Füzz

Füzz

By RÚVMusic
Download on the App Store

Füzz episodes

  • The Who - Þrumuvagninn ofl.
    Plata þáttarins er plata the The Who - Who´s next frá árinu 1971.
    Who´s next er fimmta stúdíóplata The Who og hefur að geyma lög sem gítarleikari sveitarinnar, Pete Townshend samdi fyrir einskonar multi-media rock óperu sem hann náði ekki að klára á sínum tíma eins og hann vildi. Fólkið í kringum hann og sér í lagi umboðsmaður The Who, Kit Lambert, skildi ekki alveg hvað hann var að reyna að gera og á endanum gafst hann upp á verkefninu sem hann kallaði „Lifehouse“, og leyfði söngvaranum vini sínum, Roger Daltrey að velja lög á úr óperunni, á plötuna sem fékk nafnið Who´s Next.
    Plötuna hljóðritaði sveitin með aðstoð upptökustjórans Glyn Johns. Það var byrjað á laginu Won´t get fooled again sem hefur alla tíð átt fast sæti á tónleikaprógrammi sveitarinnar. Það lag var tekið upp í upptökubíl Rolling Stones en restin af plötunni var tekin upp í Olympic hljóðverinu í London.
    Fyrir utan það að platan er frábær þá er hún líka frumkvöðlaplata en frumstæðir syntheseiserar leika stóru rullu inni í mögnuðu rokkinu, og Pete Townshend sem stjórnaði þeim gerði það mjög skemmtilega, sér í lagi í lögunum Won´t get fooled again og Baba O´Rilsey sem bæði voru gefin út á smáskífum.
    Platan sló umsvifalaust í gegn þegar hún kom út í ágúst 1971 og er af mörgum talin ein besta rokkplata allra tíma. Hún hefur verið endurútgefin nokkrum sinnum og stundum með fleiri lögum sem áttu að vera í Lifehouse rokkóperunni.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B er svo að þessu sinni með hljómsveitinni Þrumuvagninn frá árinu 1981.
    Lagalisti kvöldsins:
    SH Draumur - Grænir frostpinnar
    Primal Scream - Grænir frostpinnar
    Balthazar - Entertainment
    The Kooks - Pamela
    The Who - Baba O´Riley (plata þáttarins)
    R.E.M. - Supernatural superserious
    Skálmöld - Sverðið
    The Coral - 1000 years
    SÍMATÍMI
    The Clash - White man in Hammersmith palais
    Steelheart - She´s gone (óskalag)
    Elton John - Tiny dancer (óskalag)
    Guns´n Roses - Welcome to the jungle (óskalag)
    Twisted sister - Let it snow - let it snow (óskalag)
    The Vaccines - All my friends are falling in love
    GARG-FRÉTTIR
    Oasis - Some might say
    Powerwolf - Demons are a girls best friend (óskalag)
    Wanda Jackson - Shakin all over
    The Who - Won´t get fooled again (plata þáttarins)
    Volcanova - Super duper van
    A+B
    Þrumuvagninnn - Syngdu með (A)
    Þrumuvagninnn - Meira meira (B)
    Þrumuvagninnn - Stórborgarblús (C)
    Throwing Muses - Mexican women (óskalag)
    Kælan mikla - Líflát
    Megadeth - Hangar 18 (óskalag)
    Guns´n Roses - Knockin on heavens door (óskalag)
    The Who - Behin
    2 hr 35 min
  • Stefán Máni - Chinese Democrasy og Katla
    Gestur Füzz í kvöld er rithöfundurinn Stefán Máni sem var að senda frá skáldsöguna Krýsuvík sem er hans tuttugasta bók sem gefin er út.
    Hann mætir með uppáhalds rokkplötuna sína klukkan 21.00
    Plata þáttarins er Chinese Democracy sem er sjötta og nýjasta stúdíóplata Guns N' Roses, en platan kom út 23. Nóvember 2008, nákvæmlega fyrir áratug upp á dag. Og þegar hún kom út var hún fyrsta plata Guns´n Roses síðan The Spaghetti Incident? Kom út 1993, og fyrsta platan með frumsöndum lögum síðan Use Your Illusion I og II komu út 1991.
    Og á þessari plötu var Axl Rose orðinn einn eftir af upphaflegu hljómsveitinni. Það komu upp allskyns vandamál í samstarfinu og gítarleikararnir Slash og Gilby Clarke, bassaleikarinn Duff McKagan og trommarinn Matt Sorum höfðu allir annaðhvort hætt eða verið reknir úr sveitinni. Reyndar var píanóleikarinn Dizzy Reed með allan tímann og svo voru hinir og þessir með Axl á plötunni.
    Chinese Democracy er líkast til dýrasta rokkplata spögunnar en hún kostaði 13 milljónir dollara eða c.a. 1600 íslenskar milljónir og platan átti upphaflega að koma út 1999. En Axl henti öllum uppahfelag uptökunum og tók alla plötuna upp árið 2000. Hún var tekin upp í einum 15 hljóðverum víðsvegar um heiminn og með mörgum mismunandi upptökustjórum. Og platan kom svo loksins út 2008.
    Hér er lagalistinn:
    Ensími - Atari
    Utangarðsmenn - Canvas city
    Guns´n Roses - Better
    Greta Van Fleet - You´re the one
    Lenny Kravitz - Are you gonna go my way
    Rolling Stones - It´s only rock´n roll but i like it
    Elvis - Shake rattle and roll
    Little Richard - Lucille
    SÍMATÍMI
    Ramones - Do you wanna dance
    Fræbbblarnir - Positively 4th street
    Nightwish - Storytime (óskalag)
    Todmobile - Stúlkan (óskalag)
    The Death South - Deadmans idle (óskalag)
    Hayseed Dixie - Ace of spades
    GARGFRÉTTIR
    Krónika - Tinnitus forte (óskalag)
    Whitesnake - In the still of the night (óskalag)
    Vintage Caravan - The way
    STEFÁN MÁNI GESTUR FÜZZ
    Nirvana - Pennyroyal tea
    STEFÁN MÁNI II
    AC/DC - Hells bells
    STEFÁN MÁNI II - Rock´n roll aint noise pollution
    Guns´n Roses - Madagaskar
    A+B
    Katla - kaldidalur (A)
    Katla - Dómadalur (B)
    Ted Nugent - The great white Buffalo
    Utangarðsmenn - Pretty girl
    2 hr 35 min
  • Weller - Valli - Ramones og Airwaves
    Gestur Füzz í kvöld er kerfisfræðingurinn og söngvarinn Valgarður Guðjónsson, Valli í Fræbbblnunum.
    Fræbbblarnir fagna innan skamms 40 ára starfsamæli j-hvorki meira né minna. Fræbbblarnir ætla að halda upp á það með uppákomu á Gauknum eftir 2 vikur en eru líka að spila á Dillon á morgun kl. 18.00 á hliðardagskrá Airwaves. Valli mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína í Füzz kl. 21.00
    Plata þáttarins er fjórða breiðskífa „Mod-föðurins“ Paul Weller; Heavy Soul sem kom út 23. Júní 1997 í Evrópu. Platan hlaut fína dóma og seldist ágætlega, náði t.d. toppsæti breska vinsældalistans.
    Paul Weller var á þessum tíma talsvert í slagtogi við hljómsveitina Oasis og þarna var farið að tala um hann sem „modfather“ og „guðföður Brit-poppsins“.
    Paul Weller stofnaði kronungur hljómsveitina The Jam en lagði hana svo niður þegar hann var 23 ára vegna þess að honum fannst hann vera orðinn of gamall til að „rokka“. Hann stofnaði þá sálar-popp-sveitina The Style Council og gerði með henni nokkrar sólóplötur áður en hann hóf feril undir eigin nafni 1991 og fór aftur að spila meira rokk, en fullt af sál. Við heyrum 3 lög amk. Af plötu þáttarins í þættinum í kvöld.
    Við heyrum líka í nokkrum af Þeim fjölmörgu íslensku rokksveitum sem spila á Airwaves um helgina.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B er svo að þessu sinni með The Stranglers frá 1986.
    Lagalisti kvöldsins:
    Fræbbblarnir - Bjór
    Sólstafir - Ísafold
    Mammút - Breath into me
    Wilco - She´s a jar
    The Beatles - I am the Walrus
    Paul Weller - Heavy soul (plata þáttarins)
    Jónas Sig og Ritvélar Framtíðarinnar - AF ávöxtunum skuluð þið þekkja þá
    Pink Street Boys - Blast off
    SÍMATÍMI
    Gary Moore - Over the hills and far away
    Mike Oldfield - I got rhythm
    Stafrænn Hákon - Djákni
    Slipknot - All out life
    Skálmöld - Brúnir
    GARG FRÉTTIR
    Dead Sea Apple - Homesick
    Dr. Spock - Skítapakk
    Paul Weller - Peacock suit (plata þáttarins)
    Lemonheads - It´s a shame about Ray
    VALGARÐUR GUÐJÓNSSON GESTUR FUZZ MEÐ UPPÁHALDS ROKKPLÖTUNA
    Fræbbblarnir - Bjór
    VALLI II
    Ramones - Rockaway beach (live)
    VALLI III
    Ramones - Blitskrieg bop
    Public Service Broadcasting - White star liner
    Ham - Musculus
    Hamferð - Frosthvarf
    A+B
    The Stranglers - Nice in Nice (A)
    The Stranglers - Since you went away (B)
    Paul Weller - Friday street (plata þáttarins)
    BTO - YOu ain´t seen nothing yet
    Rolling Stones - Like a rolling stone
    2 hr 35 min
  • Margrét Gústavs - Rokk í Reykjavík og AC/DC
    Gestur Füzz í kvöld er Margrét Hugrún Gústavsdóttir fjölmiðlakona.
    Margrét hefur lengi skrifað fyrir hina og þessa miðla auk þess að hafa verið með þætti á Rás 2 í eina tíð og plötusnúður á Tuttuguogtveimur. Margrét lék líka aðal kvenhlutverkið í Sódómu Reykjavík á sínum tíma. Hún mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína um kl. 21. Hún heitir Rokk í Reykjavík.
    Plata þáttarins er plata AC/DC; Black ice, sem var í fyrsta sæti á breska vinsældalistanum í þessari viku fyrir áratug.
    Black Ice er 15ánda stúdíóplata AC/DC, en 14ánda platan sem gefin var út um allan heim. Hún kom út 17. Október 2008 og fór beina leið í toppsæti breska listans. Black Ice er í öðru sæti yfir mest seldu plöturnar í heiminum árið 2008 á eftir Coldplay plötunni Viva la vida or Death and all his friends. Í september 2008 höfðu selst rúmar 6 milljónir eintaka. Platan var tilnefnd til allskyns verðlauna, Brit, Juno og Grammy-verðlauna og lagið War Machine vann til Grammy verðlauna í flokknum Best Hard rock performance. Plötunni var fylgt eftir með tónleikaferð um allan heim sem stóð til ársins 2010.
    Upptökustjóri plötunnar er Brendan O´Brien og þeta var fyrsta plata AC/DC síðan árið 2000 og þetta er síðasta plata AC/DC sem skartar gullaldarliði sveitarinnar sem gerði t.d. Back in Black 1980, en ryþmagítarleikarinn og hljómsveitarstjórinn Malcolm Young hætti í hljómsveitinni í september eftir að hafa verið greindur með heilabilun sem dró hann svo til dauða árið 2017. Síðla árs 2016 var Angus Young orðinn einn eftir af þessari útgáfu hljómsveitarinnar en nú eru allir eftirlifandi liðsmenn sveitarinnar búnir að vera í hljóðveri að taka upp plötu segir sagan. Og plötuna er verið að vinna uppúr upptökum sem Malcolm Young spilaði inná fyrir næstum 15 árum síðan.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B er svo að þessu sinni með Kiss.
    2 hr 35 min
  • Kiddi Kanína - Primal Scream og Jeff Beck
    Gestur Füzz í kvöld er ævintýramaðurinn og plötusalinn Kristinn Sæmundsson (Kiddi Kanína) sem margir muna eftir úr plötubúðinni Hljómalind á Laugaveginum.
    Margir vilja meina að Kiddi hafi alið upp amk. eina kynslóð tónlistaráhugafólks með því að vera sífellt með puttann á púlsinum og selja fólki eitthvað annað en það kom í búðina (Hljómalind) til að kaupa. Kiddi mætir með upppáhalds ROKKplötuna sína um kl. 21.
    Plata þáttarins er fyrsta stóra plata Jeff Beck frá árinu 1968, platan Truth.
    Jeff Beck yfirgaf Yardbirds síðla árs 1966 og árið eftir sendi hann frá sér tvær litlar plötur undir eigin nafni þar sem hann söng sjálfur, og eina ´68 þar sem enginn söngur var. Allar þessar litlu plötur urðu vinsælar í Bretlandi og svo var komið stórri plötu í ágúst 1968. Þar voru með honum Ron Wood sem síðar átti eftir að spila með Faces og ganga á endanum til liðs við Rolling Stones. Og söngvarinn Rod Stewart sem þarna vakti fyrst athygli og sló í gegn í kjölfarið um allan heim.
    Við heyrum þrjú lög af plötu þáttarins í kvöld.
    Óskalagasíminn verður opnaður (5687-123) um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B.
    2 hr 35 min
  • Hera - Beatles og Oasis
    Gestur þáttarins sem kemur með uppáhalds Rokkplötuna er Hera Hjartardóttir.
    Hera er búin að vera með annan fótinn á íslandi og hinn á Nýja-sjálandi meira og minna allt sitt líf. Hún er núna að vinna að nýrri plötu með Barða Jóhannsyni (Bang Gang) og ætlar að vera með tónleika í Bæjarbíói 18. Október nk. Hera mætir um klukkan 21 með uppáhalds ROKKplötuna sína.
    Plata þáttarins er hið magnað Hvíta albúm Bítlanna og við heyrum nokkur lög af henni.
    Við fáum svo A+B með Oasis og Garg-fréttir eru á sínum stað.
    2 hr 37 min
  • Danni Pollock - AC/DC og Led Zeppelin
    Gestur Füzz í kvöld er Daniel Pollock framkvæmdastjóri Tónlistar-þróunar-miðstöðvarinnar á Granda.
    Danni var líka eins og margir vita annar af tveimur gítarleikurum Utangarðsmanna sem er fyrsta hljómsveitin sem Bubbi var í.
    Plata þáttarins er áttunda plata AC/DC, For those about to rock (we salute you) en söngvari AC/DC á þeim tíma þegar platan kom út, Brian Johnson, á afmæli í dag. Hann er 71 árs.
    Þekktasta lag þessarar plötu er líklega titillagið en sveitin var gríðarlega vinsæl hjá ungu fólki um allan heim þegar hún kom út árið 1981, en For those about to rock er önnur platan sem Brian Johnson syngur á. Sú fyrsta var Back in black sem kom út árið áður.
    Johnson er þarna algjörlega á hátindinum sönglega, í frábæru formi.
    Hún var fyrsta plata AC/DC sem náði toppsæti Bandaríska vinsældalistans og sú eina af plötum sveitarinnar sem það gerði þangað til platan Black Ice náði toppsætinu 2008.
    Roling Stone sagði á sínum tíma að For those about to rock væri besta plata sveitarinnar til þess tíma.
    Hún er þriðja og síðasta platan sem upptökustjórinn Robert John „Mutt“ Lange gerði með sveitinni. Hinar eru Highway to hell og Back in Black.
    Við heyrum þrjú lög af plötu þáttarins í þætti kvöldsins.
    Óskalagasíminn verður opnaður um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B er svo að þessu sinni með Led Zeppelin.
    Hér er lagalistinn:
    Utangarðsmenn - Júdas frá Ískaríot
    Dimma - Bergmál
    The Vintage Caravan - Hidden streams
    Rival Sons - Do your worst
    She & Him - Oh, boy
    The Ramones - Rockaway beach
    The Saints - This perfect day
    Presidents of the USA - Peaches
    Joy Division - Disorder
    SÍMATÍMI
    The Hotrats - Queen bitch
    David Bowie - Rebel rebel (óskalag)
    Skálmöld - Sverðið
    AC/DC - Snowballed (plata þáttarins)
    GARG-fréttir
    JUdas Priest - Electric eye (óskalag)
    Kul - Drop your head
    A+B
    Led Zeppelin - Immigrant song (A)
    Led Zeppelin - Hey hey, what can i do (B)
    White Denim - I might get dark
    GESTUR ÞÁTTARINS - DANNI POLLOCK
    Utangarðsmenn - Ég vil ekki stelpu eins og þig
    DANNI POLLOCK II
    Jimi Hendrix - Johnny B. Goode
    DANNI POLLOCK III
    Jimi Hendrix - Little wing
    AC/DC - Night of the long knives (plata þáttarins)
    Metallica - And justice for all (óskalag)
    Thin Lizzy - Jailbreak (óskalag)
    Velvet Underground - Waiting for the man
    AC/DC - For those about to rock (We salute you) (plata þáttarins)
    2 hr 37 min
  • Hreimur - Pearl Jam og Bad Company
    Gestur Füzz í kvöld er tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heimisson og hann mætir í hús með uppáhalds Rokkplötuna sína sem er með Pearl Jam.
    Plata þáttarins er fyrsta stóra plata súpergrúppunnar Bad Company frá árinu 1974.
    Tónlist Bad Company var kölluð Hard Rock á sínum tíma, svona eins og Hard Rock Café er kennt við og sveitin var stofnuð í Westminster í London 1973 af þeim Paul Rodgers sögvara og Simon Kirke trommara sem höfðu verið í hljómsveitinni Free. Mick Ralphs sem hafði verið gítarleikari Mott the Hoople og Boz Burrell sem hafði verið bassaleikari King Crimson. Umboðsmaður Bad Company var Peter Grant sem var líka umboðsmaður Led Zeppelin allan líftíma sveitarinnar.
    Og það var einmitt útgáfa Zeppelin, Swan song sem gaf plötuna út. Hún var líka tekin upp í Deadley Grange sem haðfi verið fátækrahæli þar til ýmsar hljómsveitir fóru að nota það sem æfingahúsnæði og ti að taka upp plötur á sex og sjö-tugunum. Led Zeppelin tók t.d. fjórðu plötuna upp þar, Stairway to heaven og það alltsaman.
    Bad Company öðlaðist miklar vinsældir á sjö-tugnum og til marks um það þá náðu fyrstu þrjár plöturnar; Bad Company (1974), Straight Shooter (1975), og Run With the Pack (1976) allar inn á topp 5 bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Og mörg laga sveitarinnar heyrast enn reglulega á rokk-útvarpsstöðvum um allan heim, lög eins og Bad Company, Can't Get Enough, Good Lovin' Gone Bad og Feel Like Makin' Love.
    Bad Company er starfandi í dag en þeir eru bara tveir eftir að upphaflega bandinu, þeir Paul Rodgers sem er einn besti rokksöngvari sögunnar og trommarinn Simon Kirke. Og bandið er að túra núna frá september og fram í desember.
    Óskalagasíminn (5687-123) verður opnaður um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B er svo að þessu sinni með The Police.
    2 hr 37 min
  • Clapton, Vilberg og amerískur idíóti
    Umsjón Hlynur Ben
    Gestur þáttarins var tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Einar Vilberg sem er hvað best þekktur fyrir verk sín með hljómsveitinni Noise.
    Fyrir tveimur árum komst hann ansi nálægt því að verða aðalsöngvari Stone Temple Pilots og undanfarið hefur hann tekið upp mikið af vinsælustu rokksveitum landsins, eins og Dr. Spock og Skálmöld. 
    Hann mætti að sjálfsögðu með uppáhalds rokkplötuna sína sem er Down on the Upside með Soundgarden.
    Við ræddum um hana og ferilinn að sjálfsögðu.
    Plata þáttarins var American Idiot með ameríska pönkrokk-tríóinu Green Day.
    Hápólitísk og stútfull af slögurum. Það eru 14 ár frá því að platan kom út og skaut sveitinni aftur á toppinn eftir nokkurra ára lægð.
    A+B smáskífan var gömul og góð Eric Clapton klassík. B-hlið smáskífunnar olli miklu fjaðrafoki og var meira að segja bönnuð í Argentínu á sínum tíma.
    Fréttir úr rokkheimum og eðal tónar úr hinni fjölbreyttu flóru rokksögunnar í bland við nýjasta nýtt og óskalögin ykkar.
    Þetta var gott kvöld!
    LAGALISTINN:
    Rock 'n' roller - Kaleo
    Take away my soul - Uriah Heep
    Walk this way - Aerosmith
    Ég veit að þú kemur - Trúbrot
    American Idiot - Green Day (plata þáttarins)
    Revolution - The Beatles
    Wall of glass - Liam Gallagher
    Símatími
    Are you gonna go my way - Lenny Kravitz
    Black magic woman - Santana
    Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá - Meistarar dauðans
    A+B
    A. Lay down Sally - Eric Clapton
    B. Cocain - Eric Clapton
    Diamonds and rust - Judas Priest (óskalag)
    Holiday - Green Day (plata þáttarins)
    Killing in the name - Rage Against the Machine (óskalag)
    Money - Pink Floyd (óskalag)
    Painkiller - Judas Priest (óskalag)
    Blueberry hill - Fats Domino
    Baby please don't go - Them
    Crazy train - Ozzy Osbourne
    A stab in the dark - Noise
    Gestur þáttarins var Einar Vilberg tónlistarmann sem kom með uppáhalds plötuna sína, Down on the Upside með Soundgarden.
    1. Pretty Noose - Soundgarden
    2. Tighter & tighter - Soundgarden
    Þið eruð frábær - Botnleðja
    St. Jimmy - Green Day (plata þáttarins)
    Free ride - The Edgar Winter Group
    If you want blood (you've got it ) - AC/DC
    I believe in a thing called love - The Darkness
    Mississippi queen - Mountain
    Baby please don't go - Them
    When the curtain falls - Greta Van Fleet
    2 hr 37 min
  • Tryggvi Hübner - Judas Priest og Little Richard
    Gestur Füzz í kvöld gítarleikarinn Tryggvi Hübner sem hefur spilað með afskaplega mörgum og mjög lengi. Hann mætir með uppáhalds ROKKplötuna sína um kl. 21.00.
    Hún gæti verið með Jimi Hendrix eða Led Zeppelin.
    Í ljósi helstu tónleikafrétta dagins er plata þáttarins með Judas Priest sem ætlar að spila í Laugardalshöll 24. janúar.
    Platan er risi í rokksögunni, sjötta breiðskífa Priest, British Steel sem kom út í apríl 1980 á miðju blómaskeiði þess sem kallað hefur verið „The New wave of British Heavy Metal“.
    Britist Steel er dálítið „léttari“ en fyrstu plöturnar, bæði músíklega og textalega. Söngvarinn Roid Halford sagði í viðtali fyrir nokkrum árum að AC/DC hafi haft nokkur áhrif á sveitina á þessum tíma, en Judas Priest fór með AC/DC sem upphitunarnúmer árið áður. Og trixið virkaði - Judas Priest sló í gegn með British Steel sem sumir segja að sé ein allra merkasta plata þungarokksins. Hún var tekin upp í Tittenhurst park, hljóðveri sem Ringo Starr átti.
    Þrjú lög plötunnar voru gefin út á litlum plötum; Breaking the Law, United og Living After Midnight.
    Judas Priest er búin að vera starfandi í næstum hálfa öld og er enn að gera fína músík og standa fyrir sínu á tónleikum. Sveitin var stofnuð í West Bromwich á Englanid árið 1969 en söngvarinn Rob Halford sem er stjarna sveitarinnar byrjaði 1973.
    Judas Priest er ein áhrifamesta hljómsveit þungarokksins á allan mögulegan hátt; Músíklega jafnt sem ýmindar og útlitslega.
    Fyrsta platan kom út 1977 og nýjasta platan; Firepower er átjánda platan þeirra. Hún hefur fengið mjög jákvæða dóma eins og tónleikar sveitarinnar undanfarin ár og sumir segja að prestarnir hafi sjaldan eða aldrei verið betri á tónleikum en í dag. Platan náði 5. Sæti bandaríska vinsældalistans þegar hún kom út en það er þeirra besti árangur í Bandaríkjunum til þessa.
    Judas Priest var tilnefnd í Rock and Roll Hall of Fame í fyrra og 2010 fékk sveitin Grammyverðlaun (Best Metal Performance).
    Füzz fagnar komu Judas Priest og Dimma hitar upp í Laugardalshöll 24. Janúar.
    Óskalagasíminn verður opnaður um kl. 20; GARG-fréttir eru á sínum stað og A+B er svo að þessu sinni með Little Richard.
    Lagalistinn:
    JAK- Eitt augnablik er endalaust
    Judas Priest - Breaking the law (plata þáttarins)
    Kings of Leon - Sex on fire
    Rolling Stones - Hang fire
    Kiss - Rock´n roll all nite
    Tryggvi Hubner - Albatross
    Sarah Longfield - Cataclysm
    NELSON CAN Í STD. 12
    Nelson Can - Break down your walls
    SÍMATÍMI
    Vintage Caravan - Reset (óskalag)
    Metallica - For whom the bell tolls (óskalag)
    Whitesnake - Walking in the shado
    2 hr 37 min

About Füzz

From the publisher's feed

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70's, 60's, 80's, 50's, 90's rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að…