Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Sunna Gunnlaugs - Pretenders, The Who ofl
    Gestur Füzz í kvöld er Sunna Gunnlaugsdóttir Jazzpánisti og annar af tveimur framkvæmdastjórum Jazzhátíðar sem stendur núna yfir. Hún mætir með uppáhalds ROKK-plötuna sína um klukkan 21.00. Platan er með Queen.
    Plata þáttarins er fyrsta plata hljómsveitarinna Pretenders og heitir einmitt: Pretenders!
    Hljómsveitin Pretenders er ensk-amerísk og var stofnuð í Hereford í Englandi í mars 1978. Upphaflega samanstóð bandið af söngkonuninni, lagasmiðnum og gítarleikaranum Chrissie Hynde, James Honeyman-Scott sem spilaði á gítar og hljómborð og söng bakraddir, bassaleikaranum Pete Farndon og trommaranum Martin Chambers.
    Þeir Honeyman-Scott og Farndon eru löngu látnir, létust báðir af völdum ofneyslu eiturlyfja. En Pretenders er ennþá starfandi og Chrissie Hynde heldur merki svetarinnar á lofti með öllum tiltækum ráðum og gerir það vel. Trommarinn Martin Chambers snéri aftur í bandið fyrir nokkrum árum. Sveitin sendi síðast frá sér plötu árið 2016.
    Þessi fyrsta plata Pretenders kom út í janúar 1980 og fór þráðbeint á topp breska vinsældalistans. Hún náði líka inn á topp 10 í Bandaríkjunum þannig að það má segja að platan hafi slegið í gegn, og hún þykir ennþá ansi góð.
    Nokkur lög plötunnar fengu spilun í útvarpi víða og er Stop your sobbing líklega það þekktasta, lag eftir Ray Davies (The Kinks) sem var einmitt sambýlismaður Chrissie Hynde um tíma, en þau eiga saman dótturina Natalie sem er fædd 1983. Chrissie giftsist svo Jim Kerr söngvara Simple Minds 1984. Þau eiga dótturina Yasmin sem er fædd 1985. Þau skildu 1990. Hún giftist svo aftur 1997 og það entist til 2002.
    Óskalagasíminn verður opnaður um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B er svo að þessu sinni með The Who.
    2 hr 37 min
  • Silla, Iron Maiden og Seattle-þrennan
    Umsjón: Hlynur Ben
    Füzzið var hækkað í botn í kvöld!
    Gestur þáttarins var söngkonan magnaða Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, eða Silla eins og hún er jafnan kölluð. Hún kemur frá Sauðárkróki og syngur meðal annars með Contalgen Funeral og var ein af stofnendum Gærunnar, tónlistarhátíðarinnar ástsælu. Silla mætti með uppáhalds rokkplötuna sína og við spjölluðum um tónlistina, lífið og plötuna góðu.
    Platan sem Silla valdi tengist einmitt plötu þáttarins sem er tímamótaverkið Nevermind, önnur breiðskífa Nirvana. Hún olli þvílíkum straumhvörfum og breytti tónlistarlandslaginu nánast á einni nóttu. Við fræðumst aðeins um upptökurnar, lögin og áhrifin sem Kurt Cobain, Krist Novoselic og Dave Grohl höfðu á rokkið.
    A+B - smáskífa þáttarins er af fyrstu plötunni sem Iron Maiden gaf út eftir að söngvarinn Bruce Dickinson gekk til liðs við bandið og markar upphafið á heimsfrægð þessarar ótrúlegu sveitar.
    Ég gróf upp týnda perlu úr gullkistunni sem er í þetta skiptið með öðru mögnuðu Seattle bandi, er nefnist Mother Love Bone.
    Við fórum yfir helstu fréttir vikunar úr rokkheimum og heyrðum heilan helling af rokktónlist úr öllum áttum.
    LAGALISTI:
    Vændiskonan - Hölt Hóra
    Communication breakdown - Led Zeppelin
    Big in Japan - Guano Apes
    Holy roller - Mother Love Bone
    Honky tonk women - The Rolling Stones
    In bloom - Nirvana (plata þáttarins)
    Flókið einfalt - Vínyll
    Nightrain - Guns N' Roses
    You shook me all night long - AC/DC
    Untergang blues - Kólumkilli
    Ég hata þig - Unun
    Another on bites the dust - Queen (óskalag)
    -
    A+B
    A. Run to the hills - Iron Maiden
    B. Total eclipse - Iron Maiden
    -
    Scuttle buttin' Stevie Ray Vaughn
    Tommy's pony - LOK
    Lithium - Nirvana (plata þáttarins)
    Dead ringer for love - Meat Loaf (óskalag)
    Master of puppets - Metallica (óskalag)
    Killer duet - Contalgen Funeral
    -
    Gestur: Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir
    kom með plötuna Waisting Light - Foo Fighters
    Walk - Foo Fighters
    Arlandria - Foo Fighters
    -
    B.Y.O.B. - System Of A Down
    Smells like teen spirit - Nirvana (plata þáttarins)
    Atari - Ensími
    Fortunate son - Creedence Clearwater Revival
    Du Hast - Rammstein
    No particular place to go - Chuck Berry
    In my dreams - Wig Wam
    2 hr 42 min
  • Mr. Big - Slash - Uriah Heep og Snorri Barón
    Umsjón Hlynur Ben
    Gestur þáttarins er hinn eini sanni Snorri Barón Jónson, umboðsmaður íþróttamanna, auglýsingamaður og rokkunnandi.
    Hann mætir að sjálfsögðu með uppáhalds rokkplötuna sína og það er engin smá perla.
    Við fræðumst um Mr. Big sem er stórkostlegt band með dyggan aðdáendahóp en er þó líka eitt af fórnarlömbum eins-smellungs-örlaganna hörmulegu.
    Þrátt fyrir flottan katalók af músík þá eiga þeir eitt lag sem allir þekkja og í flestum tilfellum þekkir almenningur lagið en veit ekkert um flytjandann.
    Í fyrra gáfu þeir út lag sem fjallaði um gullárið mikla er Mr. Big sló í gegn og allt það sem fylgdi í kjölfarið.
    Plata þáttarins í þetta skiptið er Demons and Wizards, fjórða plata Uriah Heep sem kom út á því herrans ári 1972.
    Snillingurinn Ken Hensley fagnar 73 ára afmælinu í dag og hann stóran þátt í gerð Demons and Wizards sem inniheldur meðal annars eitt vinsælasta lag sveitarinnar, Easy Livin'. Ég ætla að fjalla aðeins um Ken sjálfan og að sjálfsögðu um plötuna líka.
    Við heyrum glænýtt efni frá Íslandsvinunum Slash, Myles Kennedy og The Conspirators sem eiga A+B - smáskífu þáttarins.
    Léttar fréttir úr rokkheimum í bland við gamlar góðar sögur úr gullkistunni, óskalögin ykkar og auðvitað heill hellingur af eðal tónlist sem keyrir okkur inn í helgina á réttum nótum.
    Þetta getur ekki klikkað!
    LAGALISTINN:
    Hungur - Skepna
    Cold as ice - Foreigner
    One way or another - Blondie
    1992 - Mr. Big
    To be with you - Mr. Big
    Easy livin' - Uriah Heep (plata þáttarins)
    Einmanna - SSSól
    Dr. Feelgood - Mötley Crüe
    Hush - Kula Shaker
    200.000 naglbítar - 200.000 naglbítar
    Rosalie (Cowgirl's song) - Thin Lizzy
    -
    A+B
    A. Mind your manners - Slash feat. Myles Kennedy & The Conspirators
    B. Driving rain - Slash feat. Myles Kennedy & The Conspirators
    -
    Jón pönkari - Utangarðsmenn
    Bergmál - Dimma
    Machinery - Wulfgang (óskalag)
    All my life - Uriah Heep (plata þáttarins)
    Into the void - Black Sabbath (óskalag)
    My Iron lung - Radiohead (óskalag)
    Blodstone - Judas Priest (óskalag)
    -
    Sun king - The Cult
    Sweet soul sister - The Cult
    -
    Tush - ZZ Top
    The Wizard - Uriah Heep (plata þáttarins)
    Got the life - Korn
    Hey bulldog - The Beatles
    Hardwired - Metallica
    Youth gone wild - Skid Row
    Square hammer - Ghost
    Wanted dead or alive - Bon Jovi
    2 hr 35 min
  • Upprisa AC/DC, glataða Jim Morrison ljóðið, Ingvar Valgeirs og Rush
    Umsjón: Hlynur Ben
    Það verður sneysafullur þáttur í Füzzinu í kvöld!
    Gestur minn er tónlistarmaðurinn og hljóðfærasalinn geðþekki Ingvar Valgeirsson. Ásamt því að vera einn vinsælasti trúbador landsins er hann mikill rokk-spekúlant og þarf því engan að undra að kanadíska tríóið Rush sé honum hugleikið. Ingvar mætir með uppáhalds plötuna sína sem er einmitt gömul perla með þessari mögnuðu sveit.
    Plata þáttarins kallast Waiting for the Sun og er þriðja hljóðversplata The Doors.
    Hún kom út 3. júlí 1968 og það var einmitt á þessum degi, 17. ágúst, sama ár sem skaust í fyrsta sæti Bandaríska plötuvinsældarlistans og þar sat
    hún í heilar 4 vikur. Waiting for the Sun varð fyrsta, og eina plata sveitarinnar til að ná á topp vinsældarlista í heimalandinu og jafnframt var þetta fyrsta breiðskífa The Doors sem náði virkilega að slá í gegn í Bretlandi.
    Sveitin samanstóð af gítarleikaranum Robbie Krieger, trommaranum John Densmore, orgelleikaranum Ray Manzarek og söngvaranum Jim Morrison. Upptökur fyrir plötuna reyndust þeim nokkuð erfiðar því flest allt efnið sem þeir höfðu safnað upp í byrjun ferilsins hafði verið notað á fyrsta tvær plöturnar og sökum vaxandi vinsælda höfðu þeir eytt undanförnum mánuðum í tónleikaferðir, viðtöl, sjónvarpsframkomur og aðrar viðlíka skyldur eftirsóttra hljómsveita.
    Einnig voru þeir orðnir nokkuð þreyttir á fullkomnunaráráttu upptökustjórans Paul Rothchild. Hvert einasta lag var tekið upp 20 sinnum, í það minnsta og alls urðu upptökur af laginu The Unknown Soldier 130 talsins. Jim Morrison var mikið skáld og djúpir, dramatískir og oft á tíðum heimspekilegir textar hans var stór partur af aðdráttarafli The Doors. Upptökur á Waiting for the sun lituðust líka mikið af drykkju Morrison, sem var örlagabytta, og þegar John Densmore fékk nóg og stormaði út úr hljóðverinu ákváðu hinir að fletta í gegnum stílabók sem var full af handskrifuðum ljóðum og textahugmyndum Morrison í von um að finna einhvern gullmola sem ekki hafði verið notaður áður. Það varð þeim til happs og úr varð lagið sem skaut plötunni á toppinn.
    A+B er í þetta skiptið með ofurgrúppunni Chickenfoot sem telur meistara eins og Sammy Hagar (Van Halen, Montrose), Michael Anthony (Van Halen), Íslandsvininn Chad Smith (Red Hot Chili Peppers) og gítargoðið Joe Satriani.
    Við skoðum alls kyns skemmtilegar fréttir úr rokkheimum og þar ber hæst að AC/DC virðist vera að skríða saman á ný og það er stórfregn!
    Auðvitað verða óskalögin á sínum stað og heill hellingur af eðal rokktónlist úr öllum áttum.
    2 hr 37 min
  • Bara örlítið hinsegin Füzz
    Gestur Füzz í kvöld er Sigga Beinteins.
    Já Sigga úr Stjórninni mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína sem er með Uriah Heep, og velur af henni tvö lög sem henn þykja standa uppúr.
    Plata þáttarins er fyrsta plata hljómsveitarinna Queen, heitir Queen og kom út 1973. Þar eru lög eins og Keep yourself alive, Liar og Seven seas of Rhye.
    Þetta er frábær plata sem svetin þurfti talsvert að hafa fyrir að koma í heiminn. Platan var tekin upp í Trident studios í Soho í London á kvöldin og nóttunni aðellega. Þessir fjórir gaurar sem stofnuðu Queen og voru búnir að vera að spila í London og í kring í tvö ár fengu að nota þetta ágæta hljóðver og allar bestu græjurnar sem það hafi uppá að bjóða, þegar „borgandi“ kúnnar voru ekki að nota það. Þeir fengu að vera í hljóðverinu á kvöldin og nóttunni fyrir lítinn pening vegna þess að eigendurnir höfðu trú á þessum ungu mönnum. Queen var rokkhljómsveit fyrst og fremst og undir áhrifum frá helstu progg og metal hljómsveitum þess tíma. Við heyrum amk. Þrú lög af Queen í þættinum.
    Óskalagasíminn verður opnaður um kl. 20 og A+B er svo að þessu sinni með Iron Maiden.
    Hér er lagalisti þáttarins:
    Start - Sekur
    Queen - Keep yourself alive (plata þáttarins)
    White Denim - It might get dark
    Wilco - I´m alway in love
    Supergrass - Caught by the fuzz
    Jet Black Joe - Fuzz
    Hellacopters - By the grace of God
    Queen - Liar (plata þáttarins)
    SÍMATÍMI
    Vicky - String along
    AC/DC - Thunderstruck (óskalag)
    Nasareth - Hair of the dog (óskalag)
    Led Zeppelin - Rock´n Roll (óskalag)
    Apparat Organ Quartet - Cargo frakt
    Spare Snare - We are the snare
    Teenage Fanclub - Start again
    FRANS GUNNARSSON Á LÍNUNNI FRÁ ROKKI Í HAFNARFIRÐI
    Dr. Spock - Elefanto Be
    Vintage Caravan - Set your sights
    Idles - Mother
    SIGGA BEINTEINS GESTUR ÞÁTTARINS MEÐ UPPÁHALDS ROKKPLÖTUNA
    Deep Purple - Woman from Tokyo
    SIGGA BEINTEINS II
    Uriah Heep - Easy livin
    SIGGA BEINTEINS III
    Uriah Heep - Look at yourself
    A+B
    Iron Maiden - Fear of the dark (live) A
    Iron Maiden - bring your daughter to the slaughter (live) B
    Queen - My fairy king (plata þáttarins)
    2 hr 37 min
  • Bubbi og Dimma og Jethro Tull og Guns´n Roses
    Þessir eru í aðaluhlutverkum í Füzz í kvöld.
    Við rifjum upp tónleika Dimmu og Bubba á Bræðslunni 2015, en Bræðslan er á morgun og verður í beinni á Rás 2 eins og venjulega.
    Plata þáttarins er Heavy Horses með Jetrho Tull frá 1978.
    A+B er fyrsta smáskífa Bítlanna í tilefni af því að sá sem trommaði þar, Andy White, hefði orðið 85 ára í dag ef hann hefði lifað.
    Svo heyrum við af tónleikum Guns´n Roses á Laugardalsvelli á þriðjudaginn síðasta. Füzz var á svæðinu að sjálfsögðu og við heyrum í nokkrum tónleikagestum sem gáfu tónleikunum einkun á skalanum einn til tíu.
    Garg fréttirnar frá garg.is eru svo á sínum stað.
    2 hr 37 min
  • Gunni Árna - Cream og Smiths
    Gunnar Árnason hljóðmaður er gestur Fuzz í kvöld og mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína um kl. 21.
    Gunnar er frá Selfossi og steig fyrstu skrefið í hljóðmannabransanum í hinum ýmsu samkomuhúsum landsins þar sem hljómsveitir spiluðu ýmist fyrir dansi eða yfir sitjandi áhorfendum, ss. á böllum og tónleikum.
    Í seinni tíð hefur hann mestmegnis unnið við sjónvarpsefni, auglýsingar og kvikmyndir og stundum er talað um hann sem hljóðkonung barnaefnisins á Íslandi.
    Plata þáttarins er þriðja plata bresku blús-rokk sveitarinnar Cream; Wheels of fire, sem kom út í ágúst 1968.
    Wheels on fire er tvöföld plata (Double album). Fyrri platan er tekin upp í hljóðveri en sú seinni á tónleikum í Winterland ballroom og The Fillmore í San Fransisco.
    Platan náði þriðja sæti breska vinsældalistans og fór alla leið í toppsætið í Ameríku og er fyrsta tvöfalda plata rokksögunnar sem selst í platínu, en platína er t.d. milljón eintök í Ameríku.
    Wheels of fire er í sæti 205 yfir 500 bestu plötur sögunnar á lista sem Rolling Stone setti saman 2012. White room er eitt af lögum Wheels of fire.
    A+B í kvöld er fyrsta smáskífa The Smiths - Hand in glove/Handsome devil
    Óskalagasíminn verður opnaður um kl. 20 (5687-123) og einn heppinn hlustandi nælir sér í 2 miða á tónleika Guns´n Roses á laugardalsvellinum á þriðjudagskvöld.
    Hér er lagalistinn:
    Norður - Allt sem brennur
    Guns´n Roses - Mama kin
    Pixies - Gigantic
    Built to Spill - Living zoo
    Band of Horses - The funeral
    Deep Purple - Wring that neck
    Cream - White room
    SÍMATÍMI - Óskalög
    Led Zeppelin - Stairway to heaven (óskalag fyrir Gísla)
    U2 - Sunday bloody sunday (live) (óskalag fyrir Ómar)
    Vintage Caravan - Reflections
    Guns´n Roses - Shadow of your love
    GUNS´N ROSES SÍMATÍMI - Óli Örn Atlason nældi sér í miða á Guns´n Roses
    Guns´n Roses - It´s so easy
    Screaming Trees - I nearly lost you (óskalag fyrir Óla Örn)
    Breeders - Cannonball
    GESTUR ÞÁTTARINS - GUNNAR ÁRNASON HLJÓÐMAÐUR
    Brunaliðið - Gaukshreiðrið
    GUNNAR ÁRNASON II
    Utangarðsmenn - Sigurður er sjómaður
    GUNNAR ÁRNASON III
    Utangarðsmenn - Hiroshima
    Cream - Deserted cities of the heart
    Uriah Heep - July morning (óskalag fyrir Jónu Guðrúnu)
    King Crimson - 21st century schizoid man ( (óskalag fyrir Svein)
    The War on Drugs - Eyes to the wind
    2 hr 37 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…