Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Davíð Þór, Stranglers og Kiss
    Gestur þáttarins að þessu sinni er séra Davíð Þór Jónsson sem margir þekkja betur sem Radíusbróður en prest. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00
    Plata þáttarins er sjötta hljóðversplata hljómsveitarinnar Kiss, Love Gun, sem kom út 30. Júní 1977. Þessi plata hefur alltaf minnt umsjónarmann á jólin einhverra hluta vegna og þess vegna, ohg vegna þess að trommarinn Peter Criss á afmæli í dag, 73 ára gamall í dag, var Love Gun valin sem plata þáttarins.
    Love Gun er fyrsta plata Kiss þar sem gítarleikarinn Ace Frehley syngur lag, en hann sem og syngur á plötunni lagið Shock Me. Hin lögin eru flest eftir gítarleikarann Paul Stanley, eða bassaleikarann Gene Simmons, en eitt lag er líka eftir Peter Criss trommara, og Love Gun er fyrsta plata Kiss þar sem allir liðsmenn eiga lög og syngja sín eigin lög.
    Love Gun er jafnframt síðasta plata Kiss þar sem Peter Criss spilaði í öllum lögum, en á næstu plötu, Dynasty, sem kom út 1979 trommar Criss bara í einu lagi, en Anton nokkur Fig trommar öll hin.
    Áður en platan kom út gerði Gallup könnun í Bandaríkjunum á því hvaða hljómsveit væri vinsælasta hljómsveit Bandaríkjanna, og þar lenti Kiss í fyrsta sæti á undan böndum eins og Aerosmith, Led Zeppelin og Eagles svo dæmi séu tekin.
    26. - 28. ágúst ?77 þegar Kiss var að fylgja plötunni eftir hljóðritaði sveitin þrenna tónleika í LA Forum og þær upptökur voru gefnar út á tónleikaplötunni Alive II fyrir jólin ?77. Umslag plötunmar teiknaði Ken Kelly sem teiknaði líka umslag plötunnar Destroyer árið 1976.
    Þetta var svo spilað í kvöld:
    Austurvígstöðvarnar - Útvarp Satan
    The Kinks - Father christmas
    R.E.M - Mine smell like honey
    Kiss - I stole your love (plata þáttarins)
    Smashing Pumpkins - Christmastime
    VINUR ÞÁTTARINS
    James Gang - Walk away
    Skálmöld - Niðavellir
    Dúkkulísur og Stebbi Jak - Hátíð fer að höndum ein
    SÍMATÍMI
    Ellertson - Þorláksmessa
    Nightwish - Walking in the air (the snowman) (óskalag)
    Bob Dylan - Must be Santa (óskalag)
    Iron Maiden - Seventh son of a seventh son
    Kiss - Shock me (plata þáttarins)
    Laddi - Rokkað út jólin (óskalag)
    Chcuk Berry - Run Rudolph run
    Ian Gillan & Jon Lord - If this ain?t the blues (óskalag)
    Bruce Springsteen - Santa claus is coming to town
    DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON - GESTUR FUZZ
    Austurvígstöðvarnar - Arnþrúður er full
    DAVÍÐ ÞÓR II
    Stranglers - London lady
    DAVÍÐ ÞÓR II
    Stranglers - Hangin around
    The Ramones - Merry christmas (i don?t wanna fight)
    Twisted Sister - I saw mommy kissing santa claus (óskalag)
    Deep Purple - Speed king (óskalag)
    2 hr 35 min
  • Hera Björk, Whitesnake, Television og Jimi Hendrix
    Gestur þáttarins að þessu sinni er söngkonan og athafnakonan Hera Björk. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00
    Plata þáttarins er Marquee Moon, fyrsta plata bandarísku rokksveitarinnar Television sem kom út 8. Febrúar 1977 á vegum Elektra Records.
    Televison hafði getið sér gott orð sem kraftmikið og gott tónleikaband í New York árin áður en platan kom út. Television var eitt aðal bandið í bullandi pönksenunni í New York á þessum tíma og það voru nokkur plötufyrirtæki sem sýndu sveitinni áhuga með útgáfu í huga.
    Sveitin æfði stíft áður en varið var í hljóðver í september 1976, og það var afmælisbarn dagsins, söngvarinn og gítarleikarinn Tom Verlaine sem er sjötugur í dag sem stjórnaði upptökum ásamt upptökumanninum Andy Johns.
    Sveitin var hrárri þegar hún var að stíga sín fyrstu skref, en þegar í hljóðverið var farið var sneitt hjá mesta groddanum, pönkuðum jötun-gripunum og þeir Tom Verlain og hinn gítarleikarinn Richard Lloyd spiluðu þess í stað aðeins mýkra og hættu sér jafnvel aðeins inn í jazzheiminn, fléttuðu gíturum sínum saman í melódískara spil.
    Marquee Moon fékk gríðarlega góða dóma og þótti strax tímamótaverk í rokkinu, en hún seldist ekki neitt gríðarlega vel, en þó eitthvað og sérstaklega í Bretlandi. Í dag þykir marquee Moon ein af undirstöðum new wave, jaðar-rokksins og því sem hefur verið kallað Post-punk. Marquee Moon er frábær plata og við heyrum 3-4 lög af henni í Füzz í kvöld.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með Jimi Hendrix.
    Lagalistinn:
    200.000 Baglbítar - Hjartagull
    The Darkness - Christmastime (Don?t let the bells end)
    Patti Smith - Gloria
    Blóðmör - Líkþorn
    ÓSKAR LOGI VINTAGE CARAVAN Á LÍNUNNI
    Vintage Caravan - Reflections
    Television - See no evil (Plata þáttarins)
    Grand Funk Railroad - We?re an American band
    VINUR ÞÁTTARINS
    Grand Funk Railroad - People, let?s stop the war
    SÍMATÍMI
    MEIK ásamt Bruce Kulick í std. 12 - Detroit rock city
    Van Halen - Hot for teacher (óskalag)
    Metallica - Seek and destroy (óskalag)
    Horrible Youth - Overachiever
    Rammstein - Pussy (óskalag)
    Television - Venus (Plata þáttarins)
    Rory Gallagher - Walk on hot coals
    GESTUR FUZZ - Hera Björk
    Beth Hart - Broken and ugly
    HERA II
    Whitesnake - Is this love
    HERA III
    Whitesnake - Here i go again
    Dio - Rainbow in the dark
    Thin Lizzy - Chinatown (óskalag)
    Television - Marquee moon (Plata þáttarins)
    2 hr 35 min
  • Hallur Ingólfs - Led Zeppelin, The Who og Slade
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Hallur Ingólfsson tónlistarmaður og leikskáld. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00
    Plata þáttarins er splunkuný plata frá hljómsveitinni The Who sem er samnefnd hljómsveitinni. Hún er tólfta hljóðversplata The Who, en sú fyrsta; My generation, kom út 1965.
    Það var sagt frá því opinberlega í janúar á þessu ári að The Who væri að vinna nýrri plötu, fyrstu plötunni með nýju efni í 13 ár, en síðasta plata; Endless Wire, kom út 2006.
    Gítarleikarinn Pete Townshend samdi öll lög og texta eins og venulega, og sagan segir að þeir gömlu félagarnir hafi unnið í hljóðverinu í sitthvoru lagi en ekki saman eins og yfirleitt er gert.
    Sveitin túraði talsvert á árinu sem er að verða búið og það eru frekari tónleikaferðir skipulagðar á næsta ári, amk um England og Írland.
    Umslag plötunnar hannaði Peter Blake sem er þekktastur fyrir að hanna umslag Sgt. Peppers plötu Bítlanna. Framhlið umslagsins er mjög í anda The Who en myndin er samansett úr 25 ferningum sem allir eru einstakar myndir. Þrír ferningar mynda nafnið; Who, og svo eru hinir 22 myndir sem, þegar þærkoma saman, minna allar á hljómsveitina.
    Við heyrum 3-4 lög af The Who í Füzz í kvöld.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni lítil jólaplata með Slade - A hlið og B hlið.
    Lagalistinn:
    Skepna - Við viljum blóð
    Blóðmör - Fyrirgefðu að ég rotaði þig um jólin
    Volcanova - Super duper van
    HAM - Musculus
    AC/DC - Live wire
    200 - Exodus 2015
    VINUR ÞÁTTARINS
    Bad Company - Bad Company
    Bad Company - Good lovin, gone bad*
    SÍMATÍMI
    Vintage Caravan - Set your sights
    The Who - All this music must fade (plata þáttarins)
    Genesis - Liliwhite Lilith (óskalag)
    Radiohead - No surprises (óskalag)
    Van Halen - Jump (óskalag)
    Keelrider - Sun
    Sólstafir - Fjara
    Johnny Cash - I walk the line (óskalag)
    The Who - I don?t wanna get wise (plata þáttarins)
    Guðmundur Pétursson - Stone free
    GESTUR FUZZ - HALLUR INGÓLFSSON
    Él - Ekkert plan
    HALLUR II
    Led Zeppelin - Custard pie
    HALLUR III
    Led Zeppelin - Ten years gone
    Beatles - Christmas time
    A+B
    Slade - Merry X-max everybody (A)
    Slade - Don?t blame me (B)
    Jethro Tull - Locomotive breath (óskalag)
    2 hr 35 min
  • Kolbrún - Nina Hagen, Black Sabbath og Beatles
    Gestur þáttarins að þessu sinni Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri, fyrrverandi þingmaður og ráðherra með meiru. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00
    Plata þáttarins er Master of Reality, þriðja plata Black Sabbath í tilefni af Black Friday - svörtum föstudegi.
    Platan kom út 21. Júlí 1971 og er talin ein af hornsteinum Doom metal, stoner rokksins og Sludge metalsins.
    Hún var tekin upp í Island studios frá febrúar til apríl 1971. Upptökustjóri var Rodger Bain sem hafði líka stjórnað upptökum á fyrri plötunum tveimur, en þetta var síðasta platan sem hann gerði með þeim þar sem gítarleikarinn Tony Iommi tók yfir upptökustjórnina á næstu plötum.
    Platan hefur í dag selst í rúmum tveimur milljónum eintaka í Bandaríkjunum einum og hún var fyrsta og eina plata Sabbath sem náði inn á topp 10 á bandaríska vinsældalistanum í 42 ár, eða þar til platan 13 kom út 2013. 13 er nítjánda plata Black Sabbath.
    Platan náði fimmta sæti í Bretlandi og því áttunda í Bandaríkjunum, en þrátt fyrir að seljast vel fékk hún ekki allstaðar góða dóma á sínum tíma. Robert Christgau gaf plötunni vonda einkunn í Village Voice og Lester Bangs skrifaði í Rolling Stone að platan væri mónótónísk og síðri en platan á undan, en textarnir væru reyndar aðeins skárri og opinberuðu betur en áður hvað þessi hljómsveit stæði fyrir.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með The Beatles.
    Þetta var svo spilað:
    Vintage Caravan - On the run
    Pink Street Boys - Út á dansgólf (Skórnir eru alelda)
    Smasming Pumpkins - Today
    Dimma - Þögn
    Rolling Stones - Monkey man
    Kula Shaker - Grateful when you?re dead (Jerry was there)
    Supergrass - Pumping on your stereo
    VINUR ÞÁTTARINS
    Fleetwood Mac - Oh well (part one)
    SÍMATÍMI
    AC/DC - Let there be rock
    Sálin Hans Jóns Míns - Óður (óskalag)
    Black Sabbath - Sweet leaf (plata þáttarins)
    Ham - Haf trú (óskalag)
    Big Thief - Not
    Humble Pie - As safe as yesterday is (óskalag)
    Él - Ekkert plan
    Black Sabbath - Children of the grave (plata þáttarins)
    GESTUR FÜZZ - KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR
    Smithereens - Blood and roses
    KOLLA II
    Nina Hagen - Wie leben
    KOLLA III
    Nina Hagen - Wir leben immer
    Black Sabbath - Solitude (plata þáttarins)
    A+B
    The Beatles - Something (A)
    The Beatles - Come together (A)
    Steve Winwood - Dear mr. fantasy (óskalag)
    2 hr 35 min
  • Ellý - Propaganda, Pearl Jam og U2
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Ellý söngkona hljómsveitarinnar Q4U. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00
    Plata þáttarins er Vitalogy sem er þriðja breiðskífa bandarísku rokksveitarinnar Pearl Jam, en hún kom út nákvæmlega þennan dag árið 1994, fyrir aldar fjórðungi - 25 árum!
    Platan kom fyrst út á vinyl og var eingöngu til á vinyl í hálfan mánuð. Og hún var fyrsta vinyl-platan sem náði inn á bandaríska vinsældalistann frá því að geisladiskurinn tók forystuna í sölu, af vinylnum nokkrum árum fyrr. Platan seldist í fyrstu vikunni í 34.000 eintökum sem kom henni í 55. sæti bandaríska vinsældalistans. Þegar diskurinn kom svo út fór platan beint á toppinn á listanum, seldist á viku í 877.000 eintökum og varð annar hraðseldasti geisladiskur sögunnar. Fyrsta sætið átti þá Vs. Plata Pearl Jam.
    Platan var samin og tekin upp meðan sveitin var að túra og fylgja eftir plötunni Vs. Sem kom út 1993. Lögin voru mörg samin í hljóðprufum fyrir tónleika og upptökurnar fóru fram í stuttum fríum frá tónleikahaldi. Upptökustjóri var Brendan O?Brien.
    Platan þótti og þykir fjölbreyttari en fyrri plöturnar tvær og inniheldur í bland harða rokkara, ballöður og tilraunakenndari músík.
    Það var mikil spenna innan hljómsveitarinnar meðan platan var í smíðum og valdabarátta. Áður en upptökur kláruðust var Stone Gossard gítarleikari að hugsa um að segja skilið við félaga sína, en hann hafði verið hálfgerður andlegur leiðtogi hljómsveitarinnar þar til söngvarinn Eddie Wedder tók völdin í sínar hendur. Trommarinn Dave Abbruzzese var rekin áður en platan var kláruð og gítarleikarinn Mike McCready fór í áfengis og vímuefnameðferð.
    Platan fékk yfirleitt góða dóma og aðdáendur Pearl Jam elska flestir þessa plötu.
    Hún var tilnefnd til Grammy verðlauna 1996 í flokkunum; Plata ársins og Rokkplata ársins.
    Jagged Little Pill með Alanis Morisette fór heim með verðlaun fyrir plötu ársins, og Rokkplötu ársins líka. Wildflowers með Tom Petty og Heartbrakers og Mirror Ball með Neil Young, þar sem Pearl jam spilar einmitt undir hjá Neil, voru tilnefndar líka í þeim flokki.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með U2.
    Lagalistinn:
    Fræbbblarnir - Bjór
    The Who - Shakin all over
    Fontains DC - Boys in a better land
    Sons - Waiting on my own
    Slade - Gudbuy T?jane
    Kiss - The oath
    Vintage Caravan - Set your sights
    VINUR ÞÁTTARINS
    Mick Ronson og David Bowie - Like a rolling stone
    SÍMATÍMI
    Ozzy Osbourne - Straight to hell
    Pearl Jam - Last exit (plata þáttarins)
    Rammstein - Deutchland (óskalag)
    D-A-D
    2 hr 35 min
  • Heiðar Ingi - Pixes, Wilco og Dire Straits
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Heiðar Ingi Svansson, formaður félags bókaútgefenda, bókaútgefndi og frístundabassaleikari.
    Plata þáttarins er frábær fjórða plata Bandarísku hljómsveitarinnar Wilco, Yankee Hotel Foxtrot, í tilefni af því að Jay Bennet sem var lykilmaður í hljómsveitinni framanaf hefði átt afmæli í dag ef hann hefði lifað. Hann fæddist þennan dag árið 1963 en lést í svefni 24. Maí 2009, 45 ára aða aldri.
    Hljómsveitin kláraði plötuna einhverntíma um árið 2001, en útgáfufyrirtækið Reprise neitaði að gefa hana út. Strákarnir í Wilco voru auðvitað ekki par ánægðir, yfirgáfu Reprise og tóku upptökurnar með sér. Sveitin gerði svo saming við Nonsuch Records sem var dótturfyrirtæki Warner, alveg eins og Reprise, og platan kom út 23. apríl 2002.
    Í millitíðinni, 18. September 2001 ákvað hljómsveitin að streyma plötunni á vefsíðu sinni sem þótti skemmtileg nýbreytni og margir hlustuðu.
    Platan fékk frábæra dóma þegar hún kom út, er af mörgum talin ein besta plata Wilco og ennfremru ein besta plata áratugarins frá 2000 - 2010.
    Platan er líka sem plata Wilco sem hefur selst best, náði 13. Sæti bandaríska vinsældalistans þegar hún kom út.
    Hún er fyrsta plata Wilco sem trommarinn Glenn Kotche spilar á, en hann er enn í hljómsveitinni, frábær trommari. Og Yankee Hotel Foxtrot er síðasta plata Wilco sem Jay Bennet spilar á.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með Dire Straits
    Lagalistinn:
    Grísalappalísa - Týnda rásin
    And you will know us by the trail of dead - Don?t look down
    The Damned - Black is the night
    Maus - Musick
    Wilco - Kamera (plata þáttarins)
    Byrds - Eight miles high
    VINUR ÞÁTTARINS
    Byrds - Tiffany queen
    Boston - Piece of mind
    Weezer - Buddy Holly
    SÍMATÍMI
    Led Zeppelin - Heartbreaker (óskalag)
    Yes - Roundabout
    Whitesnake - Don?t break my heart again (óskalag)
    Metallica - Blackened (óskalag)
    Une Misér - Sermon (óskalag)
    Epica - Our destiny (óskalag)
    Wilco - Heavy metal drummer (plata þáttarins)
    Boston - Smokin' (óskalag)
    GESTUR ÞÁTTARINS - HEIÐAR INGI SVANSSON
    Trúboðarnir - Rétta leið
    HEIÐAR INGI II
    Pixies - Debaser
    HEIÐAR INGI III
    Pixies - Monkey gone to heaven
    A+B
    Dire Strats - Money for nothing (A)
    Dire Straits - Love over gold (B)
    Queen - We will rock you (óskalag)
    2 hr 35 min
  • Katrín Ýr - Skunk Anansie - Tom Petty og fleira flott
    Hulda Geirsdóttir stýrði Fuzzinu í kvöld og lék rokk og ról úr öllum áttum, bæði óskalög hlustenda og annað. Hún heyrði í Franz Gunnarssyni um Black Sabbath Rokkmessu og gestur þáttarins var tónlistarkonan Katrín Ýr sem mætti með sína uppáhalds rokkplötu, Paranoid and sunburnt með Skunk Anansie. Plata þáttarins var svo Full Moon Fever, fyrsta sólóplata Tom Petty frá árinu 1989.
    Lagalisti:
    Brain Police - Mr. Dolly.
    Pearl Jam - Even flow.
    Supergrass - Id like to know.
    Tom Petty - Free fallin (af plötu þáttarins).
    Bubbi og Das Kapital - Blindsker.
    Ozzy Osbourne - Shot in the dark.
    Ham - Ingimar.
    Týr - Ormurinn langi.
    White stripes - The hardest button to button.
    -Franz Gunnarsson á línunni.
    Black Sabbath - Children of the grave.
    Rage against the machine - Killing in the name of.
    Agent Fresco - See hell.
    Guðmundur R. - Nýr dagur.
    Elín Helena - Raunsæ rómantík.
    Tom Petty - I wont back down (af plötu þáttarins).
    Whitesnake - Is this love.
    -GESTUR ÞÁTTARINS - Katrín Ýr
    Katrín Ýr - Heard it all before.
    Uppáhalds rokkplata Katrínar Ýrar - Paranoid and sunburnt með Skunk Anansie.
    Skunk Anansie - Charity
    Skunk Anansie - Weak.
    Alice in Chains - Them bones.
    Une Misére - Sermon.
    KISS - I want you.
    Mosi frændi - Ungfrú Mósambík.
    Tom Petty - Runnin down a dream (af plötu þáttarins).
    Iron Maiden - Iron and steel.
    Meatloaf - Paradise by the dashboard light.
    2 hr 35 min
  • Hannes Buff - S.H. Draumur og Led Zeppelin
    Gestur þáttarins að þessu sinni er hanns Friðbjarnarson trommuleikari hljómsveitarinnar Buff sem fagnar 20 ára afmæli sínu með tónleikum núna um helgina og um næstu helgi.
    Plata þáttarins er Led Zeppelin II, önnur breiðskífa Led Zeppelin sem gefin var út fyrir nákvæmlega hálfri öld, 50 árum og nokkrum dögum. Hún kom út 22. október 1969 í Bandaríkjunum, en 31. Október í Bretlandi. Platan var tekin upp hér og þar, bæði í Bretlandi og í Bandaríkjunum frá janúar og fram í ágúst ?69 meðan sveitin fór fjóra túra um Evrópu og þrjá um Bandaríkin. Það var yfirleitt bara tekið upp eitt lag í einu í hverju stúdíói og lögin voru samin flest í þessum tónleikaferðalögum.
    Jimmy Page gítarleikari er skráður upptökustjóri en upptökumaður var Eddie Kramer sem átti eftir að taka upp margar plötur í kjölfarið, bæði Led Zeppelin plötur og aðrar plötur.
    Það eru engir aðrir en hljómsveitarmeðlimirnir fjórir sem spila á plötunni; Jimmy Page (gítar), Robert Plant (söngur, munnharpa), John Paul Jones (bassi, hljómborð) og John Bonham (trommur).
    6 af 9 lögum plötunnar eru skrifuð á hljómsveitina, hin þrjú eru endurgerðir Chicago blúsar eftir Willie Dixon og Howlin Wolf, (Whole lotta love, The Lemon song og Bring it on home).
    Led Zeppelin II er almennt talin þyngsta plata Led Zeppelin, mesta rokkplatan og þetta er platan sem hefst á Whole Lotta Love sem hefur sað geyma eitt af þekktustu gítar-riffum (frösum) rokksögunnar. Whole Lotta Love var gefið út á smáskífu íu Bandaríkjunum og náði inn á topp 10 þar sem og í mörgum öðrum löndum þar sem lagið kom út á lítilli plötu. En það er gaman að geta þess að Zeppelin gaf aldrei út smáskífu í Bretlandi, stefna hljómsveitarinnar var sú að fólk myndi kaupa stóru plöturnar ef það ætlaði sér á annað borða að hlusta á þessa hljómsveit. Led Zeppelin II náði toppsæti vinsældalistanna í bæði Bretlandi og Bandaríkjunum t.d.
    Sá sem hannaði umslagið; David Juniper, var tilnefndur til Grammy verðlauna fyrir það 1970.
    Platan hefur í dag selst í meira en 12 milljónum eintaka og er í rokksögulegu samhengi ein besta og áhrifamesta plata rokksögunnar.
    Fyrsta plata sveitarinnar; Led Zeppelin, kom út 12. Jánúar sama ár, 1969.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með hljómsveitinni Yes.
    Hér er lagalistinn:
    Dead Sea Apple - Dear God
    Steve Miller Band - Jet airliner
    The Blue Stones - Shakin? off the rust
    The Rolling Stones - Soul Survivor
    Aerosmith - Sweet emotion
    Grísalappalísa - Í fýlu
    Led Zeppelin - Heartbreaker (plata þáttarins)
    Neil Young - Olden days
    J. Geils Band - Wammer
    2 hr 35 min
  • Steinunn Camilla Stones - No Doubt og REO Speedwagon
    Gestur þáttarins að þessu sinni er tónlistarkonan Steinunn Camilla Stones sem í eina tíð söng með Nylon er stýrir í dag umboðsskrifstofunni Iceland sync.
    Plata þáttarins er Hi Infidelity með REO Spweedwagon frá árinu 1980.
    Platan sem er níunda plata sveitarinnar sló í gegn á sínum tíma og náði fyrsta sæti bandaríska vinsældalistans auk þess að vera sú rokkplata sem seldist í flestum eintökum árið eftir, 1981 og seldist á endanum í tífaldri platínu. Hefur í dag selst í meira en 10 milljónum eintaka í bandaríkjunum einum.
    Það voru fjögur lög af plötunni gefin út á smáskífum og þar af náði eitt (Take it on the run) í 5. sæti smáskífulistans í bandaríkjunum og annað, Keep on loving you, fór alla leið á toppinn.
    REO Speedwagon (upphaflega skrifað; R.E.O. Speedwagon) er rokkband frá bænum Champaign í Illinois, stofnað 1967 og er enn starfandi. Bandið öðlaðist vinsældir jafnt og þétt eftir því sem leið á áttunda áratuginn, en svo sló það algjörlega í gegn með Hi Infidelity sem er ein af þessum stóru rokkplötum í sögunni sem seldust gríðarlega en eru ekki hátt skrifaðar af gagnrýnendum yfirleitt.
    Titill plötunnar er orðaleikur þar sem fyrirmyndin er high fidelity (HI-FI) sem þýðir afburða gott hljóð og framan á plötunni sést maður vera að setja plötu á plötuspilara. Infidelity þýðir yfirleitt svik í ástum, framhjáhald þannig að High Infidelity þýðir eflaust mikið af óheiðarleika og svikum.
    Síðasta plata REO Speedwagon er jólaplatan Not so silent night? Christmas with REO Speedwagon og þar flytur sveitin öll helstu jólalögin með sínu nefi.
    Sveitin heitir eftir REO Speed Wagon sem er vörubíll sem kynntur var til sögunnar 1915 og er fyrirrennari nútíma pallbílsins. Hann heitir REO vegna þess að sá sem hannaði hann hét Ransom Eli Olds og á þeim tíma þótti þessi Speedwagon fara ansi hratt.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með sænsku hljómsveitinni The Cardigans.
    Hér er lagalistinn:
    200.000 Naglbítar - Enginn veit enginn sér
    The Subways - Rock?n roll queen
    REo Speedwagon - Don?t let him go (plata þáttarins)
    Fræbbblarnir - Gbgb?s
    PJETUR ST. ARASON Á LÍNUNNI FRÁ NESKAUPSSTAÐ
    DDT Skordýraeitur - Sveinn Andri
    The Enterpreneurs - It strikes again love
    Uriah Heep - Sweet Lorraine
    Pearl Jam - Alive
    Dr. Spock - Skítapakk
    Duran Duran - Planet Earth (óskalag)
    Whitesnake - Still of the night (óskalag)
    The Darkness - Rock?n roll deserves to die
    REO Speedwagon - Tough guys (plata þáttarins)
    Skálmöld - Álfheimur (óskalag)
    AC/DC - Dog eat dog
    STEINUNN CAMILLA STONES GESTUR FÜZZ
    Janis Joplin - Summ
    2 hr 35 min
  • Una Stef - Beatles - Arcade Fire og Tornados
    Gestur þáttarins að þessu sinni er tónlistarkonan Una Stef sem mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína kl. 21.00. Hún er með hljómsveit sem heitir The Beatles.
    Plata þáttarins er Funeral, fyrsta stóra plata kanadísku rokksveitarinnar Arcade Fire sem kom út 14. September 2004, fyrir 15 árum og nokkrum dögum síðan.
    Platan heitir Funeral (jarðarför) vegna þess að liðsmenn sveitarinnar höfðu margir nýlega misst fólk nákomið sér. Einn missti ömmu sína og annar afa, og einn tvær frænkur, allt á stuttum tíma.
    Grunnar plötunnar voru teknir upp á einin viku í ágúst 2003 á hóteli í Montreal í Quebec í kanada sem heitir Hotel2Tango. Hún var svo kláruð eftir áramótin 2003-2004.
    Fimm af lögum plötunnar voru gefin út á smáskífum og þeirra vinsælasta varð Rebellion (Lies) sem náði 19. Sæti breska vinsældalistans.
    Annað lag, Wake up, notaði U2 sem opnunarlag tónleika sinna í Vertigo tónleikaferðinni 2005-2006 og David Bowie söng lagið með sveitinni á New York fashion rocks 2005 en það var í eitt síðasta skiptið sem Bowie kom fram á tónleikum.
    Platan var tilnefnd til Grammy verðlauna í flokknum „Best Alternative Music Album“. Hún fékk frábæra dóma oig sveitin eignaðist hratt og örugglega fjölda aðdáenda um allan heim. Þegar tónlistarárið 2004 var svo gert upp í upphafi árs 2005 lenti Funeral á fjölda lista yfir bestu plöturnar. Eina platan sem lenti oftar á topp 10 á þessum árslistum það árið var Kid A með Radiohead.
    Funeral er á nýjasta lista Rolling Stone yfir bestu plötur allra tíma í sæti 151. Við heyrum nokkur lög Funeral í Füzz í kvöld.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með gömlu ensku hljómsveitinni The Tornados.
    lagaisti þáttarins:
    Fræbbblarnir og Halli Reynis - Fölar rósir
    Slade - Far far away
    Tame Impala - Elephant
    Pink Milk - Drömmens skepp
    Leaves - Catch
    Steppenwolf - Magic carpet ride
    Steppenwolf - Smokey factory blues (vinur þáttarins)
    Arcade Fire - Neighborhood #1 (Tunnels) (plata þáttarins)
    Rebecca Lou - No surrender
    SIMATÍMI
    Sigur Rós - Stormur
    Sabaton - Bismarck (óskalag)
    Skálmöld - Kvaðning (óskalag)
    Tool - Invincible
    Steppenwolf - Born to be wild
    Arcade Fire - Rebellion (Lies) (plata þáttarins)
    GESTUR FUZZ - UNA STEF
    Una Stef band - Rock steady (Live Airwaves)
    UNA II
    The Beatles - Drive my car
    UNA III
    The Beatles - I´m looking through you
    Patti Smith - Dancing barefoot
    King Crimson - Epitaph (óskalag)
    A+B
    The Tornados - Telstar (A)
    The Tornados - Jungle fever (B)
    Foghat - Sweet home Chicago
    Arcade Fire - Wake up (plata þáttarins)
    2 hr 35 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…