Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • Lögreglustjórinn og Stones, Ace og Guns
    Gestur Füzz í kvöld er Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri á Suðurnesjum
    Ólafur hefur haft í nógu að snúast undanfarið og þurft að svara spurningum fréttamanna varðandi fangann sem strauk af Sogni á dögunum og tók sér far með flugvél til útlanda. Við ætlum lítð að ræða það mál við lögrelgustjórann í kvöld en tala þeim mun meira um músík, en Ólafur er mikill tónlistaráhugamaður og mun meiri en flestir gera sér grein fyrir. Stór hluti af frítíma hans fer í að fara á tónleika hér og þar um heiminn. Ólafur hefur til að mynda farið sex sinnum á Glastonbury-hátíðina á Englandi. Uppáhalds hljómsveitin hans síðan hann var ungur maður er Rolling Stones og það upplýsist hér að uppáhalds ROKKplatan hans er með Rolling Stones. Hann spilar tvö lög af henni í þættinum í kvöld.
    A+B þáttarins er með Guns´n Roses - Estranged/The Garden frá 1994.
    Plata þáttarins er sólóplata Ace Frehley úr Kiss sem kom út árið 1978. Casablanca útgáfan gaf út sólóplötur með öllum fjórum liðsmönnum Kiss á sama tíma, 18. September 1978. Plöturnar mynda einskonar heild, umslögin eru öll eins og listilega gerð, en á hverri þeirra er portrettmynd af þeim Kiss-manni sem á viðkomandi plötu. Plata gítarleikarans Ace sem á einmitt afmæli í dag (67 ára) fékk bestu dómana og hefur selst best af þessum plötum. Eitt lag af þessari plötu varð dálítið vinsælt, lag sem heitir New York Groove og Russ Ballard samdi og kom fyrst út með breskri glam-rokk hljómsveit sem hét Hello árið 1975. Það vakti athygli með Hello og svo aftur þegar Ace gaf það út 1978. Við heyrum amk. 3 lög af sólóplötu Ace Frehley í Füzz
    Óskalagasíminn verður opnaður uppúr klukkan 8 - 5687-123
    2 hr 37 min
  • Aerosmith - Freddie og Matti Matt!
    Það er geggjaður Füzz þáttur á boðstólnum í kvöld!
    Gestur þáttarins er Matthías Matthíasson, eða Matti Matt eins og hann er jafnan kallaður. Hann er einn af ástsælustu söngvurum þjóðarinnar og hefur komið víða við á glæsilegum ferli sínum. Matti er mikill rokkáhugamaður og fengið góða útrás fyrir þá ástríðu með hljómsveitinni Dúndurfréttum sem sérhæfir sig í að spila klassískt rokk. Þessa dagana er hann að leggja þó lokahönd á nýja plötu og við munum frumflytja lag af henni. Auðvitað tekur hann líka með sér sína uppáhalds rokkplötu sem er meistaraverk frá árinu 1982.
    A+B þáttarins er með hljómsveitinni Queen. Það var einmitt á þessum degi árið 1992 sem að risatónleikar til heiðurs söngvaranum, Freddie Mercury, fóru fram á Wembley. Þar komu fram margar stærstu stjörnur tónlistarsögunnar fyrir framan 72.000 tónleikagesti ásamt því að herlegheitunum var sjónvarpað í beinni útsendingu um allan heim.
    Plata þáttarins er ellefta breiðskífa Aerosmith, Get a Grip, sem kom út þennan dag árið 1993 og er til dagsins í dag þeirra mest selda plata.
    Eins og alltaf er líka stútfullur þáttur af eðal rokki og þið getið valið ykkar uppáhalds lag þegar við opnum fyrir óskalagasímann.
    Hér er lagalistinn:
    Ég ímeilaðig - Maus
    The Majesty of Rock - Spinal Tap
    Du Hast - Rammstein
    Eat the Rich - Aerosmith (plata þáttarins - Get a Grip)
    I Fought the Law - Clash
    No Particular Place to Go - Chuck Berry
    Hard Rock Halelujah - Lordi
    Hótel Borg - GCD
    Celebrity Skin - Hole
    Immigrant Song - Led Zeppelin
    Breaking the Law - Judas Priest
    Open Your Eyes - Guano Apes
    -A+B smáskífa þáttarins
    We Are the Champions - Queen
    We Will Rock You - Queen
    The Long Face - Mínus
    Zombie - The Cranberries
    Cryin' - Aerosmith (plata þáttarins - Get a Grip)
    My Generation - The WHo (óskalag)
    Carolus Rex - Sabbaton (óskalag)
    It's a Long Way to the Top (if you wanna rock and roll) - AC/DC (óskalag)
    Partýbær - HAM
    Monster - Matti Matt
    Matti Matt var gestur þáttarins og kom með plötuna Number of the Beast með Iron Maiden
    Run to the Hills - Dúndurfréttir
    Children of the
    2 hr 37 min
  • Metallica - Napster - Bítlarnir og Haraldur V.
    Það er glæsilegur Füzz þáttur á dagskrá í kvöld.
    Tónlistarmaðurinn, tónskáldið og útsetjarinn Haraldur V. Sveinbjörnsson er gestur þáttarins að þessu sinni. Hann vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Dead Sea Apple en er hvað þekktastur undir listamannsnafninu Red Barnett. Hann spilar vel á nánast öll hljóðfæri og er að auki tónskáld og útsetjari sem komið hefur víða við á ferlinum. Meðal annars útsetti hann síðustu plötu Dimmu ásamt þeim, sá um strengjaútsetningar fyrir verðlaunaplötuna Á plánetunni jörð með Nýdönsk og er þessa dagana í annað sinn að setja saman útsetningar fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir tónleika hennar og Skálmaldar í ágúst. Halli ætlar að koma með góða rokkplötu sem hafði mikil áhrif á hann og er ein af hans uppáhalds.
    Plata þáttarins er meistaraverkið Master of Puppets frá árinu 1986. En það var einmitt á þessum degi árið 2000 sem Metallica lagði fram málsókn á hendur skráardeiliforritinu Napster fyrir brot á höfundarrétti. Það endaði á að verða ein sögulegasta deila tónlistarbransans gegn þessari nýju tækni og þeirri staðreynd að almenningur hóf að stela tónlist.
    A+B þáttarins er frá árinu 1965 og hljómsveitin engin önnur en The Beatles. Þrátt fyrir að lagið á A-hliðinni sé hressandi rokklag sem gladdi ungt fólk út um allan heim þá sáu fæstir að John Lennon var í raun að öskra á hjálp í alvöru.
    Allt þetta og fullt af frábæru rokki til að keyra helgina í gang!
    Svo vil ég heyra í ykkur þegar við opnum fyrir óskalagasímann.
    Hvaða rokklag gleður þig á flottu föstudagskvöldi?
    2 hr 37 min
  • Addi Gísla - Pixies og Stóns
    Það er stútfullur þáttur af góðgæti í kvöld!
    Arnar Þór Gíslason, Addi, kíkir í heimsókn með rokkplötu sem er honum innilega kær. Hann ætlar að fagna fertugsafmælinu sínu með risa styrktartónleikum í Bæjarbíói annað kvöld. Þar stíga á stokk margar hljómsveitir sem hann hefur spilað með í gegnum tíðina og það er ekkert smáræði. Dr. Spock, Ensími, Mugison, Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinna, Pollapönk og margar fleiri, svo það verður fróðlegt að spjalla við kauða.
    Plata þáttarins er með bandarísku sveitinni Pixies en Charles Michael Kittridge Thompson IV, eða Frank Black eins og hann kallast dags daglega, söngvari Pixies á afmæli í dag. Dolittle er önnur stóra plata sveitarinnar og jók vinsældir hennar gríðarlega á sínum tíma.
    A+B er í höndum unglingahljómsveitarinnar The Rolling Stones í þetta skiptið. En það var þennan dag árið 1971 sem þeir stofnuðu eigið útgáfufyrirtæki í samstarfi við Atlantic Records. Stuttu síðar kom Sticky Fingers út en það var fyrsta platan sem þeir gáfu út á eigin vegum. Þarna sást hin víðfræga Stones tunga í fyrsta skipti en myndin var fyrst ætluð sem lógó fyrir útgáfuna og festist svo við bandið sjálft. Smáskífa þáttarins var sú fyrsta sem Stones gáfu út til að kynna plötuna.
    Svo er fastir liðir eins og venjulega. Gleði, óskalög og eðal rokk & ról.
    Umsjónarmaður að þessu sinni er Hlynur Ben-
    Allir þættirnir sem búið er að útvarpa eru komnir í Hlaðvarp RÚV og í Podcastið á I-tunes þar sem hægt er að gerast áskrifandi að þáttunum.
    2 hr 37 min
  • Elvis - Erna Hrönn - Damon og djammið
    Það verður mikið um dýrðir í Füzz-inu í kvöld!
    Erna Hrönn Ólafsdóttir mætir með sína uppáhalds rokkplötu og segir okkur aðeins frá henni. Erna er ein vinsælasta söng- og útvarpskona landsins en það eru færri sem vita að hún er mikill rokkari og það verður fróðlegt að kynnast þeirri hlið á þessari gleðisprengju.
    Plata þáttarins er fyrsta breiðskífa Elvis Presley sem kom út þennan dag árið 1956. Það má með sanni segja að platan, sem kallast einfaldlega Elvis Presley, hafi breytt tónlistarsögunni því þetta var fyrsta rokkplatan til að verma efsta sæti vinsældarlista nokkurstaðar í heiminum og sat hún í heilar tíu vikur á toppi Billboard Top Pop Albums listans. Einnig er þetta fyrsta rokkplatan sem var seld í milljónatali og náði því til eyrna unglinga um allan heim sem sumir áttu eftir að stofna eigin hljómsveitir og breyta tónlistarsögunni líka.
    A+B í þetta skiptið er með bresku sveitinni Blur enda fagnar forsprakkinn Damon Albarn fimmtugsafmæli sínu í dag. Hann er nú okkur Íslendingum vel kunnur, hefur eytt hér löngum stundum í gegnum tíðina og unnið með íslenskum listamönnum. Það líka sterk Íslands-tenging við sjálfa A-hliðina svo það verður spennandi að heyra þegar smáskífan rúllar í gegn í kvöld.
    Svo er auðvitað fullt af skemmtilegum rokklögum úr öllum áttum sem eru eins misjöfn og þau eru mörg. En eiga það þó öll sameiginlegt að vera vel til þess fallin að koma fólki til stuðsins á föstudagskvöldi og óskalögin að sjálfsögðu.
    Umsjónarmaður að þessu sinni er Hlynur Ben-
    Allir þættirnir sem búið er að útvarpa eru komnir í Hlaðvarp RÚV og í Podcastið á I-tunes þar sem hægt er að gerast áskrifandi að þáttunum.
    Hér er lagalistinn:
    Ég heyri raddir - Todmobile
    God gave me everything - Mick Jagger & Lenny Kravitz
    I only lie when I love you - Royal Blood
    Desire - U2
    Big in Japan - Guano Apes
    Blue suade shoes - Elvis Presley (plata þáttarins)
    His lyrics are disastrous - Jakobínarína
    Can't deny me - Pearl Jam
    Bjór - Fræbbblarnir
    Killing in the name - Rage Against the Machine
    Í kirkju - Fryðryk
    -
    2 hr 37 min
  • Hlynur Ben mætir Füzzandi til leiks
    Gestur Füzz í kvöld er Guðmundur Jóhannesson verkefnastjóri í Parlogis. Hann kemur að sjálfsögðu með uppáhalds rokkplötuna sína sem er meistarastykki úr smiðju Deep Purple.
    Guðmundur var í námi í New York, Bandaríkjunum, á sínum tíma. Þar fór hann á tónleika með mörgum stærstu rokksveitum sögunnar svo það verður stórskemmtilegt að spjalla við hann um þessa tónlist sem hefur verið honum hugleikin frá fyrstu tíð.
    Þátturinn í kvöld verður sérstakur að því leiti að Hlynur Ben, stjórnandi tónlistarmiðilsins GARG.is mun leysa Ólaf Pál af og keyrir ykkur inn í helgina með eðal rokki og róli.
    Plata þáttarins er hin eina og sanna Back in Black með áströlsku rokkrisunum í AC/DC. Það var einmitt á þessum degi árið 1999 sem að RIAA, samtök hljómplötuframleiðenda í Ameríku, hóf að veita tónlistarmönnum viðurkenninguna RIAA Diamond Certification fyrir plötur seldar í 10 milljón eintökum eða meira. Back in Black hefur selst í um 50 milljón eintökum frá því að hún kom út 25.júlí 1980 og var það því eðlilegt að Angus Young og félagar fengu Demanta viðurkenninguna góðu.
    A+B skífan er frá árinu 1973 og tengist afmælisbarninu Michael Bruce. Hann er hvað þekktastur fyrir gítarleik í Alice Cooper þegar það var hljómsveit. Það var ekki fyrr en bandið hætti að söngvarinn Vince Furnier tók hljómsveitarnafnið og gerði að sínu eigin. Bruce þessi samdi nokkur frægustu lög Alice Cooper og er þar að auki mikill Íslandsvinur. Hann hefur til að mynda haldið tónleika og tekið upp lög með Dimmu bræðrunum Silla og Ingó Geirdal.
    Svo það er stútfullur þáttur af fjöri og topp tónlist. Gamalt og gott í bland við nýjasta nýtt. Góður gestur og að sjálfsögðu óskalögin ykkar.
    Heyrumst í frússandi Füzz fíling á Rás 2 í kvöld.
    2 hr 37 min
  • Stebbi - Whitesnake - Velvet og ZZ Top
    Gestur Fuzz í kvöld er Stefán Hilmarsson úr Sálinni Hans Jóns Míns, en Sálin fagnar 30 ára starfsafmæli með afmælisBALLI í valsheimilinu annað kvöld.
    Það er rokktaug í Stebba, við heyrum hann syngja Led Zeppelin Rock´n roll með Sálinni í Njálsbúð fyrir 25 árum siðan og hann mætir með uppáhalds rokkplötuna sína um kl. 21. Hún er með Whitesnake.
    Plata þáttarins er svo platan Velvet Underground & Nico með Velvet Underground frá árinu 1967, en John Cale sem spilaði á fiðlu og bassa og ýmislegt fleira með Velvet Underground á afmæli í dag. Hann er 75 ára í dag.
    Ég ætla svo að spila A+B með ZZ Top frá þeim tíma þegar ZZ Top var ný og sjóðheit hjómsveit frá Texas.
    2 hr 35 min
  • Gítarhetjur eru gott fólk
    Gestur þáttarins er gítarhetjan Þráinn Árni Baldvinsson úr Skálmöld, MEIK og fleiri sveitum.
    Gestur þáttarins er Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari og gítarHETJA úr Skálmöld, MEIK og fleiri sveitum. Þráinn er alinn upp í sveit á tónlist Iron Maiden og Kiss, en líka á söltuðu hesta og Selkjöti. Þráinn er að spila KISS með MEIK á Græna hattinum á Akureyri í kvöld en mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína kl. 21.00. Fuzz reiknar með að það verði plata með KISS.
    Plata þáttarins er með annari gítarhetju - blinda, kanadíska gítarleikaranum Jeff Healy sem lést akkúrat upp á dag fyrir áratug úr krabbameini.
    Healy var ekki nema 8 mánaða gamall þegar augu hans voru fjarlægð með skurðaðgerð vegna þess að hann var með sjaldgæfa tegund krabbameins í þeim báðum. Hann lifði síðan laus við krabbamein í 38 ár en þá greindist hann með þetta sama sjaldgæfa krabbamein í báðum fótum. Hann gekkst undir skurðaðgerð en meinið hafði dreift sér í lungu og 2. mars 2008 felldi krabbinn hann.
    Healy var afburða gítarleikari og var með sérstakan stíl, spilaði á hann liggjandi í kjöltu sinni. Hann gaf út 8 hljóðversplötur meðan hann lifði og svo hafa líka verið gefnar út fjölmargar plötur eftir að hann lést, allskyns tónleikaplötur og slíkt.
    Fyrsta platan hans er sú þekktasta. Hún heitir See the light og kom út í september 1988 fyrir 30 árum. Hún er eina platan hans sem hefur selst í platínu í Ameríku og hún var tilnefnd til Kanadísku Juno tónlistarverðlaunanna árið 1990 í aðal flokknum; Plata ársins.
    Benmont Tench hljómborðsleikari Tom Petty & Heartbrakers spilar á plötunni og Jimmy Iovine stjórnaði upptökum. See the light er plata þáttarins að þessu sinni.
    Jeff Healey var líka útvarpsmaður, stýrði sínum eigin útvarpsþætti árum saman auk þess að spila með mörgum helstu stjörnum heims eins og Stevie Ray Vaughan, Buddy Guy, B.B. King, ZZ Top, Ian Gillan og Eric Clapton.
    Garg-fréttirnar frá garg.is verða á sínum stað og svo fáum við A+B með Oasis
    2 hr 37 min
  • Erna Eistnaflug - Guns og Kiss
    Gestur þáttarins er Erna Björk Baldursdóttir frá Eistnaflugi, en Erna er ein af konunum á bakviðrokkhátíðina Eistnaflug í Neskaupsstað.
    Erna sér meðal annars um að bóka öll erlendu böndin sem spila á hátíðinni. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína klukkan 21.00. Platan er með Guns´n Roses.
    Plata þáttarins er svo Rock and Roll Over með Kiss frá 1976. Rock and Roll Over er fimmta plata Kiss. Hún var tekin upp í The Star Theatre í New York í þeim tilgangi að fá gott trommusánd, en trommurnar voru teknar upp á klósetti í lekhúsinu og var í mynd-sambandi við hljómsveitina.
    Trommarinn Peter Criss syngur tvö lög á plötunni, Baby Driver og Hard Luck Woman. Paul Stanely sem samdi Hard Luck Woman vildi upphaflega koma því lagi til Rod Stewart en það var svo Gene Simmons bassaleikari Kiss sem krafðist þess að Peter syngi það. Lagið gekk nokkuð vel og náði inn á topp 20 í Ameríku.
    Á plötunni er annað lag sem Kiss hefur spilað á næstum hverjum einustu tónleikum alla tíð, en það er lagið Calling Dr. Love sem Gene syngur.
    Umslag plötunnar er ótrúlega flott og skemmtilegt, en það hannaði og teiknaði Michael nokkur Doret sem hannaði líka umslag plötunnar Sonic Boom fyrir Kiss árið 2009. Það er nú ekki alveg jafn flott finnst gömlum Kiss-aðdáendum.
    Upptökustjóri plötunnar var Eddie Kramer sem stjórnaði líka upptökum á Kiss-plötunum Alive!, Love Gun, Alive II og Alive III.
    Garg-fréttirnar frá garg.is verða á sínum stað og svo fáum við A+B með Bily Idol frá 1982, en Bily Idol kemur á Secret Solstice eins og Slayer t.d.
    Hér er lagalistinn:
    Fræbbblarnir - CBGB´s
    Mammút - Breath into me
    Johnny Winter - Good morning little schoolgirl
    Kiss - I want you
    Beck, Bogart & Appice - Superstition
    Albert Hammond jr. - Far away truths
    The Cult - Lil devil
    Whitesnake - Don´t break my heart again
    Manic Street Preachers - Distant colours
    SÍMATÍMI
    Metallica - Holier than thou
    Disturbed - Land of confusion (óskalag fyrir Svein)
    Alice Cooper - Posion (óskalag fyrir Brynjar og Önnu Rakel)
    Iron Maiden - Run to the hills (óskalag fyrir Arnþór
    2 hr 35 min
  • Ten Years After og fleira Füzz
    Þorsteinn G. Gunnarsson mætir með uppáhalds ROKKplötuna, A+B með Stereophonics, GARG-fréttir og plata þáttarins með Dr. Spock.
    Gestur þáttarins er Þorsteinn G. Gunnarsson sem margir hlustendur Rásar 2 kannast við frá gamalli tíð en Steini eins og hann er kallaður var um árabil í áhöfn Dægurmálaútvarps Rásar 2. Þar var hann með Sigurði G. Tómassyni, Önnu Kristine Magnúsdóttur, Leifi Haukssyni, Kristjáni Þorvaldssyni ofl.
    Steini var fjölmiðlafulltrúi landsbjargar þar til núna nýlega, hann er umboðsmaður Björns Thoroddsen og kynningarfulltrúi Blúshátíðar í Reykjavík. Steini heimsækir Füzz með uppáhalds ROKKplötuna sína um kl. 21.00, hún er með Ten Years After.
    Plata þáttarins er svo nýja Dr. Spock platan sem heitir Leður og var plata vikunnar á Rás 2 núna í vikunni. Dr. Spock er með útgáfutónleika á Húrra í kvöld og kemur fram hjá Gísla Marteini í kvöld.
    2 hr 37 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…