Gestur þáttarins að þessu sinni er enginn, en vinur þáttarins sendir pistil og lag og óskalagasíminn opnar kl. 20.00 - 5687123.
Plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er í tilefni dagsins platan Aladdin Sane með David Bowie sem kom út 13. Apríl 1973, en Bowie hefði orðið 74 ára í dag ef hann hefði lifað.
Aladdin Sane er sjötta plata Bowie og sú sem kom út næst á eftir tímamótaplötunni The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars sem er platan sem gerði Bowie að stjörnu. Spiders from Mars bandið er með honum á plötunni, það sama og var með á Ziggy Stardust; Mick Ronson - gítar, Trevor Bolder - bassi og Mick Woodmansey á trommur. Píanóleikarinn Mike Garson sem fylgdi Bowie næstum til dauðadags er líka á Aladdin Sane í fyrsta sinn auk tveggja saxófónleikara og bakraddasöngvara.
Platan var tekin upp í Trident Studios í London og RCA Studios í New York milli tónleikaferða þegar Bowie fylgdi eftir Ziggy Stardust og Bowie samdi flest lögin í tónleikaferðinni í Bandaríkjunum og það má heyra bandarísk áhrif víða á plötunni auk þess sem Bowie fræðingar segja að þar séu líka áhrif frá Rolling Stones, auk þess sem Bowie flytur Stones-lagið Let?s spend the night together á plötunni.
Útkoman er að miklu leyti kraftmikið glam-rokk sem var einkennandi fyrir Bowie og tíðarandann í Bretlandi á þessum tíma.
Bowie var orðin stjarna í Bretlandi þarna og það litar umfjöllunarefni plötunnar að talsverðu leyti. Þegar platan kom út lágu fyrir forpantanir í 100.000 eintök en slíkt hafði ekki gerst í breskri útgáfusögu síðan The Beatles voru og hétu.
Umslagið er glæsilegt og sýnir mynd af Bowie með rauða hárið og eldinguna í andlitinu - Ziggy Stardust var kominn til Ameríku og orðinn hálf geggjaður, en Aladdin Sane stendur fyrir A Lad Insane; Galinn strákur - eitthvað svoleiðis.
Áður en platan kom út höfðu komið út tvær smáskífur með lögum af plötunni; The Jean Genie og Drive-In Saturday.
Platan seldist betur en allar plötur Bowie?s höfðu gert til þessa tíma. Hún fór á toppinn í Bretlandi, fyrsta platan hans sem náði því auk þess sem hún náði 17. sæti vinsældalistans í Ameríku. Hún fékk líka góða dóma gagnrýnenda yfirleitt þó einhverjum hafi þótt hún aðeins síðri en Ziggy Stardust.
Þann 3. júlí árið 1973 lauk hljómleikaferð Ziggy Stardust og The Spiders from Mars um hinn vestræna heim á hljómleikum í Hammersmith Odeon sem bæði voru hljóðritaðir og kvikmyndaðir.
Í lok hljómleikanna tilkynnti Bowie, áhorfendum til sárra vonbrigða að frá og með þessu kvöldi væri hann hættur öllu hljómleikahaldi og vildi þannig