
Sign up to save your podcasts
Or


Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu?
Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar raddir breytt gömlum viðhorfum?
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hvernig tölum við um veikindi sem við viljum helst ekki tala um?
Í þessum þætti skoðar Hera hvernig þagnir, orð og fordómar móta skilning okkar á geðsjúkdómum.
Við heyrum sögur annarra geðveikra mæðra og Hera heldur áfram að reyna að fylla í eyðurnar í sögu langömmu sinnar.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Líf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp.
Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar reyna þær í sameiningu að skilja hvað gerðist og hvers vegna enginn talaði um þetta. Í þessum fyrsta þætti tvinnast saman fjölskyldusaga, eigin reynsla Heru og spurningar um hvaða merkingu Kleppur hefur í samtímanum.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti Vilhjálmsdóttur félagsráðgjafa og líkamsvirðingarsinna og Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann SÁTTar, samtaka um átröskun og aðrar tengdar raskanir.
Lesari í þættinum er Ævar Örn Jósepsson.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma.
ATH að í þættinum er komið inn á ýmislegt sem gæti reynst flókið fyrir þau sem hafa glímt við átröskun.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Brynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd og leitar ráða hjá konu með reynslu.
Rætt er við Ragnheiði Bjarman Eiríksdóttur og lesari í þættinum er Helgi Seljan.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
From the publisher's feed
Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki?
Þættir um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja – eða segja ekki.
Hera…
Dagskrárgerð: Hera Guðmundsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Framleitt af Rás 1
Fyrri þættir og þáttaraðir í þessu safnvarpi:
Eldflaugaförin
Bein
Mundi
Ljóslæknirinn
Land og sonur
Vinur minn Germani
Hold
Í upphafi var myndin
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.