Gestur þáttarins að þessu sinni er fjölmiðlamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson sem mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína kl. 21.00.
Plata þáttarins er svo fjórða stúdíóplata Eagles, One of these nights, sem kom út 10. júní 1975 og sat í toppsæti bandaríska vinsældalistans um þessar mundir fyrir öllum þessum árum. Sat á toppnum 5 vikur í röð.
One of these nights er eiginlega platan sem gerði Eagles að stjörnum og þrjú laga plötunnar náðu inn á topp 10 á bandaríska smáskífulistanum. Eitt lagið; Lyin eyes hlaut sveitin Grammy verlaun fyrir, en það fór alla leið á toppinn á vinsældalistanum. Hin tvö eru titillagið og Take it to the limit.
Platan seldist strax í fjóum milljónum eintaka og var tilnefnd til Grammy verðlauna í flokknum plata ársins.
One of These Nights er síðasta plata Eagles sem gítarleikarinn Bernie Leadon er með á. Hann fór með sveitinni í túrinn sem farinn var til að fylgja plötunin eftir en hætti svo og í hans stað kom Joe Walsh sem er enn að spila með Eagles.
Sjöunda lag plötunnar heitir Vision og er eina lag Eagles þar sem sólógítarleikarinn Don Felder syngur aðalrödd, en hans draumur var alltaf að koma fleirum af sínum lögum á framfæri hjá Eagles. Felder og trommarinn syngjandi, Don Henley sömdu lagið saman.
Don Henley er einn eftir af þeim sem voru í Eagles á þessum tíma en hljómsveitin er enn starfandi.
Með One of these nights varð Eagles ein vinsælasta hljómsveit heims. Eagles er enn eitt stærsta tónleikaband heims.
Við heyrum nokkur lög af One of these nights í Füzz í kvöld.
Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með KISS!
Skepna - Við viljum blóð
Jet Black Joe - Big fat stone
Black sabbath - Supernaut
Brainpolice - Rooster booster
The Eagles - One of these nights (plata þáttarins)
Buzzcocks - What do i get
Smashing Pumpkins - Today
The Beatles - Rain
Primordial - To Hell or the hangman
Lights on the Highway - Miles behind us
Small Faces - You better believe it
Bubbi og Dimma - Ég vil ekki stelpu eins og þig
The Struts - In love with a camera
SÍMATÍMI
Led Zeppelin - Immigrant song
Eagles - Hollywood waltz (plata þáttarins)
The Shadows - Apache (óskalag)
Anti Nowhere league - Streets of London (óskalag)
Rage Against The Machine - Maggie´s farm
Tyler Bryant and the Shakedowns - Weak and weepin (óskalag)
Eagles - Visions (plata þáttarins)
Hellacopters - No song unheard
A+B
Kiss - C´mon and love me (A)
Kiss - Getaway (B)
Joyous Wolf - Undesired
JAKOB BJARNAR GESTUR FUZZ
Rolling Stones - Neighbours
JAKOB BJARNAR II
Rolling Stones - Hang fire
JAKOB BJA