Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Margrét Mussila - Yoko - Rolling Stones og U2
    Margrét Júlíana Sigurðardóttir framkvæmdastjóri töluleikafyrirtækisins Rosamosi sem gerir tónlistar-leikina Mussila er gestur Füzz í kvöld og kemur með uppáhalds ROKKplötuna sína kl. 21.
    Margrét er tónlistarkona og söng með Megasi og NýDönsk í eina tíða lög eins og Fegurðardrottningar fiskiðjuversins.
    Plata þáttarins er Black and Blue með Rolling Stones frá 1976. Hún var valin sérstaklega vegna þess að nýji strákurinn í Rolling Stones, Ron Wood á afmæli í dag. Wood er 71 árs í dag og Black and Blue er fyrsta platan þar sem hann er í lykilhlutverki.
    Flosi úr HAM kemur í óvænta heimsókn en HAM er að spila „kveðjutónleika“ á Húrra í kvöld.
    A+B í kvöld er með U2
    Óskalagasíminn verður opnaður um kl. 20 (5687-123)
    Hér er lagalisti kvöldsins:
    Kontinuum - Shivers
    Adam & The Ants - Antmusic
    Ted Nugent - Cat scrats fever
    Rolling Stones - Hand of fate
    Soul Asylum - Runaway train
    FLOSI Í HAM Í HEIMSÓKN
    HAM - Þú lýgur
    Boston - More than a feeling
    SÍMATÍMI
    Ace Frehley - Bronx boy
    Dio - Holy diver (óskalag)
    Deftones - Lifter (óskalag)
    Metallica - The day that never comes
    Them Crooked Vultures - Bandoliers (óskalag)
    Queen - Don´t stop me now (live) (óskalag)
    Ozzy Osbourne - crazy train (óskalag)
    MARGRÉT MUSSILA GESTUR ÞÁTTARINS
    Megas og Nýdönsk -Fegurðardrottningar fiskiðjuversins
    MARGRÉT MUSSILA II
    Yoko Ono - Kiss kiss kiss
    MARGRÉT MUSSILA III
    Yoko Ono - Every man has a woman who loves him
    A+B
    U2 - Another day (A)
    U2 - Twilight (B)
    Judas Priest - Lightning strike
    Rolling Stones - Crazy mama
    Neil Young & Crazy Horse - I wanna walk like a giant
    2 hr 35 min
  • Palli - Sonic Youth og AC/DC
    Páll Ragnar Pálsson tónskáld og gítarleikari Maus er gestur Füzz í kvöld.
    Palli kemur með uppáhalds ROKKplötuna sína sem er með Sonic Youth, en hann hlaut fyrir nokkrum dögum aðalverðlaun á Alþjóðlega tónskáldaþinginu (International Rostrum of Composers) í Búdapest í Ungverjalandi fyrir tónverkið Quake. Verk Páls þótti skara fram úr að mati dómnefndar þingsins. Verðlaunin verða til þess að sinfóníuhljómsveit Franska ríkisútvarpsins pantar nýtt verk hjá honum. Füzz segir bravó!
    Plata þáttarins er fyrsta plata AC/DC sem gefin var út á alþjóðamarkaði og inniheldur lög sem komu út á fyrstu tveimur plötunum sem komu eingöngu út í heimalandinu Ástralíu. Þær plötur heita High Voltage og T.N.T. og komu báðar út 1976. Plata þáttarins kom út árið eftir - 1976.
    Platan seldist vel og henni var vel tekið af almenningi en sumum gagnrýnendum fannst hún það versta sem hafði komið fyrir rokkið. Hann var t.d. á þeirri skoðun gagnrýnandi Rolling Stone, Billy Altman sem sagði að rokkið hefði aldrei verið verr statt en á þessari plötu þessarar áströlsku hljómsveitar þar sem söngvarinn hrækti út úr sér orðunum á afskaplega þreytandi hátt, en það væri líklega stíllinn þegar það eina sem maður hefði áhuga á væri að vera stjarna og leggja nýja konu á hverju kvöldi. Billboard tímaritið sagði að þessi plata væri eins og blanda af Led Zeppelin og Sensational Alex Harvey Band.
    Óskalagasíminn verður opnaður um kl. 20 (5687-123) og Garg-fréttir verða á sínum stað.
    2 hr 35 min
  • Birgitta - Purple og Oasis
    Birgitta Haukdal er gestur þáttarins að þessu sinni. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína um kl. 21 og spilar af henni tvö lög.
    Hljómsveit Birgittu; Írafár verður með tvenna tónleika í Eldborg í júní og ætlar líka að koma fram á einum til tveimur öðrum stórum tónleikum í sumar, en lítið hefur heyrst frá Birgittu og Írafári í nokkuð mörg ár. Hljómsveitin sendi frá sér nýtt lag á dögunum sem talsvert hefur heyrst á Rás 2 og annað lag er væntanegt innan skamms. Birgitta hlustar að sjálfsögðu á ROKK þegar vel liggur á henni og hún segir okkur frá uppáhalds rokkplötunni í kvöld.
    A+B er með Oasis og A-ið er fyrsta smáskifa Oasis; Supersonic sem kom út 1994.
    Plata þáttarins er svo Made in Japan með Deep Purple sem var tekin upp í Osaka og Tokyo í Japan sumarið 1972 og kom út í Bretlandi í desember sama ár. Þesis plata er af mörgum talin ein best heppnaða tónleikaplata allra tíma og á henni er að finna flest þekktustu lög sveitarinnar; Child in time, Smoke on the water, Highway star ofl. Á þessum tíma voru í hljómsveitinni:
    Ritchie Blackmore - gítar
    Ian Gillan - söngur
    Roger Glover - bassi
    Jon Lord - orgel
    Ian Paice - trommur
    Á meðal annara sem koma við sögu í þættinum má nefna: Led Zeppelin, Greta Van Fleet, Ramones, Rory Gallagher, David Bowie, Dropkick Murphys, Brian Fallon, QOTSA, Jimi Hendrix, Rolling Stones, Jerry Lee Lewis, Queen ofl.
    Garg-fréttir verða á sínum sínum stað.
    2 hr 35 min
  • Maiden - Lay Low og Foreigner
    Gestur þáttarins er Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir (Lay Low) en hún er þessa dagana að plokka bassann í Borgarleikhúsinu í sýningunni vinsælu, Rocky Horror.
    Þar er hún í góðum félagsskap, en hinir í húsbandi sýningarinnar eru Guðmundur Pétursson (gítar), Birgir Baldursson (trommur), Steinar Sigurðarson (Saxófónn) og Jón Ólafsson sem spilar á píanó og er hljómsveitarstjóri.
    Lovísa er í aðalhlutverki í einum af fjórum þáttum sem Sjónvarp Símans lét framleiða fyirr sig á dögunum þar sem íslenskar tónlistrakonur eru teknar tali og segja opinskátt frá lífi sínu. Hinar eru Sigríður Thorlacius, Ragga Gísla og Emiliana Torrini. Þættirnir heita Trúnó. Lovísa mætir með uppáhalds rokkplötuna sína um kl. 21.
    A+B þáttarins er með Iron Maiden en Íslenska Iron Maiden heiðursbandið MaidenIced heldur stórtónleika á Hard Rock Cafe í kvöld í tilefni 30 ára afmælis Seventh Son of a Seventh Son plötunar sem verður tekin í heild sinni.
    Einnig verða tekin vel valin lög frá 40 ára ferli Iron Maiden.
    Plata þáttarins er fjórða plata bresk-bandarísku hljómsveitarinnar Foreigner sem heldur tónleika í fyrsta sinn á Íslandi næsta föstudagskvöld (18. maí).
    Platan sem heitir "4" og kom út í júlí 1981 og sló vel í gegn, en hún hefur að geyma lög eins og Urgent, Juke Box hero og Waiting for a girl like you.
    Áður en platan var kláruð voru tveir stofnmeðlimir sveitarinnar reknir úr sveitinni, þeir Ian McDonald sem hafði verið í King Crimson og spilaði á allt mögulegt, og hljómborðsleikarinn Al Greenwood.
    Þar með var Foreigner sem hafði átt talsverðri velengni að fagna til þessa tíma orðið fjögurra manna band skipað þeim Mick Jones gítarleikara sem stofnaði bandi, söngvaranum frábæra Lou Gramm, trommaranum Dennis Elliot og bassaleikaranum Rick Wills.
    Thomas Dolby spilar á hljómborð og syntha á plötunni og Junior Walker á saxófón. Hann á t.d. saxófónsólóið í laginu Urgent sem er alveg frábært.
    Platan sló algjörlega í gegn í Ameríku þar sem hún náði toppsæti vinsældalistans og sat þar í 10 vikur og hún seldist líka vel í Bretlandi og Íslandi
    2 hr 37 min
  • Ingó - Derek Smalls og Green Day
    Gestur Füzz í kvöld er Ingólfur Geirdal töframaður og gítarleikari Dimmu.
    Ingó eins og hann er kallaður fagnar 50 ára afmæli sínu eftir nokra daga og heldur upp á það með því að spila með Dimmu á Hard Rock Café á morgun (laugardaginn 5. maí) og þar verður sérstakur gestur Dennis Dunaway, upprunalegur bassaleikari og lagahöfundur Alice Cooper bandsins. Dennis kemur við sögu á nánast öllum bestu plötum Alice Cooper eins og Love it to death, Killer, School´s Out og Billion Dollar Babies, sem og þeirrri nýjustu; Paranormal. Dennis var vígður inn í Rock´n´Roll Hall of Fame árið 2011 ásamt upprunalega Alice Cooper bandinu og var með Cooper á sögufrægri tónleikaferð í fyrra, þar sem gamla hljómsveitin kom saman. Dimmumenn ætla að taka nokkur klassísk Cooper lög með Dennis á Hard Rock Café á morgun. Ingó mætir með uppáhads ROKKplötuna sína í Fuzz kl. 21. Það má gera ráð fyrir því að hún sé með Alice Cooper.
    A+B þáttarins er með Green Day
    Plata þáttarins er svo splunkuný sólóplata Derek Smalls bassaleikara Spinal Tap sem margir muna eftir úr kvikmyndinni This is Spinal Tap. Derek ólst upp í Nilford-on-Null í West-Midlands á Englandi þar sem faðir hans, Donald Duff Smalls rak síma-þrifa-fyrirtækið Sani-Fone. Derek gekk til liðs við Spinal Tap árið 1967 þegar fyrirrennari hans - Ronnie Pudding (búðingur) hætti. Derek valdi 75 ára afmælsdaginn sem til að gefa út þessa fyrstu sólóplötu sína sem heitir Smalls Change (Meditations upon ageing). Platan hefst á Openture þar sem Derek segir- Aldur er bara tala. Tala er bara orð, og orð er bara einhver hlutur.
    Derek Smalls á marga góða vini í bransanum og þeir eru ýmsir í gestahlutverkum á plötunni hans, en það má nefna Donald Fagen, Rick Wakeman, Paul Shaffer, Richard Thompson, David Crosby, Taylor Hawkins úr Foo Fighters, Chad Smith úr Red Hot Chili Peppers, Joe Satriani og Jeff „Skunk“ Baxter.
    Við heyrum þrjú lög af þessari nýju plötu með Derek Smalls í þættinum í kvöld.
    Óskalagasíminn verður opnaður um kl. 20 og Garg-fréttir verða á sínum sínum stað.
    2 hr 37 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…