónlistarmaður - hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00.
    Vinur þáttarins sendir lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er The Head on the Door sem er sjötta breiðskífa ensku hljómsveitarinnar The Cure. Hún kom út í ágúst 1985 og fagnar því 35 ára afmæli um þessar mundir.
    Áður en platan kom út kom smáskífa með laginu Inbetween days út og náði 15. Sæti breska vinsældalistans.
    Platan fékk fína dóma og seldist nokkuð vel. Hún náði að stækka aðdáendahóp sveitarinnar til muna frá fyrri tíð og líkast til var það vegna Þess að popp-rokkið sem platan hefur að geyma er aðgengilegra en margt af því sem sveitin hafði gert til þess tíma. Platan fór hæst í 7. Sæti breska vinsældalistans í byrjun september 1985.
    Á Head on the Door koma þrír nýjir menn inn í bandið. Trommarinn Boris Williams kom nýr inn sem fastur liðsmaður og bassaleikarinn Simon Gallup sem haðfi verið með áður var kallaður aftur inn, en hann hafði samið og spilað á plötunum Seventeen Seconds, Faith and Pornography. Og Cure varð kvintett á þessari plötu þegar gítarleikarinn Porl Thompson gekk til liðs við sveitina sem fimmti maður.
    Head on the Door er fyrsta plata Cure þar sem söngvarinn og gítarleikarinn Robert Smith samdi öll lög al einn.
    Foreign Monekys - Vestmannaeyjar
    Nickelback - THe Devil went down to Georgia
    Jerry Lee Lewis - The wild one
    The Velvet Underground - Rock?n roll
    Weezer - Beginning of the end
    VINUR ÞÁTTARINS
    Colosseum - Walking in the park
    Wilco - Misunderstood
    SÍMATÍMI
    The Cure - Push (plata þáttarins)
    Judas Priest - Johnny B. Goode (óskalag)
    Skurk - Gaggó vest (óskalag)
    Iron Maiden - Run to the hills (óskalag)
    AC/DC - Hells bells (óskalag)
    Fontain?s DC - A hero?s death
    Varsjárbandalagið - Vestmannaeyjar (óskalag)
    The Cure - Inbetween days (plata þáttarins)
    Tennage Fanclub - Start again
    The Replacements - Alex Chilton
    GESTUR FUZZ - ÓMAR GUÐJÓNSSON GÍTARLEIKARI MEÐ UPPÁHALDS ROKKPLÖTUNA
    Drangar - Örmagna
    ÓMAR II
    The Beatles - Happiness is a warm gun
    ÓMAR III
    The Beatles - I?m so tired
    Leatherwolf - Bad moon rising (óskalag)
    Ramones - Have you ever seen the rain
    The Cure - A night like this (plata þáttarins)
    The Cribs - Running into you
    Neil Young & Crazy Horse - Over and over
    2 hr 35 min
  • Dóra Wonder - Screaming Jay Hawkins og Deep Purple
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og tónlistarkona - hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00.
    Vinur þáttarins sendir lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er ný plata frá Deep Purple sem heitir Whoosh!
    Whoosh! er tuttugasta og fyrsta hljóðversplata þessarar llífsseigu holjómsveitar sem er búin að vera starfandi síðan 1968 með einu hléi frá 1976 - 1984.
    Sá eini sem er eftir af upprunalega bandinu er trommuleikarinn Ian Paice, en þeir eru þrír eftir með honum úr „gullaldarliði“ sveitarinnar sem starfaði frá 1970 - 1975 og svo aftur frá 1984 - 1990. Það eru þeir Paice, bassaleikarinn Roger Glover og söngvarinn Ian Gillan.
    Með þeim eru í dag gítarleikarinn Steve Morse sem er búinn að vera með síðan 1994 og hljómborðsleikarinn Don Airey sem gekk til liðs við sveitina 2001.
    Woosh! Kom út 7. Ágúst sl. en átti upphaflega að koma út í vor en útgáfunni var frestað vegna Covid 19.
    Upptökustjórinn Bob Ezrin er með sveitinni á plötunni og hann er skráður meðhöfundar allra laga fyrir utan eitt sem fyrrum Purple mennirnir Ricthie Blackmore og Jon Lord sömdu. Það lag heitir An the adress, er instrumental lag og kom upphaflega út á fyrstu plötu Deep Purple; Shades of Deep Purple sem kom út 1968.
    Platan hefur fengið misjafna dóma. The Times gaf henni tvær stjörnur af fimm en Classic Rock fjórar og hálfa af fimm t.d. NME gaf þrjár og Allmusic fjórar.
    Ingvar Valgeirsson og Swiss - Garún
    Deep Purple - Throw my bones (plata þátttarins)
    Oasis - Stand by me
    Small Faces - Stand by me (Stand by you)
    Joe Strummer - Coma girl
    Hellacopters - I?m in the band
    Kiss - Calling Dr. Love
    Volcanova - I?m off
    SÍMATÍMI
    Hayseed Dixie - Hells bells
    Queen - Dragon attack (óskalag)
    Thin Lizzy - Jailbreak
    VINUR ÞÁTTARINS
    Thin Lizzy - Rosalie (live)
    Zig Zags - Killer of killers (óskalag)
    Uriah Heep - July morning (óskalag)
    Iron Maiden - Killers
    Deep Purple - Anyone?s daughter (óskalag)
    Slade - Far far away (óskalag)
    GESTUR FUZZ - HALLDÓRA GEIRHARÐS OG UPPÁHALDS ROKKPLATAN
    EGÓ - Fjöllin hafa vakað
    HALLDÓRA II
    Screaming Jay Hawkins - I put a spell on you
    HALLDÓRA III
    Screaming Jay Hawkins - Hong Kong
    Elvis Presley - Shake rock?n roll
    Deep Purple - Drop the weapon (plata þátttarins)
    The Who - Won?t get fooled again
    2 hr 35 min
  • Gummi tækni, Rainbow og fjölbreytt rokk og ról
    Hulda Geirsdóttir stýrði Fuzzinu að þessu sinni. Plata þáttarins var Bent out of shape með hljómsveitinni Rainbow og gestur þáttarins var Guðmundur Jóhannsson sem hlustendur þekkja kannski betur sem Gumma tækni en hann er reglulegur gestur í Morgunútvarpinu þar sem hann fjallar um tækni. Hlustendur lögðu sitt til með óskalögum bæði í gegnum síma og Facebook síðu Rásar 2.
    Lagalisti:
    Start - Seinna meir.
    The Cult - Fire woman.
    Dimma - Villimey.
    Johnny Marr - Spiral cities.
    Sonic Youth - Superstar.
    Cant let you go - Rainbow (af plötu þáttarins).
    Skoffín - Sætar stelpur.
    Disturbed - No more.
    Hole - Miss World.
    Nirvana - Come as you are.
    Aerosmith - Living on the edge.
    Vintage Caravan - Reflections.
    Avenged Sevenfold - Hail to the king.
    Rainbow - Street of dreams.
    Stone Roses - Love spreads.
    Gestur þáttarins - Guðmundur Jóhannsson kom með plötuna Tommy með The Who.
    -Pinball Wizard
    -Overture
    -Amazing journey
    Green Day - Know your enemy (live).
    Creedence Clearwater Revival - Down on the corner.
    Guano apes - Open your eyes.
    Iggy Pop - Lust for life.
    Queen - Dragon attack.
    2 hr 35 min
  • Kristinn Snær - Living Colour og Metallica
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Kristinn Snær Agnarsson trommuleikari og allt muligt mðaur. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00.
    Vinur þáttarins sendir lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Load með Metallica sem kom út fyrir 24 árum og tveimur dögum, það 4. Júní árið 1996.
    Það skal sagt strax að Load hefur aldrei þótt ein af betri plötum Metallica, og þegar hún kom út voru margir gamlir aðdáendur afskaplega spældir með sína menn. Það er miklu minna thrash-metal en á fyrstu plötunum og þess í stað komið allskonar öðruvísi rokk. Það eru áhrif á suðurríkjarokki, blúsrokki og jafnvel kántrírokki á Load og það voru ekki allir aðdáendur sveitarinnar til í að kaupa það á sínum tíma, en með tímanum hafa fleiri og fleiri tekið plötuna í sátt enda margt gott á henni.
    Lars Ulrich sagði um plötuna á sínum tíma að þeir væru að leika sér með tilraunir og nýja hluti á plötunni, en út á það gengi þessi hljómsveit. Um leið og maður hættir að gera nýja hluti deyr maður.
    Platan er lengsta plata Metallica, nætum fullur geisladiskur, eða 79 mínútur af músík.
    Upptökustjóri plötunnar er Bob Rock sem var líka með þeim á plötunni á undan, svörtu plötunni; Metallica, sem kom út fimm árum fyrr og gerði Metallica að einni allra stærstu rokksveit heims.
    Hún seldist vel þegar hún kom út, fór beint í fyrsta sæti bandaríska vinsældalistans og sat þar í fjórar vikur. Enginn plata sveitarinnar til þessa tíma hafði selst eins hratt á eins stuttum tíma, og engin plata hafði selst eins vel þetta árið heldur.
    Hún seldist á endanum í meira en fimm milljónum eintaka í Bandaríkjunum einum og smellirnir af henni sem voru spilaðir í útvarpi og músíksjónvarpi eru nokkrir; Until it sleeps, Hero of the day, mama said og King Nothing t.d. en öll þessi lög voru gefin út á smáskífum.
    Bál - Hún finnur mig
    Rolling Stones - Sway
    Metallica - Mama said (plata þáttarins)
    Mastadon - Stairway to heaven
    Rival Sons - Feral roots
    Grateful Dead - Uncle John?n band
    VINUR ÞÁTTARINS
    Grateful Dead - Deal (live)
    SIMATÍMI
    Black Crowes - Jealous again
    Nick Cave & The Bad Seeds - Bring it on (óskalag)
    Rolling Stones - Angie (óskalag)
    Metallica - Until it sleeps (plata þáttarins)
    Wilco - Box full of letters
    The Velvet Underground - Rock?n roll
    Jinjer - Pisches (óskalag)
    The Breeders - Happiness is a warm gun
    GESTUR FUZZ - Kristinn Snær Agnarsson
    Jellyfish - The ghost at number one
    KRISTINN SNÆR II
    Living Colour - Time?s up
    KRISTINN SNÆR III
    Living Colour - Pride
    Sweet - Balloroom blitz (óskalag)
    Ne
    2 hr 35 min
  • Björn Ingi - U2 og Rolling Stones
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Björn Ingi Hrafnsson frá Viljanum. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00.
    Vinur þáttarins sendir lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Sticky Fingers með Rolling Stones sem kom út 23. Apríl 1971.
    Sticky Fingers þykir ein af betri plötum Rolling Stones og hún er níunda stóra platan sem sveitin sendi frá sér í Bretlandi, ellefta í Bandaríkjunum. Plöturnar sem komu út í Bretlandi voru ekki eins og þær sem komu út í Bandaríkjunum til að byrja með, en svo breyttist það.
    Sticky Fingers er fyrsta plata Rolling Stones sem kom út á þeirra eigin vegum, undir merkjum Rolling Stones Records, en sveitin hafði fram til þessa frá 1963 verið samningsbundin Decca útgáfunni.
    Þetta er önnur plata Stones þar gítarleikarinn Mick Taylor spilar, en hann tók við af stofnanda sveitarinnar, Brian Jones.
    Platan seldist gríðarlega vel þegar hún kom út og það er slatti af smellum og þekktum lögum á henni, t.d. Brown sugar, Dead flowers, Wild horses og Can?t you hear me knockin.
    Umslagið hannaði sjálfur Andy Warhol. Það sýnir ljósmynd í fullri stærð af karlmannsmiðju í gallabuxum. Og á gallabuxunum er alvöru rennilás. Það er að segja, á upprunalegu útgáfunni. Og ef maður renndi niður sást í nærbuxur. Rennilásinn átti það til að skemma vinylinn og þess vegna var rennilásnum sleppt í endurútgáfum plötunnar, þá var bara mynd af rennilásnum.
    Sticky Fingers þykir afturhvarf til fyrri tíma Rolling Stones. Það er lítið um aukahljóðfæri á plötunni eins og þeir höfðu verið að gera tilraunir með á plötunum á undan henni. Liðsmenn hljómsveitarinnar eru allir í aðalhlutverkum; Mick Jagger (söngur, slagverk og gítar), Keith Richards (gítar og raddir), Mick Taylor (gítar), Bill Wyman (bassi), og Charlie Watts (trommur). Þar fyrir utan spila með þeim á plötunni nokkrir góðir og fastir liðsmenn; Bobby Keys (saxófónn), og píanóleikararnir Billy Preston, Jack Nitzsche, Ian Stewart, og Nicky Hopkins.
    Miðnes - Einar
    Rolling Stones - Bitch (plata þáttarins)
    Rock paper Sisters - Restless
    QOTSA - Turnin on the sqrew
    Ramones - Rockaway beach
    Deep Purple - Jelp
    VINUR ÞÁTTARINS
    Deep Purple - Hush
    SÍMATÍMI
    Iron Maiden - Brace new world
    Black Sabbath - Iron Man
    Rolling Stones - I got the blues (plata þáttarins)
    Roxy Music - Out in the fields (óskalag)
    Phil Lynott og Gary Moore - Out in the fields (óskalag)
    At the Drive in - One armed scissor (óskalag)
    Sports Team - Going soft
    Jet Black Joe - Fuzz
    GESTUR FUZZ - Björn Ingi Hrafnsson
    U2 - Pride in the name of
    2 hr 35 min
  • Sólveig Anna - PIxies og Kiss
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00.
    Vinur þáttarins sendir lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Unmasked, áttunda breiðskífa hljómsveitarinnar Kiss. Hún kom út 20. maí árið 1980, fyrir 40 árum og tveimur dögum.
    Unmasked er síðasta platan þar sem Peter Criss trommari er í bandinu, en hann trommar reyndar ekkert á plötunni heldur náungi sem heitir Anton Fig, en hans var hvergi getið upphaflega á plötunni.
    Vini nokkur Poncia kemur nokkuð við sögu á plötunni sem lagasmiður, en hann hafði samið talsvert t.d. með Ringo Starr eftir endalok Bítlanna. Og Unmasked er fyrsta plata Kiss þar sem utanaðkomandi lagasmiðir leggja svona mikið til plötu, en Vini Poncia er skráður meðhöfundur í flestum laga plötunnar. Einu lögin sem utanaðkomandi lagasmiður kemur ekki við sögu í eru 2 lög sem Ace Frehley gítarleikari sveitarinnar, samdi, Talk to me og Two sides of the coin.
    Platan náði hæst 35. Sæti bandaríska vinsældalistans, en allar plöturnar sem þeir höfðu gefið út síðan Hotter than Hell kom út 1974 höfðu gert betur á listanum.
    Sveitin hélt þó vinsældum í Evrópu áfram og platan fór t.d. á toppinn á vinsældalistunum í Noregi og á Nýja sjálandi auk þess sem hún náði inn á topp 5 í Ástralíu, Austurríki,
    2 hr 35 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…