Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Erla Stefáns - Faith No More og Led Zeppelin
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Erla Stefánsdóttir tónlistarkona og bassaleikari. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna kl. 21.00
    Við fáum lag frá vini þáttarins kl. 19.45 og plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Led Zeppelin III sem kom út í október 1970, fyrir rétt tæpri hálfri öld.
    Á plötunni sýnir rokksveitin Zeppelin á sér aðeins mýkri og þjóðlagaskotnari hlið en hún var þekkt fyrir þá, en hluti plötunnar er undir áhrifum frá enskum þjóðlagasveitum sem voru hvað vinsælastar á þessum tíma um 1970.
    Það er talsvert rokk á plötunni, en sveitin sýnir líka á sér nýja og akústískari hlið í llögum á borð við Gallows pole og That?s the way.
    Sveitin samdi megnið af lögum sveitarinnar, en eins og á fyrri plötunum tveimur eru líka endurunnar útgáfur af eldri lögum eftir aðra. Gallows pole er byggt á ensku þjóðlagi og Hats off to Roy Harper er unnið upp úr blúslagi eftir Bukka White.
    Og akústísku lögin á plötuna urðu til þegar þeir Jimmy Page og Robert Plant fóru saman og dvöldu í sveitakoti Wales sem heitir Bron-Yr-Aur, eins og eitt laga plötunnar; Bron-Yr-Aur stomp.
    Talsvert af plötunni var svo hljóðritað í Headly Grange, gömlu sveitasetri í Hadley í hamspire í Englandi þar sem margar hljómsveitir æfðu og tóku upp á sjö og átta tugnum, en auk Led Zeppelin unnu þarna sveitir og listamenn á borð við In Dury, Bad Company, Genesis, Fleetwood Mac, Pretty Things og fleiri.
    Til þess að taka upp notaðist sveitin við frægan upptökubíl sem Rolling Stones átti, en þeir voru ekki á hverju strái á þeim tíma. Það var líka tekið upp í Island studios og Olympic Studios í London.
    Eins og á hinum tveimur plötum sveitarinnar eru engir gestaspilarar á Led Zeppelin III, heldur spila þeir fjórir sem voru í sveitinni á öll hljóðfæri og allur söngur kom úr barka Roberts Plant. En það er spilað á ýmsi hljóðfæri á plötunni sem höfðu ekki heyrst á fyrstu tveimur plötunum, hljóðfæri eins og synthesizerara, mandolín og kontrabassi.
    Það var víða beðið með mikilli eftirvæntinu eftir þessari plötu og hún seldist strax ótrúlega vel og fór á toppinn á vinsældalistunum bæði í Bretlandi og bandaríkunum, en hún hlaut misjafna dóma og það voru ýmsir ringlaðir yfir stefnubreytingunni sem hafði átt sér stað frá Led Zeppelin II, en það er mun meira rokk þar en á Zeppelin III.
    Í dag þykir Led Zeppelin III eitt af meistaraverkum rokksögunnar, einmitt vegna þess hversu fjöldbreytt hún er.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20
    2 hr 35 min
  • Margrét Rán - Nirvana og AC/DC
    Gestur þáttarins að þessu sinni er söngkonan í hljómsveitinni Vök, Margrét Rán, en Vök hlaut í vikunni 8 tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna kl. 21.00
    Við fáum lag frá vini þáttarins kl. 19.45 og plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er þriðja plata AC/DC, Dirty Deeds Done Dirt Cheap sem kom út 1976, en í vikunni voru liðin 40 ár frá dauða söngvarans Bon Scott.
    Dirty Deeds Done Dirt Cheap er þriðja plata AC/DC sem kom út í heimalandinu Ástralíu, önnur platan sem kom út í Englandi, en bandaríska plötuútgáfan þeirra var ekki hrifin af plötunni þegar sveitin skilaði henni af sér og hún kom ekki út í Ameríku fyrr en 1981, rúmu ári eftir að Bon Scott lést.
    Hljómsveitin byrjaði að taka lögin sem enduðu á plötunni upp í Albert Studios í Sydney í Ástralíu í desember 1975 og upptöustjórar voru þeir Harry Vanda og George Young sem var eldri bróðir þeirra Young bræðra í AC/DC, Angusar og Malcolms. Hann og Harry Vanda voru saman í hljómsveitinni Easybeats á sjöunda áratgnum. Þekktasta lag Easybeats er líklega Friday on my mind sem stundum heyrist í útvarpi enn þann dag í dag.
    AC/DC var í vandræðum á þessum tíma. Sveitin fór til Englands að freysta gæfunnar, en svo þegar hún kom aftur heim til Ástralíu 1976 fengu þeir frekar kaldar móttökur og það var eins og aðdáendahópurinn sem þeir voru búnir að byggja upp á heimavelli hefði yfirgefið þá. Það munaði minnstu á þessum tíma að sveitin legði árar í bát. Sveitin barðist í bökkum fjárhagslega, plötuútgáfan í Ameríku vildi ekki gefa plötuna þeirra út, sveitin fékk ekki að spila á mörgum tónleikastöðum sem hún vildi spila á, þeir þóttu svo dónalegir. Það gekk ekkert hjá þeim á þessum tíma, en það átti eftir að breytast hratt opg örugglega ekki svo löngu síðar.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20
    Lagalisti kvöldsins:
    Baraflokkurinn - It?s all planned
    Utangarðsmenn - Sárt er að missa
    Ozzy Osbourne - Goodbye
    Stranglers - Get a grip on yourself
    Killing Joke - Eighties
    VINUR ÞÁTTARINS
    Wishbone Ash - The King will come (live)
    Manic Street Preachers - Your love alone is not enough
    SÍMATÍMI
    AC/DC - Dirty deeds done dirt cheap (plata þáttarins)
    The Black Keys - Gold on the celing
    Rolling Stones - It?s all over now (óskalag)
    Black Label Society - Funeral bell (óskalag)
    Deep Purple - Smoke on the water (óskalag)
    Pink Street Boys - Hvunndagshetjur (íslenskir rapparar fokking étiði skít)
    AC/DC - Proble child (plata þáttarins)
    Status Quo - I saw the light
    GESTUR FUZZ - MARGRÉT RÁN
    Iron Maiden - Fear of the dark
    MARGRÉT II
    N
    2 hr 35 min
  • Nalli Leví - Nada Surf og Black Crowes
    Gestur þáttarins að þessu sinni er hljómplötuútgefandinn og plötusalinn Haraldur Leví Gunnarsson frá Hafnarfirði. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna kl. 21.00
    Við fáum lag frá vini þáttarins kl. 19.45 og plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er fyrsta plata bandarísku rokksveitarinnar The Black Crowes, Shake Your Money Maker, sem kom út fyrir 30 árum, 13. Febrúar árið 1990 á vegum Def Jam útgáfunnar og sló umsvifalaust í gegn.
    Platan heitir eftir gamla blús-slagaranum Shake you money Maker eftir Elmore James. Sveitin hefur spilað það óteljandi sinnum á tónleikum í gegnum tíðina en það er ekki á plötunni. Platan náði 4. Sæti bandaríska vinsældalistans og tvö af lögum plötunar náðu topsæti mainstream rokk-lista Billboard, lögin Hard to handle og Jealous again.
    Shake Your Money Maker er mest selda plata sveitarinnar og hefur í dag selst í meira en 5 milljónum eintaka.
    En hljómsveitin Black Crowes var stofnuð árið 1984 og likilmenn sveitarinnar hafa alltaf verið bræðurnir Chris og Rich Robinson.
    Sveitin gerði samning við Def Jam Recordings 1989 og milligöngumaður um það var uptökustjórinn George Drakoulias sem stjórnaði einmitt upptökum á Shake Your Money Maker. Síðan hefur sveitin sent frá sér 8 hljóðversplötur og 4 tónleikaplötur. Önnur platan; The Southern Harmony and Musical Companion, fór alla leið á topp bandaríska vinsældalistans 1992. Sveitin tók sér hlé frá 2002 - 2005 en kom þá aftur og túraði í nokkur ár áður en platan, Warpaint kom út 2008.
    2010 fór sveitin í 20 ár afmælistúr en tók svo aftur hlé til 2013. 2015 var svo aftur hlé þar til núna í fyrra að þeir bræður Chris og Rich sem hafa átt stormasamt bræðrasamband alla tíð settu Black Crowes í gang enn einu sinni, en í þetta skiptið var enginn með sem hafði verið í hljómsveitinni áður nema þeir. Í ár er sveitin að túra í tilefni af 30 ára afmæli Shake Your Money Maker.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20
    Lagalistinn:
    Dúkkulísur - Skítt með það
    Rolling Blackouts Coastal Fever - Cars in space
    Bruce Springsteen - I fought the law
    Drive By Truckers - Armageddon?s back in town
    REM - Uberlin
    The Black Crowes - Jealous again
    VINUR ÞÁTTARINS
    The Grease Band - New Moroning
    Velvet Underground - Sweet Jane
    SÍMATÍMI
    My Bloody Valentine - Only shallow
    Red Hot Chili Peppers - Suck my kiss (óskalag)
    Machine Head - Hallowed by thy name (óskalag)
    Lamb of God - Checkmate
    Black Sabbath - Paranoid (óskalag)
    QOTSA - Feel good hit of the summer
    Wolfmother - Woman
    Deep Purple - Smoke on the water
    Black Crowes - Twice as hard (plata þáttarins)
    GESTU
    2 hr 32 min
  • Bryndís Ásmunds, Janis og alþjóðlegi Clash dagurinn!
    Gestur þáttarins að þessu sinni er söng og leikkonan Bryndís Ásmundsdóttir. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna kl. 21.00
    Við fáum lag frá vini þáttarins kl. 19.45 og plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er önnur stóra plata ensku pönksveitarinnar The Clash, Give 'Em Enough Rope, sem kom út 10. nóvember 1978. En dagurinn í dag er alþjóðlegi Clash dagurinn sem margir halda upp á með ýmsum hætti víðsvegar um heiminn - ekki síst útvarpsstöðvar.
    Rás 2 hélt í fyrsta sinn upp á alþjóðlega Clash-daginn fyrir tveimur árum sléttum með því að spila tónlist hljómsveitarinnar og minna á hvað þessi merkilega hljómsveit stóð fyrir og hvaða áhrif hún hefur haft á tónlist og samfélagið í heild.
    Útvarpsstöðvar, borgarráð víðsvegar, plötubúðir og tónleikastaðir í öllum heimsálfunum sjö taka þátt í alþjóðlega Clash-deginum í dag með ýmsum hætti.
    Lagið „Know Your Rights“, fyrsta smáskífulag plötunnar Combat Rock, er einkennandi fyrir Clash og skilaboðin sem hljómsveitin sendi heiminum. Þar heyrist vel hversu vel hljómsveitinni tókst að blanda saman samfélagsumræðu, atkívisma og frábærri músík.
    Með alþjóðlega Clash deginum vill fólk minna á að ekkert er sjálfsagt, mannréttindi eru ekki sjálfgefin, fólk hefur alltaf þurft að berjast fyrir þeim og það er gott að minna sig á það og gera sitt til að viðhalda og efla gildi frjáls samfélags og ánægjulegrar tilveru.
    Fleiri en 50 útvarpsstöðvar um heim allan hafa fagnað lýðræðinu og haldið upp á alþjóðlega Clash-daginn með því að spila tónlist the Clash. Útvarpsstöðvar eins og Ice Radio 104.5 FM á Suðurskautslandinu, RDU98.5FM í Christchurch í Canterbury á Nýja-Sjálandi, OCR FM í Colac í Australíu og vinir Rásar 2 á KEXP í Seattle sem buðu Rás 2 að slást í hópinn, en það var einmitt John Richards umsjónarmaður morgunþáttar KEXP sem reið á vaðið með þenna alþjóðlega Clash-dag árið 2013. Síðan þá hafa fleiri og fleiri bæst í hópinn.
    En plata þáttarins er ss. önnur breiðskífa The Clash, Give 'Em Enough Rope, sem er fyrsta platan þeirra sem kom út í Bandaríkjunum. Henni var vel tekið af gagnrýnendum þegar hún kom út, hún náði öðru sæti vinsældalistans í Bretlandi og 128. Sæti í Bandaríkjunum.
    Á Give 'Em Enough Rope er trommarinn frábæri Topper Headon með Clash, en hann gekk til liðs við bandið skömmu eftir að fyrsta platan kom út árið áður. Eins og á fyrstu plötuni eru flest lögin eftir þá Mick Jones og Joe Strummer, en undantekningin er lagið English Civil War sem er endurvinnsla á gömlu bandarísku þjóðlagi (When Johnny Comes Marching Home) og lagið Guns on the Roof er skrifað á
    2 hr 35 min
  • Páll Rósinkranz - AC/DC og Neil Young & Crazy Horse
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Páll Rósinkranz söngvari úr Jet Black Joe m.a. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna kl. 21.00
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Ragged Glory með Neil Young & Crazy Horse sem kom út fyrir 30 árum síðan. Platan sem er átjanda plata Neil Young og sjötta platan hans með Crazy Horse kom út 9. september 1990.
    Upptökur fóru fram í apríl 1990 á búgarði Neil?s; Broken Arrow ranch, í Kaliforníu og upptökurnar fóru þanig fram að Neil og bandið spiluðu lagarunu tvisvar á dag í tvær vikur, spiluðu aldrei sömu lögin tvisvar í hverju rennsli og síðan voru bestu tökurnar valdar - allt tekið upp „læv“. Með þessari aðferð sagði Neil að hann hafi tekið alla hugsun frá hljómsveitinni og tilfinningin látin ráða för.
    Platan minnir sándlega á fyrri plötur Neil með Crazy Horse, sér í lagi Everybody Knows This Is Nowhere frá 1969 og Zuma frá 1975.
    Fyrstu tvö lög plötunar, Country Home og White Line voru gömul lög sem sveitin hafði spilað á tónleikum uppúr 1970 og eitt laganna, Farmer John, er lag frá sjöunda áratugnum sem R&B dúóið Don and Dewey gerðu frægt á sínum tíma, en bresku Searchers gáfu líka út, sem og garage-rokkbandið The premiers.
    Lagið Days that used to be sem er að finna á Ragged Glory sagði Neil að væri undir áhrifum frá Dylan-laginu My back pages. Hann flutti það lag á tónleikunum í Laugardalshöll sumarið 2015 og tvö önnur lög af plötunni, Love and only love og Love to burn.
    Að margra mati er Ragged Glory ein besta plata Neil Young frá upphafi, kraftmikil rokk og gítarplata.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20
    Lagalistinn:
    Jet Black Joe - Take me away
    Neil Young & Crazy Horse - Country home (plata þáttarins)
    RUSH - Tom Sawyer
    Fontaines D.C. - Sha sha sha
    Corrosion of Confirmity - Albatross
    Metallica - Until it sleeps (S&M)
    Sólstafir - Hvít sæng (std. 12 fyrr í dag)
    VINUR ÞÁTTARINS
    The Hunter Ronson Band - Women?s intuition
    SÍMATÍMI
    Metallica og sinfó - Until it sleeps
    Small Faces - Song of baker (óskalag)
    David Bowie - Running gun blues (óskalag)
    Peter Gabriel - Family snapshot (óskalag)
    Krónika - Glóð (óskalag)
    Neil Young & Crazy Horse - Love and only love (plata þáttarins)
    PÁLL RÓSINKRANZ GESTUR FUZZ
    Jet Black Joe - Fuzz
    PÁLL II
    AC/DC - Riff raff
    PÁLL III
    AC/DC - Whole lotta Rosie
    The 1975 - Give yourself a try
    Gary Clarke Jr. - This land
    Blacktop Mojo - Lay it on me (óskalag)
    Neil Young & Crazy Horse - Love to burn (plata þáttarins)
    2 hr 35 min
  • Júlía Margrét og The National, Aerosmith o.fl.
    Hulda G. Geirsdóttir stýrði Fuzzinu að þessu sinni og gestur þáttarins var Júlía Margrét Einarsdóttir rithöfundur og kvikmyndagerðarkona. Hún hafði með sér sína uppáhalds rokkplötu I am easy to find með The National sem hún sagði hafa haft gríðarleg áhrif á sig og áhrif hennar yrðu sýnileg í skáldsögu sem hún vinnur að þessa dagana.
    Þá hringdu hlustendur inn og báðu um óskalög og plata þáttarins var Pump með Aerosmith frá árinu 1989.
    Lagalisti:
    Nirvana - Where did you sleep last night.
    Pat Benatar - Hit me with your best shot.
    Egó - Móðir.
    Aerosmith - Janies got a gun. (Af plötu þáttarins).
    R.E.M. - Finest worksong.
    Sólstafir - Fjara.
    Yes - Owner of a lonely heart.
    Dimma - Villimey.
    Rainbow - Stone Cold.
    Jet Black Joe - Take me away.
    Norður - Brestir.
    Aerosmith - Love in an elevator. (Af plötu þáttarins).
    ZZ Top - Just got paid.
    The Beatles - Here comes the sun.
    ACDC - Let there be rock.
    200.000 Naglbítar - Enginn veit enginn sér.
    The Manic Street Preachers - If you tolerate this then your children will be next.
    Gestur þáttarins - JÚLÍA MARGRÉT EINARSDÓTTIR með plötuna I AM EASY TO FIND.
    -The National - Light years.
    -The National - I am easy to find.
    The Vintage Caravan - Crazy horses.
    Rush - Tom Sawyer.
    The Band - The weight.
    Aerosmith - Monkey on my back (live).
    Deep Purple - Burn.
    Tool - The Pot.
    2 hr 35 min
  • Gunnar Malmquist, System of A Down og Foo Fighters
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Gunnar Malmquist, handboltaleikmaður sem spilar fyrir Aftureldingu. Hann mætir með sína uppáhalds plötu sem er Toxicity með System of a Down. En það voru frændur Gunnars sem kynntu hann fyrir plötunni, þeir Aron Einar Gunnarsson og Arnar Þór Gunnarsson, leikmenn íslenska landsliðsins í fótbolta annars vegar og handbolta hinsvegar.
    Plata vikunnar er The Color and the Shape með Foo Fighters. Þetta er önnur breiðskífa þeirra og sú fyrsta sem er eiginleg hljómsveitarplata, en frumburður sveitarinnar var hálfgerð sólóplata frá Dave Grohl.
    Lagalisti:
    Ensími - Arpeggiator
    Queens of the Stone Age - No One Knows
    ZZ Top - La Grange
    The Kinks - All Day and All of the Night
    Foo Fighters - Everlong (Plata vikunnar)
    Kaleo - Break My Baby
    Kaleo - I Want More
    Ham - Ingimar
    Led Zeppelin - Black Dog
    Ian Dury & the Blockheads - Hit Me With Your Rythm Stick (Óskalag)
    Ozzy Osbourne - Mama I'm Coming Home (Óskalag)
    Iron Maiden - 2 Minutes to Midnight (Óskalag))
    Black Sabbath - Paranoid (Óskalag)
    Royal Blood - Out of the Black
    Creed - With Arms Wide Open
    Metallica - Enter Sandman (Gestur vikunnar)
    System of a Down - ATWA (Gestur vikunnar)
    System of a Down - Chop Suey (Gestur vikunnar)
    200.000 Naglbítar - Stopp Nr 7
    Foo Fighters - My Hero
    Steppenwolf - Born to be Wild
    Rolling Stones - Tumbling Dice
    Kings of Leon - Fans
    Muse - Stockholm Syndrome
    Pearl Jam - Black
    AC/DC - Highway to Hell
    Pixies - Debaser
    2 hr 35 min
  • Anna Halldórs, Siouixsie and the Banshees og MSG
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Anna Halldórsdóttir tónlistarkona og tónskáld frá Akranesi. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er plata sem heitir Assault Attact og er þriðja plata hljómsveitarinnar The Michael Schenker Group. Michael Schenker sem er þjóðverji, gítarleikari sem var eina tíð í Scorpions ásamt Rudolf Schenker bróður sínum t.d.
    Assault attack er eina plata Michaal Schenker Group þar sem Graham Bonnet sem hafði áður verið í Rainbow með Ritchie Blackmore, syngur.
    Platan var tekin upp í Frakklandi, í Château d'Hérouville, ekki langt frá París og upptökustjóri var Martin Birch sem gerði margar plötur með Deep Purple, Fleetwood Mac, Whitesnake og margar bestu plötur Iron Maiden.
    Michael Schenker kom til Englands frá Japan í ágúst 1981, en í Japan hafði hann hljóðritað tónleikaplötuna One Night at Budokan. Sveitin fór þá í stuttan túr um Bretland og að honum loknum stungu menn saman nefjum og voru að ræða að þá vantaði eiginlega nýjan söngvara í hljómsveitina, þeir voru ekki nógu ánægðir með Gary Barden sem var að syngja með þeim þá. Umboðsmaður sveitarinnar og trommarinn Cozy Powell vildu tala við David Coverdale söngvara Whitesnake um að koma og syngja með þeim, en Schenker sjálfur vildi fá Graham Bonnet sem hafði gert góða hluti með Rainbow. Það endaði þannig að umboðsmaðurinn hætti að vinna með hljómsveitinni og Graham Bonnet gekk til liðs við sveitina í febrúar 1982.
    Powell hætti líka um þetta leiti, sem og hljómborðsleikarinn Paul Raymond og í þeirra stað komu skoski trommarinn Ted Mckenna sem hafði spilað mikið með Rory Gallagher og hljómborðsleikarinn Tommy Eyre sem hafði td. spilað með Joe Cocker á Woodstock og átti síðar eftir að verða tónlistarstjóri Wham.
    Eftir fjögurra mánaða æfingar og lagasmíðar var svo farið til Frakklands í þessa gömlu villu eða kastala sem Château d'Hérouville er, og með þeim var upptökustjórinn Martin Birch sem var þá nýbúinn að gera Number of the beast með Iron Maiden.
    Plötunni var nokkuð vel tekið, sér í lagi meðal ungmenna þess tíma sem keyptu Bravo.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20
    2 hr 35 min
  • Ólafur Örn, Rage Against the Machine og U2
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Ólafur Örn Ólafsson framreiðslumeistari og sjónvarpsmaður. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Rage Against the Machine, fyrsta plata samnefndrar sveitar sem kom út 3. nóvember 1992 á vegum Epic útgáfunnar.
    Platan náði hæst í 45. Sæti bandaríska vinsældalistans skömmu eftir að hún kom út, en hefur í seinni tíð skipað sér sess sem ein merkasta plata rokksögunnar.
    Á plötunni er blandað saman hörðu rokki og rappi í fyrsta skipti þannig að það vakti athygli um allan heim. Þessi plata breytti mjög miklu, en það var ekki allt gott sem fylgdi í kjölfarið.
    Platan er ramm-pólitísk og inniheldur m.a. lagið Killing in the name of sem er eitt magnaðasta lag kynslóðar sem var að slíta barnsskónum á þessum árum.
    Sveitin kom til íslands þegar hún var sjóðheit að fylgja þessari plötu eftir, spilaði í Kaplakrika í Hafnarfirði 12. Júní ?93 og vinsælasta hljómsveit landsins þá, Jet Black Joe, hitaði upp.
    Klukkan tíu steig Rage Against the Machine á svið. Á þeim tímapunkti var hitinn í salnum orðinn óbærilegur og loftræstikerfið réði ekki við neitt. Ösin var mikil og margir ölvaðir unglingar á staðnum. Svitinn beinlínis lak af veggjum hallarinnar. Þegar hljómsveitin hóf prógrammið með Take the Power Back, varð allt brjálað.
    Gæslan á svæðinu átti í stökustu erfiðleikum með að halda tónleikagestum á sínum stöðum því að margir vildu príla upp á svið til hljómsveitarinnar. Einum tókst það og fór söngvarinn Zach de la Rocha fram á að honum yrði leyft að vera uppi og dansaði hann þá með sveitinni.
    Zach var heldur ekkert að reyna að róa Krikann niður heldur messaði yfir lýðnum um þann hrylling sem Bandaríkjastjórn hafði framið í Persaflóa. Ungmennin hoppuðu og enginn fór vonsvikinn heim.
    Hljómsveitin hefur verið starfandi af og til síðastu ár og núna í nóvember var sagt frá því að fyrstu tónleikar Rage Against the Machine í 9 ár yrðu núna árið 2020, en sveitin er verður t.d. eitt af aðalnúmerum Coachella hátíðarinnar í Kaliforníu í ár.. Hugsanlega spilar sveitin eitthvað meira líka.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20.
    Hér er lagalistinn:
    Kaleo - Glass house
    Nick Cave & The Bad Seeds - Bring it on
    U2 - I will follow
    Girlchool - Race with the devil
    Black Sabbath - Heaven and hell
    Metallica - Atlas! Rise!
    Rage Against the Machine - Take the power back (plata þáttarins)
    VINUR ÞÁTTARINS
    Roy Buchanan - Peter Gunn
    SÍMATÍMI
    Meatloaf - Bat out of Hell
    Lamb of God - Grace (óskalag)
    Skálmöld - Með jötnum (óskalag)
    King Crim
    2 hr 35 min
  • Gummi Jóns, Queen
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Guðmundur Jónsson tónlistarmaður, Gummi úr Sálinni og GG Blús t.d. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00
    Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er A Night at the Opera, fjórða hljóðversplata hljómsveitarinnar Queen. Hún kom kom út 21. nóvember 1975 á vegum EMI Records í Bretlandi og Evrópu og Elektra Records í Bandaríkjunum. Og akkúrat þennan dag 1975 náði hún toppsæti breska vinsældalistans og sat á toppnum í fjórar vikur. A Night at the Opera var fyrsta plata Queen sem fór á toppinn en alls ekki sú síðasta.
    Upptökustjóri plötunnar var Roy Thomas Baker sem gerði fyrstu fimm plöturnar með Queen, og það var sagt frá því á sínum tíma að þetta væri dýrasta plata sem hafði verið tekin upp, það fór svo mikil tími í upptökurnar.
    Nafn plötunnar er fengið frá titli samnefndrar kvikmyndar sem Marx bræður gerðu árið 1935.
    Platan var tekin upp í ýmsum stúdíóum á fjögurra mánaða tímabili árið 1975. Queen hafði lent í því eins og svo margar aðrar hljómsveitir í sögunni að semja af sér þannig að þeir höfðu næstum enga peninga fengið fyrir fyrstu þrjár plöturnar sínar. Þeir enduðu á þessum tímapunkti samning sinn við Tridend Studios og fóru annað og unnu.
    Upptökuvinnan var flókin útkoman mjög fjölbreytt, A Night at the Opera er gríðarlega fjölbreytt plata. Þar er spilað rokk eins og gengur, en þar eru líka ballöður, söngleikamúsík, dixieland-jazz ofl. Og auk hinna hefðbundnu rokkhljóðfæra sem eru notuð á plötunni notuðu þeir líka kontrabassa, hörpu og ukulele svo eitthvað sé nefnt.
    Platan fór á toppinn heima í Bretlandi eins og fram hefur komið og náði fjórða sæti bandaríska vinsældalistans. Platan hefur í dag selst í meira en 6 milljónum eintaka.
    Platan hefur að geyma vinsælasta og þekktasta lag Queen, sjálft krúnudjásnið, Bohemian Rhapsody, sem er eitt vinsælasta og þekktasta lag rokksögunnar.
    Platan fékk misjafna dóma þegar hún kom út. Sveitinni var hælt fyrir fjölbreytileikann og sándið, en mörgum þótti platan ekkert sérstök. Hún hlaut tvær Grammy tilnefningar 1977, rúmu ári eftir að hún kom út, í flokkunum Best Pop Vocal Performance by a Duo, Group or Chorus og Best Arrangement for Voices. Í seinni tíð er talað um þessa plötu sem eina af merkustu og flottustu plötum rokksögunnar. Árið 2003 lenti hún í sæti 231 á lista Rolling Stone yfir 500 bestu plötur sögunnar. Í fyrra var A Night at the Opera vígð inn í frægðarhöll Grammy.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með Jimi Hendrix.
    EGO - Stórir strákar fá raflost
    Psychadel
    2 hr 35 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…