Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Þorgils, Janis og ástralska þotan
    Umsjón: Hlynur Ben
    Þorgils Björgvinsson, gítarleikari Sniglabandsins var gestur þáttarins.
    Hann kíkti við með eina sínum eftirlætis plötum með sér.
    Sú plata er ein mest selda rokkplata sögunnar og það var gaman að spjalla við Þorgils um tónlistina, rokkið og plötuna góðu.
    Plata þáttarins nefnist Pearl og er með drottningunni Janis Joplin. Þetta er önnur sólóplata Joplin sem lést, langt fyrir aldur fram, þegar upptökuferlið var bara á lokametrunum.  Pearl kom út nokkrum mánuðum síðar, sló í gegn um víða veröld og Janis var annar listamaðurinn í tónlistarsögunni sem náði á topp vinsældarlista í Bandaríkjunum eftir andlátið.
    A+B - smáskífa þáttarins er frá árinu 2003 og skaut áströlsku rokksveitinni Jet fram á sjónarsviðið með miklum látum.
    Füzzandi fjör og gleði á þessum fína föstudegi!
    LAGALISTINN:
    Fuzz - Jet Black Joe
    Neon knights - Black Sabbath
    Chelsea dagger - The Fratellis
    Move Over - Janis Joplin (plata þáttarins)
    Stórir strákar frá raflost - Egó
    Celebration day - Led Zeppelin
    Glass house - Kaleo
    Mind your manners - Slash ft. Myles Kennedy
    Don't believe a word - Thin Lizzy
    Monkey wrench - Foo Fighters (óskalag)
    A+B:
    A - Are you gonna be my girl - Jet
    B - Last chance - Jet
    Hausverkun - Botnleðja
    Me and Bobby McGee (plata þáttarins)
    Cum on feel the noize - Slade (óskalag)
    Barracuda - Heart (óskalag)
    Another one bites the dust- Queen (óskalag)
    The Trooper - Iron Maiden
    Gooott!!! - Sniglabandið
    Gestur þáttarins - Þorgils Björgvinsson mætti með meistaraverkið Back in Black með AC/DC
    1. Have a drink on me - AC/DC
    2. Shake a leg - AC/DC
    State of love and trust - Pearl Jam
    Mercedez Benz - Janis Joplin (plata þáttarins)
    Hair of the dog - Guns N' Roses
    Bjór - Fræbbblarnir
    Youth gone wild - Skid Row
    Hush - Kula Shaker
    Nearly lost you - Screaming Trees
    She's gone - Steelheart
    2 hr 35 min
  • Gunnþór bönkari - Green Day og Marc Bolan
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Gunnþór Sigurðsson bassaleikari Q4U og safnlimur á íslenska pönksafninu í Bankastræti.
    Gunnþór féll ungur fyrir Slade en mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína um kl. 21.00. Hún er ekki með Slade.
    Plata þáttarins er Dookie með Green Day sem kom út ákkúrat fyrir 25 árum upp á dag.
    Dookie er þriðja plata bandarísku pönk-rokk-sveitarinnar Green Day og kom út 1. Febrúar 1994.
    Dookie er fyrsta platan sem sveitin gerði með upptökustjóranum Rob Cavalo og fyrsta platan sem var gefin út af stóru plötufyrirtæki. Reprise, dótturfyrirtæki Warner gaf plötuna út. Frank Sinatra stofnaði Reprise árið 1960.
    Dookie sló í gegn víða um heim og náði t.d. 2. Sæti Bandaríska vinsældalistans og í dag hafa selst meira en 10 milljónir eintaka í Bandaríkjunum einum.
    Með Dookie varð Green Day ein vinsælasta rokksveit heims og það má segja að í kjlfari hafi orðið til einskonar „önnur pönkbylgja“.
    Það eru nokkuð mörg lög á Dookie sem urðu vinsæl og hafa lifað, lög eins og Longview, When I Come Around, Basket Case, Welcome to Paradise og She.
    Green Day fékk Grammy verðlan fyrir plötuna í flokknum Best Alternative Music Album 1995 og þegar Rolling Stones gerði lista yfir 500 bestu plötur sögunnar fyrir nokkrum árum lenti Dookie í sæti 193.
    Dookie er mest selda plata Green Day og hefur selst í meira en 20 milljónum eintaka um allan heim.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með Marc Bolan.
    Hér er lagalistinn:
    Q4U - Stúlkan í skóginum
    Slade - Mama we´re all crazy now
    The Clash - Complete control
    Weezer - Buddy Holly
    The Beatles - I want to hold your hand
    Blur - Beetlebum
    Oasis - Supersonic
    Manic Street Preachers - Everything must go
    AC/DC - Rock the blues away
    SÍMATÍMI
    Vintage Caravan - Reflections
    Volcanova - Super duper van
    Rush - What are you doing (óskalag)
    Black Sabbath - Sabbath bloody sabbath (óskalag)
    Green Day - Basket cage (Plata þáttarins)
    Sex Pistols - EMI
    Shane McGowan & The Popes - Cracklin Rosie (óskalag)
    Kansas - Carry on my wayward son (óskalag)
    Humble Pie - I don´t need no doctor (óskalag)
    GUNNÞÓR SIGURÐSSON GESTUR ÞÁTTARINS MEÐ UPPÁHALDS ROKKPLÖTUNA SÍNA
    Q4U - Böring
    Gunnþór II
    Joy Division - 24 hours
    Gunnþór III
    Joy Division - Heart and soul
    Green Day - When i come around (Plata þáttarins)
    Joe Cocker - With a little help from my friends (óskalag)
    The Cult - Sweet soul sister
    Deep Purple - Woman from Tokyo
    Kiss - Shock me
    Tom Petty & The Heartbreakers - American girl
    Neil Young - Alabama
    2 hr 35 min
  • Sandra Barilli - Queen og Iron Maiden
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Sandra Barilli sem er meðal annars umboðsmaður Reykjavíkurdætra og tónleikabókari á Húrra
    Sandra mætir með uppáhalds ROKKplötuna klukkan 21.00
    Plata þáttarins er fimmta hljóðversplata hljómsveitarinnar Queen; A Day at the Races sem kom út 10. Desember árið 1976. EMI gaf út í Bretlandi en Elektra records í Ameríku.
    Hún er fyrsta plata Queen sem sveitin tók upp án upptpkustjórans Roy Thomas Baker, en sveitin stjórnaði upptökum plötunnar sjálf. Upptökumaður var Mike Stone.
    Hún var tekin upp þremur hljóðverum; Sarm East í London, The Manor í Oxfords og Wessex Studios í London.
    A Day at the Races er einskonar systurplata fjóðru plötu Queen, A Night at the Opera sem kom út árið áður. Báðar taka plöturnar nöfn sín frá kvikmyndum eftir Marx-bræður og umslögin eru líka svipuð. Á Night at the opera er skjaldarmerki á hvítum grunni, en á A Day at the Races er skjaldarmerki á svörtum fleti. Og músíklega og textalega eru þær báðar úti um allt, allt frá gamaldags dægurlögum upp í harðasta rokk.
    Platan náði toppsæti breska vinsældalistans og þess hollenska og japanska og 5. Sæti náði platan í Ameríku.
    Allar fyrstu 5 plötur Queen að þessari meðtaldri, náðu gullsölu í Ameríku.
    Í kosningu sem BBC efndi til 2006 lenti A Day at the Races í 67. Sæti yfir bestu plötur allra tíma.
    Hér er lagalistinn:
    Maus - Kerfisbundin þrá
    Rainbow - Since you been gone (óskalag)
    Foo Fighters - Big me
    Wilco - Impossible Germany
    The Jam - In the city
    Buzzcocks - Ever fallen in love
    Adam & The Ants - Antmusic
    Pink Floyd - Arnold Layne
    Ovlov - Baby alligator
    SÍMATÍMI
    Rolling Blackouts Coastal Fever - An air conditioned man
    Rolling Stones - Angie (óskalag)
    The Beatles - In my life (óskalag)
    Crazy Elephant - Gimme gimme good lovin (óskalag)
    Tame Impala - Elephant
    Queen - Tie your mother down (plata Þáttarins)
    Thin Lizzy - Massacre (óskalag)
    A+B
    Iron Maiden - The clairvoyant (A)
    Iron Maiden - Prisoner (B)
    Fontains DC - Boys in the better land
    Queen - You and i (plata Þáttarins)
    GESTUR Füzz - SANDRA BARILLI MEÐ VELVET UNDERGROUND
    Led Zeppelin - Black dog
    SANDRA II
    Velvet Underground - Sunday morning
    SANDRA III
    Velvet Underground - Heroin
    Grand Funk Railroad - Stop looking back (óskalag)
    Oasis - All around the world
    Queen - Teo toriatte (plata Þáttarins)
    Neil Young & Promise of the real - Love and only love (live)
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með Iron Maiden.
    2 hr 35 min
  • Vilborg Þórunn - Kansas og Greta Van Fleet
    Umsjón: Hlynur Ben
    Gestur þáttarins er Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir, kennari við Brekkubæjarskóla á Akranesi. En hún hefur líka verið tíður gestur á skjám landsmanna þar sem hún hefur farið á kostum með liði Akraness í Útsvarinu. Hún kíkir í spjall kl. 21:00 og við ætlum að spjalla aðeins um rokkáhugann og uppáhalds rokkplötuna hennar.
    Plata þáttarins er Anthem of the Peaceful Army sem Greta Van Fleet sendi frá sér fyrir aðeins örfáum mánuðum síðan. Sveitin hefur skotist upp á stjörnuhimininn á stuttum tíma og þótt bandið sé nýlegt þá er sándið gamaldags. GVF samanstendur af þremur bræðrum og einum vini þeirra. Þeir eru fæddir á árunum 1996-1999 þó að hljómurinn gefi annað til kynna. Þess má geta að þeir eru tilnefndir til fernra Grammy-verðlauna þetta árið og þá er þessi nýja plata ekki einu sinni tekin með.
    A+B er gömul klassík frá hljómsveitinni Kansas, sem átti að heimsækja okkur fyrir tveimur árum en hættu við á síðustu stundu. Nánar um það í þættinum.
    Þátturinn er líka stútfullur af frábæru rokki úr öllum áttum og ef þú vilt koma þínu uppáhalds rokklagi á lagalista þáttarins þá opnast smá gluggi kl. 20:00 þegar óskalagasíminn (5687123) verður tekinn í gagnið.
    Meira fjör, meira Füzz!
    2 hr 35 min
  • Freyr Eyjólfs - Rainbow og Oasis
    Gestur þáttarins að þessu sinni er fjölmiðla og tónlistarmaðurinn Freyr Eyjólfsson.
    Freyr hefur búið erlendis árum saman, fyrst í Frakklandi en undanfarið í New York. Freyr mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína kl. 21.00
    Plata þáttarins er svo þriðja breiðskífa rokksveitarinnar Rainbow, Long live Rock´n roll sem kom út í apríl árið 1978.
    Þessi plata er síðasta Rainbow platan sem Ronnie James Dio syngur á og sumir vilja meina að hún sé síðasta virkilega góða Rainbow platan.
    Hún var tekin upp í Frakklandi frá sumri og fram í desember 1977.
    Rainbow var starfandi fyrst frá 1975 til 1984, svo aftur frá 1993 til 1997 og svo 2015 til dagsins í dag og þeir eru næstum óteljandi sem hafa spilað með hljómsveitinni, en einu fasti pósturinn er gítarmeistarinn Ritchie Blackmore sem var áður í Deep Purple.
    Upphaflega Rainbow-bandið var eiginlega bandaríska rokkbandið ELF sem Dio leiddi, en þeir sem voru þar voru allir nema Dio reknir eftir fyrstu plötuna Ritchie Blackmore's Rainbow sem kom út 1975.
    Hér er lagalistinn:
    Dr. Spock - Skítapakk
    AC/DC - Problem child
    D´troit - Let there be rock
    Kingsmen - Louie Louie
    The Vintage Caravan - Tune out
    Greta Van Fleet - The cold wind
    Rainbow - Long live Rock´n roll (plata þáttarins)
    White Stripes - Hotel Yorba
    SÍMATÍMI
    Ash - Shining light
    Kingdom Come - Get it on (óskalag)
    A+B
    Oasis - Do you know what i mean
    Oasis - Stay young
    Oasis - Heroes
    Bad News - Bohemian rhapsody (óskalag)
    Jimi Hendrix - Purple haze
    Led Zeppelin - No quarter
    Rainbow - Kill the king (plata þáttarins)
    FREYR EYJÓLFSSON GESTUR ÞÁTTARINS - CLASH - SANDINISTA
    Miðnes - Reykjavík helvíti
    FREYR II
    The Clash - Magnificent seven
    FREYR III
    THe Clash - Somebody got murdered
    Shame - Concrete
    Elvis - Jailhouse rock (óskalag)
    Rainbow - Rainbow eyes (plata þáttarins)
    Queen - Hammer to fall (Live aid)
    2 hr 35 min
  • Egill Rafns - Nine Inch Nails og Thin Lizzy
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Egill Rafnsson nýr trommari Dimmu.
    Birgir Jónsson sem hefur trommað með Dimmu undanfarin ár sagði starfi sínu lausu um skömmu fyrir jól. Egill hefur trommað lengi og víða með hinum og þessum, t.d. hljómsveitinni Sign.
    Plata þáttarins er plata írsku rokksveitarinnar Thin Lizzy, Black Rose: A Rock legend, sem kom út fyrir 40 árum í apríl 1979. Tilefnið er að dagurinn í dag er dánardagur Phil Lynott forsprakka, söngvara og bassaleikara Thin Lizzy. Lungnabólga og hjartabilun dró hann á endanum til dauða. Hann hafði verið í dái í 8 daga eftir að hafa tekið of stóran skammt af eiturlyfjum.
    Black Rose er níunda plata sveitarinnar og ein af þeim betri sem sveitin sendi frá sér og jafnframt ein vinsælasta platan.
    Platan náði öðru sæti breska vinsældalistans þegar hún kom út og hún er fyrsta plata Thin Lizzy sem skartan gítarleikaranum Gary Moore. Hann hafði átt tvö skeið með sveitinni áður. Fyrst 1974 og svo aftur ´77, en hann var í þau skipti ekki með nógu lengi til að vera með á plötu.
    Eitt laga plötunnar heitir Sarah og Phil Lynott samdi það til nýfæddrar dóttur sinnar. Á plötunni Shades of a Blue Orphanage er líka lag sem heitir Sarah, en það fjallar um ömmu Lynotts.
    Thin Lizzy varð til í Dublin á Írlandi fyrir 50 árum, árið 1969 þegar skólafélagarnir, trommarinn Brian Downey og Phil Lynott byrjuðu að spila saman. Sveitin sendi frá sér 12 plötur á ferlinum og þekktustu lög Thin Lizzy eru líklega Jailbreak. The Boys are back in town og Whiskey in the jar, en Metallica hafði þeirra útgáfu sem fyrirmynd þegar þeir endurgerðu lagið fyrir 20 árum, en lagið er írskt þjóðlag.
    Thin Lizzy er enn starfandi og sá sem hefur verið lengst í bandinu er gítarleikarinn Scott Graham sem gekk til liðs við Lizzy 1974.
    Brons stytta af Phil Lynott í fullri stærð var reist í Harry Street í Dublin árið 2005.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og hér er lagalisti kvöldsins:
    Sign - Dancing in
    Thin Lizzy - Do anything you want to (plata þáttarins)
    The Cult - She sells sanctuary
    The Smiths - Bigmouth strikes again
    Wilco - Handshake drugs
    Band of Horses - First song
    Stafrænn Hákon - Rafall
    Ash - Evil Knievel
    The Raconteurs - Sunday driver
    SÍMATÍMI
    The Beatles - Come together
    Hórmónar - Kynsvelt
    Mötley Cure - Kickstart my heart (óskalag)
    Thin Lizzy - Waiting for an alibi (plata þáttarins)
    Vintage Caravan - Set your sights
    Black Sabbath - Children of the grave
    Deep Purple - Speed king
    Led Zeppelin - Stairway to heaven
    RHCP - Under the bridge
    The Hellacopters - Gotta get some action - now!
    EG
    2 hr 35 min
  • Bragi Valdimar - Maiden og Some Girls
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur með meiru.
    Bragi mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína um kl. 21.00. Platan er með Iron Maiden
    Plata þáttarins er plata 14ánda hljóðversplata Rolling Stones ef við miðum við breskar útgáfur. Platan Some Girls sem kom út fyrir 40 árum eða árið 1978.
    Og þennan dag árið 1978 var hún valin plata ársins hjá tímaritinu Rolling Stone.
    Umslag plötunnar er skemmtilegt og sýnir myndir af meðlimum Rolling Stones í dragi, málaðir eins og konur, í bland við myndir af hinum og þessum þekktum konum. En umslagið kom þeim í vandræði vegna þess að Lucille Ball, Farrah Fawcett, Liza Minnelli (fyrir hönd móður sinnar Judy Garland), Raquel Welch, og dánarbú Marilyn Monroe hótuðu lögsókn.
    Platan náði toppsæti Bandaríska vinsældalistans þegar hún kom út og er mest selda plata Rolling Stones í Ameríku þar sem selst hafa meira en 6 milljónir eintaka.
    Platan fékk líka góða dóma og er eina plata Rolling Stones sem hefur verið tilnefnd til Grammy verðlauna í flokknum plata ársins. Margir gagnrýnendur töluðu um að Some Girls væri besta plata Stones síðan Exile on Main street 1972.
    Við heyrum 3 eða jafnvel 4 lög af Some Girls í þættinum.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með The Cure.
    Baggalútur - JólaJólaSveinn
    Rolling Stones - When the whip comes down (plata þáttarins)
    Oasis - Slide away
    Supergrass - Lenny
    Motörhead - Ace of spades
    The Hellacopters - By the grace of God
    Franz Ferdinand - Take me out
    The Yardbirds - For your love
    Backyard Babies - Minus Celsius
    SÍMATÍMI
    CCR - Fortunate son (óskalag)
    Metallica - Whiskey in the jar (óskalag)
    Rolling Stones - Lies (plata þáttarins)
    Bruce Springsteen - Dancing in the dark
    Lights on the Highway - Miles behind us
    Nirvana - Smells like teen spirit (óskalag)
    Pink Floyd - Time
    Rainbow - Street of dreams (óskalag)
    Rolling Stones - Before they make me run (plata þáttarins)
    GESTUR FÜZZ - BRAGI VALDIMAR SKÚLASON
    Baggalútur - Gleðileg jól
    BRAGI VALDIMAR II
    Iron Maiden - The Trooper
    BRAGI VALDIMAR III
    Iron Maiden - Flight of Icarus
    David Bowie - Suffragette City
    Utangarðsmenn - Þór (óskalag)
    Guns´n Roses - Live and let die (óskalag)
    Big Star - September gurls
    Rolling Stones - Respectable (plata þáttarins)
    UFO - Doctor doctor
    2 hr 35 min
  • Fríða Ísberg - AC/DC - jólarokk og Zappa
    Gestur þáttarins að þessu sinni er Fríða Ísberg rithöfundur sem sendi nýverið frá sér bókina Kláði.
    Fríða mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína sem er fyrsta plata AC/DC; High Voltage sem kom út 1976.
    Eitthvað verur boðið uppá af jólaROKKI.
    Plata þáttarins er plata Frank Zappa, Sheik Yerbouti sem kom út árið 1979 en Zappa hefði átt afmæli í dag hefði hann lifað. Hann er fæddur þennan dag árið 1940 og hefði orðið 78 ára hefði hann lifað. Hann lést 4. desember 1933, aðeins 52 ára að aldri af völdum krabbameins í blöðruhálskirtli.
    Platan Sheik Yerbouti kom út í mars 1979 og verður þess vegna 40 ára á næsta ári. Hún er fyrsta platan sem Zappa gaf út sjálfur undir merkjum Zappa Records og er að talsverðu leyti tónleikaplata, samansafn af upptökum af tónleikum sem Zappa spilaði á 1977 og ´78.
    Með Sheik Yerbouti hófst nýr kafli hjá Zappa en hún var vinsælasta platan hans til þess tíma og á plötunni lagði hann meiri áherslu á glettna texta en han hafði gert til þess tíma og Sheik Yerbouti er enn þann dag í dag mest selda plata Frank Zappa, hún hefur selst í meira en tveimur milljónum eintaka.
    Frank Zappa var séní!
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað í síðasta sinn og A+B er svo að þessu sinni með Fræbblunum.
    Hér er lagalistinn:
    Baggalútur - Föndurstund
    Keith Richards - Run run Rudolph
    Led Zeppelin - Black dog
    Loverboy - Working for the weekend
    George Throrogood and the Destroyers - Rock´n roll Christmas
    The Darkness - Christmas time (Don´t let the bells end)
    Frank Zappa - I have been in you (plata þáttarins)
    Unlikely Candidates - Father Christmas
    SÍMATÍMI
    Alabama - Rockin around the christmas tree
    Slade - Merry X-max everybody (óskalag)
    Kúng Fú - Gemmér (óskalag)
    A + B
    Fræbbblarnir - Bjór (A)
    Fræbbblarnir - Critical bullshit (B)
    200.000 Naglbítar - Brjótum það sem brotnar
    Clarence Carter - Back door Santa
    Canned Heat - Christmas blues
    Frank Zappa - Rat Tomago (plata þáttarins)
    GARGFRÉTTIR
    U2 - If God will send his angels (óskalag)
    Steve Morse - Joy to the world
    FRÍÐA ÍSBERG GESTUR Füzz
    Black Sabbath - Hole in the sky
    FRÍÐA ÍSBERG II
    AC/DC - Rock´n roll singer
    FRÍÐA ÍSBERG III
    AC/DC - It´s a long way to the top (If you wanna rock´n roll)
    Meistarar Dauðans - Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá (óskalag)
    The Beatles - Helter skelter (óskalag)
    Frank Zappa - Bobby brown goes down (plata þáttarins)
    Ópal - Leppalúði
    2 hr 35 min
  • Harmonikka og Led Zeppelin
    Gestur þáttarins að þessu sinni er tónlistarkonan Margrét Árnadóttir sem spilar meðal annars á harmonikku með jólabandi Prins Póló.
    Margrét var líka og og er í kvennahljómsveit Bubba Morthens, hljómsveitinni sem gerði með honum plötuna 18 konur. Margrét mætir með uppáhalds ROKKplötuna um klukkan 21.00
    Plata þáttarins er fjórða breiðskífa Led Zeppelin sem ýmist er kölluð IV, fjórða platan, ónefnda platan eða þá Four symbols.
    IV er platan sem hefur að geyma meistaraverkið Stairway to heaven og lög eins og Rock´n Roll, When the levee breaks og Going to California.
    Platan kom út í nóvember 1971 og rokksagan segir að hún sé ein sú allra besta, ein besta plata sögunnar. Hún fær yfirleitt allstaðar þar sem hún er dæmd fullt hús stiga og toppeinkun.
    Þriðja plata Zeppelin, sem heitir einfaldlega III, fékk ekkert sérstaka dóma yfirhöfuð og þess vegna var ákveðið að næsta plata héti ekki neitt, það átti ekkert að standa á henni, ekkert hljómsveitarnafn og ekkert plötuheiti heldur, en þess í stað væru hún kynnt með fjórum mismunandi táknum sem hver og einn liðsmaður myndi velja fyrir sig. Það var gítarleikarinn Jimmy Page sem kom með þessa hugmynd.
    Tímaritið Classic Rock útnefndi plötuna bestu plötu allra tíma árið 2001 og aftur 2006.
    Platan náði í sínum tíma toppsæti breska vinsældalistans og öðru sæti í Bandaríkjunum en hefur í dag selst í 23 milljónum eintaka bara í Bandaríkjunum. Við heyrum 3 og jafnvel 4 lög af plötunni í þættinum.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B er svo að þessu sinni með Fræbblunum.
    2 hr 35 min
  • Eiríkur Örn - Beatles og Þeyr
    Gestur þáttarins að þessu sinni er rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl sem sendi nýlega frá sér skáldsöguna Hans Blær.
    Eiríkur býr á Ísafirði, hlustar á rokk, spilar á gítar og hefur meira að segja smíðað gítar. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna um klukkan 21.00
    Plata þáttarins er önnur breiðskífa Bítlanna, With the Beatles sem kom út 22. nóvember 1963 - fyrir 55 árum, en þennan dag 1963 settist platan í toppsæti breska vinsældalistans og sat á toppnum í 21 viku í röð. Og það sem meira er, hún stal toppsætinu frá fyrstu plötu Bítlanna; Please Please Me sem hafði verið á toppnum frá því hún kom út 30 vikum fyrr.
    Platan hefur að geyma 8 lög eftir Lennon & McCartney, og fyrsta lag George Harrison sem er að finna á Bítlaplötu; lagið Don´t bother me sem er lag númer fjögur á A-hliðinni. Þar fyrir utan eru svo sex önnu rög eftir aðra en hljómsveitina, Motown, R&B og rokk-slagara eftir aðra sem þeir Bítlar héldu uppá.
    Umslag plötunnar sýnir andlit Bítlanna hvít á svörtum grunni og hefur verið mörgum hljómsveitum síðan innblástur fyrir myndatökur. Myndina tók tískuljósmyndari sem heitir Robert Freeman.
    With the Beatles er önnur plata sögunnar til að seljast í milljón eintökum í Bretlandi. Sú fyrsta sem það gerði var tónlistin úr kvikmyndinni South Pacific.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B er svo að þessu sinni með hljómsveitinni Þeyr.
    Lagalisti kvöldsins:
    Dimma - Í auga stormsins
    The White Stripes - Icky thump
    Slaves - Magnolia
    Shame - One rizla
    The Darkness - Christmastime (Don´t let the bells end)
    THe Hellacopters - I´m in the band
    The Beatles - It won´t be long (plata þáttarins)
    The Ramones - Rockaway beach
    Godchilla - Hannigan´s mannequin
    SÍMATÍMI
    Kul - Brop your head
    The Beatles - All my loving (plata þáttarins)
    Rolling Blackouts Coastal Fever
    The Buzzcocks - Ever fallen in love (With someone...) (óskalag)
    Greta Van Fleet - The cold wind
    Pink Street Boys - Blast off (óskalag)
    GARGFRÉTTIR
    Black Sabbath - NIB
    Nightwish - Phantom of the opera (óskalag)
    Bubbi - Þú mátt kalla það ást
    The Beatles - Don´t bother me (plata þáttarins)
    EIRÍKUR ÖRN NORÐDAHL - GESTUR ÞÁTTARINS
    AC/DC - Rising power
    Eiríkur Örn II
    Guns´n Roses - My Michelle
    Eiríkur Örn III
    Guns´n Roses - Nightrain
    Blue October - Hate me (óskalag)
    A+B
    Þeyr - Life transmission (A)
    Þeyr - Heima er best (B)
    Saxon - Strong arm of the law (óskalag)
    The Beatles - PLease mr. Postman (plata þáttarins)
    Deila á Facebook
    2 hr 35 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…